1. mars 2011 -
Greifamót
3.flokkurinn fór á dögunum norður á Akureyri til þess að taka þátt í Greifamótinu sem haldið er árlega fyrir 3.flokk karla. Spilað var 2x20 mínútur á 11 manna velli. Ferðin sem slík gekk vel og voru menn almennt sáttir með hana þrátt fyrir að úrslitin hafi ekki alveg verið nægilega góð. Byrjuðum á því að tapa 1-5 gegn sterku liði Fjarðabyggðar þar sem rútuferðin sat greinilega aðeins í mönnum því við vorum undir 4-0 í hálfleik, Tómas náði aðeins að klóra í bakkann fyrir okkur í seinni hálfleik en Fjarðabyggðarmenn náðu að komast inn í sendingu milli varnarmanna okkar og kláruðu þennan leik 1-5. Næst tók við leikur gegn Þór og tapaðist hann 0-4 en tölurnar segja ekki allt, við spiluðum oft á tíðum mjög vel en náðum ekki að klára þau færi sem við sköpuðum okkur og því fór sem fór. Menn virtust vera að vakna og við tók leikur gegn KA þar var sama upp á teningnum og gegn Þór, við töpuðum 0-3 en náðum ekki að nýta okkar færi og vorum alls ekki slakari aðilinn í þessum leik. Húsvíkingar voru næstir í röðinni, þar lentum við 1-0 undir en náðum að jafna þegar langt var liðið á fyrri hálfleikinn. Við vorum mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en svo komu 2 vafasamir dómar gegn okkur í seinni hálfleik og menn voru að láta það fara í taugarnar á sér og einbeita sér meira að dómaranum en leiknum og tapaðist leikurinn 1-5. Síðastir í röðinni voru KF/Tindastóll/Hvöt, í þeim leik gerði einbeitingarleysi og hálfgert vonleysi vart við sig og tapaðist sá leikur 5-0.
Úrslitin í leikjunum ekki góð en þrátt fyrir þau þá mátti sjá liðið leika fanta vel á köflum, margt gott í gangi en einnig margt sem þarf að bæta. Nú hefjast á fullu stífar æfingar fram að íslandsmóti og ætlum við okkur að koma margfallt sterkari til leiks þegar íslandsmótið byrjar nú á vormánuðum.
Úrslitin í leikjunum ekki góð en þrátt fyrir þau þá mátti sjá liðið leika fanta vel á köflum, margt gott í gangi en einnig margt sem þarf að bæta. Nú hefjast á fullu stífar æfingar fram að íslandsmóti og ætlum við okkur að koma margfallt sterkari til leiks þegar íslandsmótið byrjar nú á vormánuðum.