A A A

Lög BĶ88

Lög Boltafélags Ísafjarðar
2011
 
1. Grein
Félagið heitir Boltafélag Ísafjarðar og er skammstafað BÍ88. Heimili þess og varnarþing er í
Ísafjarðarbæ.
 
2. Grein
Tilgangur félagsins er að gefa ungum sem öldnum tækifæri til alhliða íþróttaiðkana og félagsstarfa,
veita þeim fræðslu um gildi íþrótta og skapa þeim heilbrigða sál í hraustum líkama.

3. grein
Félagar geta þeir einir orðið sem samþykktir eru á stjórnar- eða félagsfundum, enda liggi þá fyrir
umsókn er greini frá nafni, kennitölu, heimilisfangi og símanúmeri viðkomandi aðila. Þó skulu
unglingar innan 16 ára aldurs leggja fram skriflegt leyfi a.m.k. annars foreldris eða forráðamanns til
inngöngu.

4. Grein
Félagar skulu greiða árgjald til félagsins. Skal það ákveðið á aðalfundi ár hvert.

5. Grein 
A. Heiðursfélaga getur stjórn félagsins kosið, þann karl eða konu sem hún telur að hafi unnið
félaginu eða íþróttahreyfingunni sérstaklega vel.
Heiðursfélagi skal kosinn með samhljóða atkvæðum allra stjórnarmanna.
Heiðursfélagar eru gjaldfrjálsir gagnvart félaginu, en njóta fullra félagsréttinda.
 
B. Heiðursformann getur stjórn félagsins kosið á sama hátt og heiðursfélaga.
Heiðursformaður Boltafélags Ísafjarðar hefur rétt til að sitja stjórnar- og nefndarfundi og
hefur þar málfrelsi og tillögurétt.
Þá er stjórninni heimlit að veita sérstök heiðursmerki, merki félagsins í gulli og silfri, til þeirra
karla eða kvenna sem stjórnin telur að hafi unnið félaginu sérstaklega vel.
 
6. Grein
A. Reikningsár félagsins telst vera frá 1. janúar til 31. desember.
Aðalfundur skal haldinn fyrir 1. mars ár hvert og er hann lögmætur, sé hann auglýstur með
minnst 10 daga fyrirvara.
Á aðalfundi skal formaður eða framkvæmdastjóri gefa greinargóða skýrslu um starfsemi
félagsins síðastliðið ár. Þá skulu lagðir fram til samþykktar endurskoðaðir reikningar
síðastliðins árs.
 
B. Aðalstjórn félagsins skal skipuð minnst 5 mönnum: formanni, gjaldkera, ritara, varaformanni
og meðstjórnanda.
 
Á aðalfundi skal kosið í stjórn sem hér segir: formann skal kjósa til eins árs í senn og skulu
síðan kosnir tveir menn til tveggja ára í senn, þannig að kosnir séu tveir menn á hverju ári.
Komi sú staða upp að fleiri sæti losni í stjórninni, skal fyrst kosið um tvo menn til tveggja ára
og síðan skal kjósa einn eða tvo menn til eins árs. Síðan skal kjósa tvo varamenn til eins árs í
senn, svo og einn endurskoðanda til eins árs, og einn til vara.
Þá skulu kosnir fulltrúar félagsins í nefndir, ráð og annað slíkt sem félagið hefur rétt á að skipa
til.
Við allar kosningar heimilast uppástungur um menn, en fara skal fram leynileg kosning sé
stungið upp á fleirum en einum til sama embættis.
Atkvæðisrétt öðlast félagar við 16 ára aldur.

C. Meistaraflokksráð félagsins skal skipuð minnst 5 mönnum: formanni, gjaldkera, ritara,
varaformanni og meðstjórnanda.
Á aðalfundi skal kosið í stjórn sem hér segir: formann skal kjósa til eins árs í senn og skulu
síðan kosnir tveir menn til tveggja ára í senn, þannig að kosnir séu tveir menn á hverju ári.
Komi sú staða upp að fleiri sæti losni í stjórninni, skal fyrst kosið um tvo menn til tveggja ára
og síðan skal kjósa einn eða tvo menn til eins árs. Síðan skal kjósa tvo varamenn til eins árs í
senn, svo og einn endurskoðanda til eins árs, og einn til vara.
Þá skulu kosnir fulltrúar félagsins í nefndir, ráð og annað slíkt sem félagið hefur rétt á að skipa
til.
Við allar kosningar heimilast uppástungur um menn, en fara skal fram leynileg kosning sé
stungið upp á fleirum en einum til sama embættis.
Atkvæðisrétt öðlast félagar við 16 ára aldur.

D. Dagskrá aðalfundar skal vera þannig:
1. Fundur settur
2. Kosnir fundarstjóri og fundarritari
3. Skýrsla stjórnar
4. Reikningar félagsins lagðir fram
5. Umræður um skýrslu og afgreiðsla reikninga
6. Lagabreytingar
7. Ákvörðun árgjalda
8. Kosningar
9. Önnur mál
E. Stjórn félagsins er heimilt að ráða framkvæmdastjóra fyrir félagið ef efni og aðstæður leyfa.

7. Grein
A. Formaður hefur á hendi frumkvæði og yfirumsjón allrar starfsemi félagsins.
Hann er málsvari félagsins ásamt stjórn, staðfestir fundargerðir ásamt ritara og gætir eigna
félagsins og þeirra verðlaunagripa er það varðveitir.
Formaður getur falið framkvæmdastjóra þessi störf að hluta til ef þurfa þykir.
 
B. Ritari færir óhlutdræga gjörðabók stjórnar- og félagsfunda, annast bréfaskriftir og varðveitir
bréf og skjöl félagsins.
 
C. Gjaldkeri færir glöggt, sundurliðað bókhald tekna og gjalda, varðveitir viðskiptabækur
félagsins og sér til þess að sjóðir allir séu á vöxtum, eftir því sem við verður komið. Ennfremur
annast hann greiðslu reikninga.
 
D. Ritara og gjaldkera er heimilt að fela framkvæmdastjóra hluta starfa sinna ef aðrir
stjórnarmeðlimir samþykkja.
 
E. Tilkynna skal stjórn félagsins um menn í nefndir og ráð félagsins. Stjórn félagsins setur hverri
nefnd starfsreglur.

8. Grein
A. Formaður boðar til stjórnarfunda, svo oft sem hann telur nauðsynlegt, eða ef einhver
stjórnarmanna óskar þess.
Þó ekki sjaldnar en einu sinni í mánuði.
Stjórnarfundir eru löglegir ef meirihluti stjórnar er mættur. Einfaldur meirihluti ræður
úrslitum mála á stjórnarfundum. Fallir atkvæði jöfn á stjórnarfundum, ræður atkvæði
formanns úrslitum.
Stjórnarfundir skulu bókaðir sérstaklega og staðfestir með undirskrift viðstaddra
stjórnarmeðlima.
 
B. Stjórn félagsins skal boða til félagsfundar ef 20 félagsmenn eða fleiri óska þess.
Óskin skal vera skrifleg og tilefni hennar tilgreint ásamt undirskrift 20 félagsmanna, sem
orðnir eru 16 eða eldri.

9. Grein
Halda skal skrá yfir alla meðlimi félagsins, svo séð verði á hverjum tíma hverjir eru fullgildir félagar.

10. Grein
Vilji einhver félagsmaður segja sig úr félaginu, þá skal hann senda úrsögn sína skriflega til
stjórnarinnar.
Enginn getur sagt sig úr félaginu án þess að vera skuldlaus við það.
 
11. Grein
Öll meðferð vímugjafa er stranglega bönnuð í keppnis- og æfingaferðum á vegum félagsins.
Verði einhver félagi sekur um afbrot, sem stjórnin telur félaginu eða íþróttahreyfingunni til
vanvirðingar, getur hún vikið viðkomandi úr félaginu.

12. Grein
Búningur félagsins er blá peysa, svartar eða bláar buxur og svartir eða bláir sokkar. Litur varabúnings
er breytilegur eftir aðstæðum. Gefi ytri aðstæður tilefni til skal aðaltreyja félagsins vera blá, en aðrir
hlutar búnings geta tekið breytingum.
Merki félagsins er skammstöfun félagsins með bláum stöfum og mynd af bolta á ferð. Merkið teiknaði
Hallvarður Aspelund.

13. Grein
Verðlaunagripir og verðmæt skjöl skulu ávallt vera í vörslu stjórnar.
Hætti félagið störfum eða sé það lagt niður, þá ber að afhenda allar eigur þess, bækur og skjöl til
stjórnar HSV til varðveislu.
Verði félagið ekki endurreist innan 10 ára frá afhendingardegi eignanna, þá skulu þær allar og
óskiptar renna til HSV.

14. Grein
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þurfa minnst 2/3 hlutar greiddra atkvæða að vera
samþykk breytingunni til að hún teljist samþykkt.
Frumvörp til lagabreytinga þarf að tilkynna stjórn félagsins skemmst tveimur vikum fyrir aðalfund og
ennfremur þarf að geta þeirra í aðalfundarboði.

15. Grein
Lög þessi öðlast gildi nú þegar og með þeim eru úr gildi numin öll eldri lög Boltafélags Ísafjarðar.
Þannig lagt fram á aðalfundi Boltafélags Ísafjarðar 14. apríl 2011.

 


Vefir ašildarfélaga HSV

Vefumsjón