A A A
1. desember 2009 -

ćfingar í desember

síðasta æfing í desember verður mánudaginn 7 des
svo byrjum við strax þegar skóli hefst
kveðja jóhannds  
10. nóvember 2009 -

Ćfingar

æfingar verða í tornesi á
mánudögum 1315 til 1415
miðvikudögum 1315 til 1415

 
25. ágúst 2009 -

Ćfingar hjá 6 flokki

Æfingar hjá strákunum verða út þessa viku á miðvikudag, fimmtudag og föstudag, alltaf kl 15:15.
Það verður frí hjá þeim á þriðjudag, og svo tekur við einhversskonar millibils æfingatafla sem sett verður hérna inn þegar hún er tilbúin..

Þetta lítur þá svona út hjá þeim út þessa viku:
Þriðjudagur: Frí
Miðvikudagur: æfing kl 15:15 á gervigrasinu
Fimmtudagur: æfing kl 15:15 á gervigrasinu
Föstudagur: æfing kl 15:15 á gervigrasinu

Svo þar sem veðrið er farið að verða svolítið slæmt, þá vil ég bara minna foreldra á það, að láta drengina klæða sig eftir veðri, stuttbuxur eru t.d. ekki nægilega góður klæðnaður í haustroki og rigningu.
Ef þannig viðrar, þá gætu drengirnir verið sendir heim ef þeir eru ekki nægilega vel klæddir, til þess að þeir verði ekki veikir.

Ef einhverjar spurningar eru, endilega ekki hika við að hringja, síminn hjá mér er sem fyrr 8944972
Kv. Sigþór Snorrason
23. júlí 2009 -

Sparisjóđsmót 2009

Laugardaginn 25. júlí verður Sparisjóðsmót UMFB haldið í Bolungarvík.
Keppendur mæta við Grunnskólann um kl. 8:30 á laugardaginn og halda í skrúðgöngu kl. 8:45 uppá völl.
Keppnisgjald er 3000 kr. á keppanda. Innifalið í því er leikir, frítt í sund, grill í hádeginu á laugardag og verðlaun og gjöf í mótslok.


Dagskrá mótsins

8:30  Mæting við Grunnskóla Bolungarvíkur, haldið af stað á vallarsvæði kl. 8:45.
9:00  Setning móts.
9:30 Leikir hefjast samkvæmt leikjaplani.
12:00-14:00  Grillveisla á palli við Hrafnaklett, liðsstjórar fara með sín lið þegar þeim hentar samkv. Leikjaplani.
11:00-16:00  verður hoppikastali á vallarsvæði.

Sölutjald verður á svæðinu á meðan á mótinu stendur, þar verða til sölu samlokur, drykkir, kaffi, kakó og ýmislegt annað góðgæti. Allur ágóði sölunnar rennur til yngri flokka knattspyrnudeildar umfb.
.
Verðlaunaafhending verður á vallarsvæði í mótslok.

Allir með armband fá frítt í sund.
8. júlí 2009 -

Flottir taktar ţrátt fyrir úrslit á Íslandsmóti.

Haldið var á Íslandsmót með miklar væntingar í farteskinu eftir góða frammistöðu á Smábæjarleikunum.
Stutt er frá að segja að úrslitin voru ekki með besta móti á Bessastaðarvelli á Álftanesi, en þó segja úrslitin ekki alla söguna, því að ég held að allir staðir á markrammanum hafi fengið skot í sig frá leikmönnum okkar í þessum 6 leikjum. Heppnin var svo sannarlega ekki með okkur, og oft vildi mótlætið brjóta krakkana niður.
3 stúlkur úr 6.flokki kvenna ljáðu okkur liðstyrk, og voru þær engu síðri en strákarnir með flotta frammistöðu.

Eins og áður sagði, þá var frammistaðan hjá krökkunum til mikillar fyrirmyndar þrátt fyrir úrslitin, og megum við vera stolt af hvað við eigum prúðan og efnilegann hóp.

Svo að við höldum bara áfram að æfa framað næsta móti, og sýnum hvað í okkur býr þar.

Kv. Sigþór, stoltur þjálfari
3. júní 2009 - Svavar Ţór Guđmundsson

Mót 6. flokks í sumar

Ţessir frábćru krakkar verđa í eldlínunni í sumar
Ţessir frábćru krakkar verđa í eldlínunni í sumar
Farið verður á Smábæjaleikana á Blönduósi dagana 19.-21. júní nk. Nánari upplýsingar síðar
Íslandsmót á Bessastaðavelli 7. júlí
Vestfjarðamótið í Bolungarvík 25. júlí
Landsbankamót BÍ88 22.-23. ágúst (dagsetning ekki ákveðin)
3. júní 2009 - Svavar Ţór Guđmundsson

Nýr ţjálfari 6. flokks drengja

Sigþór Snorrason hefur verið ráðinn þjálfari 6. flokks drengja í sumar. Sigþór er félagsmönnum Boltafélagsins að góðu kunnur, ólst upp í yngri flokkunum með boltann á tánum og hóf ungur þjálfaraferil með knattspyrnuiðkuninni. Hann er nú kominn heim, farinn að leika á miðjunni með meistaraflokki og ætlar að láta gott af sér leiða hjá strákunum í 6. flokki í sumar. Sigþór mun mæta á sína fyrstu æfingu í dag, miðvikudaginn 4. júní. Stjórn félagsins býður hann velkominn til starfa á ný og veit að samstarfið verður gott í sumar.
29. desember 2008 -

myndir úr síđasta móti

« 1 af 2 »
þetta eru myndir úr síðasta móti sem var haldi des 2008
svo ef foreldrar hafa myndir af starfinu þá mega þeir senda mér
í netfang joibakari@internet.is sem  ég mun þá smella á netið
kv johann ds
1. desember 2008 -

Ćfingar tímar í íţróttahúsi torfnesi

Æfingar timar eru á
Mánudögum kl 1315 til 1415
Miðvikudögun kl 1315 til 1415
Eldri fćrslur

Vefir ađildarfélaga HSV

Vefumsjón