A A A
26. febrúar 2012 - Jón Hálfdán Pétursson

KSÍ útskrifađi 15 unglingadómara hjá BÍ/Bolungarvík

Unglingadómaranámskeið á vegum KSÍ var haldið á Ísafirði á dögunum. Námskeiðið var í formi 3 tíma fyrirlesturs um knattspyrnulögin, svo þreyttu þátttakendur próf í lok námskeiðs. KSÍ útskrifaði 15 unglingadómara hjá BÍ/Bolungarvík og eru þeir á aldrinum 17-27 ára.
26. febrúar 2012 - Jón Hálfdán Pétursson

Strákarnir í 5.flokki tóku ţátt í Gođamóti Ţórs

Strákarnir í 5.flokki stóðu sig með mikilli prýði á Goðamóti Þórs, sem fram fór helgina 17.-19.febrúar sl. Strákarnir spiluðu 6 leiki þessa helgi og stóðu sig vel. Mikil ánægja var með ferð drengjanna og mikið gert sér til skemmtunar. Þjálfari 5.flokks er Atli Freyr Rúnarsson, og var hann bara þokkalega sáttur með spilamennskuna hjá strákunum.

Hér er hægt að finna úrslit mótsins: 
http://godamot.blog.is/users/73/godamot/files/leikjaplan_4_0.pdf
8. febrúar 2012 - Jón Hálfdán Pétursson

Matthías í 20 manna hóp U-19 ára landliđsins

Matthías Króknes Jóhannsson var um sl. helgi á landsliðsæfingum með U-19 landsliðinu. Er þetta glæsilegur árangur hjá Matthíasi, þar sem um var að ræða 20 manna æfingahóp landsliðsins. BÍ óskar Matthíasi til hamingju með þennan árangur.
8. febrúar 2012 - Jón Hálfdán Pétursson

4.flokkur kvk á Gođamóti

Lið 4.fl.kvenna frá BÍ fór um síðastliðna helgi í keppnisferð norður á Akureyri og tóku þar þátt í Goðamótinu. Þetta var fyrsta fótboltamótið sem stelpurnar taka þátt í frá því í sumar og var mikil tilhlökkun í stelpunum að fá loksins að keppa aftur. Þær stóðu sig með mikilli príði og spiluðu mjög flottan fótbolta á köflum og börðurst vel í öllum 6 leikjunum sem þær spiluðu. Að lokum enduðu þær í 4 sæti  b-riðils eftir úrslita leik við KA2 um bronsið. Stelpurnar eru staðráðnar í því að leggja mikið á sig í vetur og mæta vel undirbúnar til leiks fyrir Íslandsmótið í sumar. Atli Freyr Rúnarsson er þjálfari 4.fl.kvenna hjá BÍ
13. janúar 2012 - Jón Hálfdán Pétursson

Jónas Leifur ráđinn ţjálfari meistaraflokks kvenna

Jónas Leifur Sigursteinsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna, og tók hann við því starfi um mánaðarmótin október/nóvember.  Nú á dögunum skrifaði Jónas undir samning þess efnis.  Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni munu BÍ og UMFB senda sameiginlegt lið til keppni í meistaraflokki kvenna. 3.flokkur kvenna BÍ/Bolungarvík náði góðum árangri sl. sumar og spilaði í undanúrslitum á Íslandsmótinu. Þær stelpur eru nú gengnar upp úr flokknum og munu verða kjarnin í liðinu í bland við eldri stelpur.
Eldri fćrslur

Vefir ađildarfélaga HSV

Vefumsjón