A A A
15. maí 2012 - Jón Hálfdán Pétursson

Ađalfundi BÍ88, sem auglýstur var í kvöld, ţann 15. mai er frestađ. Nýr fundartími verđur auglýstur viđ fyrsta tćkifćri.

Það getur því miður ekki orðið af fundi í kvöld, eins og fyrirhugað var.  Við biðjum afsökunar á hversu seint afboðun fundar á sér stað.

Stjórn BÍ88

9. maí 2012 - Jón Hálfdán Pétursson

Gallakaup BÍ88

Öllum iðkendum BÍ sumarið 2012 stendur nú til boða að kaupa Hummel-galla fyrir sumarið. Gallarnir verða keyptir í gegnum Leggur og Skel, og fer mátunin fram þar. Um er að ræða eins galla og HSV hefur verið að bjóða.
Verð til iðkenda BÍ:
 
iðkendur sem nota barnastærð 5.500kr.
iðkendur sem nota fullorðinsstærð 6.500kr
 
Mátunin fer fram þannig að flokkar fá úthlutað dagsetningu og tíma:
Fimmtudagurinn 10.maí kl.20-22 5.flokkur kk og kvk, 4.flokkur kk og kvk, 3.flokkur kk og kvk
Mánudagurinn 14.maí kl.20-22 8.flokkur, 7.flokkur kk og kvk, 6.flokkur kk og kvk
 
Ef iðkendur komast ekki á uppgefnum tímum, þá er hægt að fara á hinn uppgefna mátunardaginn eða á opnunartíma verslunarinnar. En við mælumst til þess að iðkendur noti uppgefinn mátunartíma.
17. apríl 2012 - Jón Hálfdán Pétursson

Ađalfundur BÍ88 - frestađ

Aðalfundi Boltafélags Ísafjarðar sem fara átti fram miðvikudagskvöldið 2.maí kl.20:00, hefur verið frestað til þriðjudagsins 15.maí.


20. mars 2012 - Jón Hálfdán Pétursson

Elín valin á úrtaksćfingar U-16

Elín Ólöf er í fremri röđ, ţriđja frá vinstri.
Elín Ólöf er í fremri röđ, ţriđja frá vinstri.
Elín Ólöf Sveinsdóttir leikmaður 3.flokks BÍ hefur verið valin á úrtaksæfingar U-16 landsliðsins. Elín spilaði í sumar með 3.flokki kvk BÍ/Bolungarvík sem komst í undanúrslit Íslandsmótsins. Æfingarnar fara fram helgina 24. og 25.mars í Kórnum og Egilshöll. Elín mun svo vera í eldlínunni í sumar með nýstofnuðum meistaraflokki kvenna, sem spilar í 1.deild.
18. mars 2012 - Jón Hálfdán Pétursson

4.flokkur í 2.sćti á Greifamóti KA

A-liđiđ lenti í 2.sćti
A-liđiđ lenti í 2.sćti
4.flokkur kk BÍ/Bolungarvík tók þátt í Greifamóti KA helgina 9.-11.mars sl. BÍ/Bolungarvík sendi 2 lið til keppni þar sem 4.flokkurinn er mjög fjölmennur hjá félaginu. Um 30 strákar fóru norður og tóku þátt í mótinu fyrir hönd félagsins, þ.e. A og B-lið.
Skemmst er frá því að segja að A-liðið lenti í 2.sæti á eftir Þór Ak., sem tóku efsta sætið á markatölu. A-liðið vann 5 leiki og gerði 1 jafntefli og markatöluna 11-0.
B-liðið gerði 1 jafntefli og tapaði 4 leikjum og markatöluna 2-8 

Hér má nálgast öll úrslit mótsins:
 http://www.ka-sport.is/greifamot/4fl/2012/?page_id=4
Fyrri síđa
1
234567282930Nćsta síđa
Síđa 1 af 30
Eldri fćrslur

Vefir ađildarfélaga HSV

Vefumsjón