A A A
3. október 2010 - Eyţór Bjarnason

Nýr ćfingatími

Með 5. flokki stúlkna æfa stúlkur fæddar 1999-2000.

Frá og með 4. október breytist æfingatíminn hjá öllum flokkum BÍ en við byrjum að æfa inni á þriðjudaginn.

5. og 6. flokkur stúlkna æfa saman á þriðjudögum kl. 14:20-15:20 og á sunnudögum kl. 10:00-11:00. Æfingar fara fram í íþróttahúsinu á Torfnesi.

Til viðbótar við ofantalið mun 5. flokkur stúlkna æfa með 5. flokki drengja einu sinni í viku og verður sá æfingatími kynntur fljótlega.

Stella
19. júlí 2009 -

Breyttur ćfingatími vikuna 20.-24. júlí

Á meðan fótboltabúðirnar eru í gangi er æfingatíminn annar fyrir þá krakka sem ekki eru í búðunum. Tveir flokkar æfa saman, bæði stelpur og strákar og verða æfingar á þessum tímum:

mánudagur

12.00-13.30 6.-7.flokkur Þjálfarar:  Stella og Sigþór

13.30-15.00 4.-5. flokkur Þjálfarar: Birna og Dóri

þriðjudagur

12.00-13.30 4.-5. flokkur Þjálfarar: Stella og Sigþór

13.30-15.00 6.-7. flokkur Þjálfarar: Nonni og Birna


miðvikudagur

12.00-13.30 4.-5. flokkur Þjálfarar: Birna og Sigþór

13.30-15.00 6.-7. flokkur Þjálfarar: Nonni og Dóri


fimmtudagur

12.00-13.30 6.-7. flokkur Þjálfarar: Dóri og Sigþór

13.30-15.00 4.-5. flokkur Þjálfarar: Stella og Nonni

8. júní 2009 -

Nýr ćfingatími og foreldrafundur

Nú eru æfingar á eftirfarandi tímum:
Mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11.30-13.00

Nú fer líka að líða að fyrsta leik hjá okkur. Ægir virðist ekki ætla að koma til okkar í þessari viku svo fyrstu leikirnir verða leikirnir fyrir sunnan á næstu helgi. Stefnt er að því að fara í rútu með 4.flokk kvenna á laugardagsmorgun og gista svo með þeim í félagsmiðstöðinni Bústöðum. Ekki er þó allt orðið klappað og klárt fyrir ferðina svo ég mun senda út e-mail um leið og allt er komið á hreint. Ég ætla að vera með foreldrafund á morgun þriðjudag kl. 18.00 í vallarhúsinu þar sem rætt verður um ferðina og leiki sumarsins.
1. júní 2009 -

Ćfing út í vík o.fl.

Á morgun þriðjudag ætlum við að fara út í vík og æfa með stelpunum þar, ég reikna með að það þurfi um 3-4 bíla til að koma þeim út eftir. Ég verð á bíl svo ég þarf 2 eða 3 foreldra til að skutla og 2 eða 3 til að sækja. Best væri ef þið gætuð sent mér meil og látið vita hvort stelpurnar mæta á morgun og hvort þið getið skutlað eða sótt (eða bæði). Æfingin verður kl. 15-16.30 svo best er að hittast hjá íþróttahúsinu á Torfnesi og fara þaðan kl. korter í 3.

Eins þarf ég að fá að vita hvaða stelpur verða heima um næstu helgi og geta tekið þátt í fyrsta leiknum. Það er ekki komið á hreint hvort hann verður á laugardag eða sunnudag en ég læt ykkur vita um leið og ég hef heyrt frá þeim í Ægi.

Að lokum minni ég á dósasöfnunina annað kvöld og löndun á næstu helgi. Sigurrós og Harpa sendu miða heim af æfingu á föstudaginn svo það ættu allir að hafa fengið upplýsingar um það en ef ekki þá er hægt að hringja í þær og fá frekari upplýsingar.
18. maí 2009 -

Foreldrafundur, önnur tilraun.

Ég vona að allir muni eftir foreldrafundinum í kvöld klukkan 20.00 í vallarhúsinu.

Rætt verður um fjáröflun, ferðir og sumarið. Hver ferð getur kostað um 15.000 krónur á mann og það er því nauðsynlegt að fara að drífa í fjáröflun. 

Mikilvægt að allir mæti.

11. maí 2009 -

Foreldrafundur og breyttir ćfingatímar

Ég vil minna á foreldrafundinn á morgun, þriðjudag, klukkan 18.00 í vallarhúsinu á Torfnesi. Við ætlum að ræða um sumarið, leiki, ferðir, fjáröflun og annað sem þarf til að sumarið gangi sem best. Það er því mikilvægt að allir reyni að mæta.

Einnig vil ég benda á smá breytingu á æfingartímunum. Æfingarnar næstu vikurnar verða á eftirfarandi tímum:
Þriðjudaga kl. 15.00-16.30
Miðvikudaga kl.14.30-16.00
Föstudaga kl. 14.30-16.00
4. maí 2009 -

Ćfingum fjölgar og fćrast út

Nú ætlum við loksins að fara að æfa úti og hafa fleiri æfingar í viku.
Til að byrja með ætlum við að hafa æfingarnar svona:
Mánudaga kl. 15-16.30
Þriðjudaga kl.15-16.30
Fimmtudaga kl.15-16.30
Allar æfingarnar eru á Torfnesi og er fyrsta útiæfingi mánudaginn 11.maí.
Við munum svo fjölga æfingunum í fjórar þegar skólanum fer að ljúka og nær dregur sumri.
Ég vill biðja alla um að fylgjast vel með hér á síðunni, hér mun ég setja inn tilkynningar um breytingar á æfingum, fundi, uppákomur og fréttir.

Eldri fćrslur

Vefir ađildarfélaga HSV

Vefumsjón