Í fótbolta er barnið í hverjum flokki í tvö ár í senn. Að hausti er síðan skipt um flokka, engin sérstök dagsetning er á slíku en algengast er að það fylgi upphafi skóla. Þá færast sumir upp á eldra á í sama flokki eða þá upp í nýjan flokk, á yngra árið eins og gefur að skilja. Flokkaskiptingin er því þannig og er eins í báðum kynjum:
8. flokkur: fyrir börn á síðustu tveimur árum leikskóla
7. flokkur: börn í 1. og 2. bekk grunnskóla
6. flokkur: börn í 3. og 4. bekk grunnskóla
5. flokkur: börn í 5. og 6. bekk grunnskóla
4. flokkur: börn í 7. og 8. bekk grunnskóla
3. flokkur: unglingar í 9. og 10. bekk grunnskóla
2. flokkur: ungmenni í 1., 2. og 3. bekk framhaldsskóla
Meistaraflokkur: allir eldri en 3. ár í framhaldsskóla.
Auðvitað mega leikmenn leika upp fyrir sig í flokkum, þ.e. að leika með flokki eldri leikmanna. Það er eingöngu gert ef talið er að leikmaður ráði við slíkt álag og sé tilbúinn í þau átök sem einkenna leiki í eldri flokkum.
Stranglega er bannað að leika niður fyrir sig, þ.e. í flokki með yngri leikmönnum, enda óíþróttamannslegt með öllu.