A A A
3. október 2010 - Eyžór Bjarnason

Nżr ęfingatķmi

Með 6. flokki stúlkna æfa stúlkur fæddar 2001-2002.

Frá og með 4. október breytist æfingatíminn hjá öllum flokkum BÍ en við byrjum að æfa inni á þriðjudaginn.

5. og 6. flokkur stúlkna æfa saman á þriðjudögum kl. 14:20-15:20 og á sunnudögum kl. 10:00-11:00. Æfingar fara fram í íþróttahúsinu á Torfnesi.

Til viðbótar við ofantalið mun 5. flokkur stúlkna æfa með 5. flokki drengja einu sinni í viku og verður sá æfingatími kynntur fljótlega.

Stella
26. september 2010 - Eyžór Bjarnason

Kvikmyndasżning į žrišjudaginn frh...

Þar sem við náðum ekki að klára myndina á fimmtudaginn, gerum við aðra tilraun á þriðjudaginn (28/9).  Strax eftir æfingu förum við niður í sundhöll og horfum á barnfóstrumyndina á efri hæðinni eins og síðast.  Þessu lýkur kl. 17:45.

Ath!  Þið megið koma með hollt nesti með ykkur, t.d. ávexti, grænmeti og safa eða vatn.

Stella

21. september 2010 - Eyžór Bjarnason

Pizza og kvikmynd į fimmtudaginn ...

Fimmtudaginn 23. september verður pizzuveisla og videó fyrir 5. og 6. flokk stúlkna.  Eftir æfingu á fimmtudag förum við niður í sundhöll en á efri hæðinni er aðstaða fyrir íþróttafélögin í bænum til að hittast.  Þessu lýkur öllu saman kl. 19:30.
Kostnaður á hverja stúlku er 500 kr, þið komið sjálfar með gos eða safa að drekka.

Stella
6. september 2010 - Eyžór Bjarnason

5. flokkur stślkna ęfir meš 5. flokki drengja...

Eins og áður hefur komið fram verða sameiginlegar æfingar hjá 5. og 6. flokki stúlkna í vetur.  Æfingar eru 3x í viku í september.  Þær stúlkur í 5. flokki stúlkna (1999-2000) sem lengst eru komnar eiga þess kost að æfa með 5. flokki drengja á þriðjudögum kl.14:30 undir stjórn Atla Rúnarssonar. 

Stella
29. įgśst 2010 - Eyžór Bjarnason

Nżr ęfingatķmi

Mánudaginn 30. ágúst tekur ný æfingatafla gildi en hún gildir út september.  Æfingar færast inn í október og þá munu æfingatímar breytast aftur.  5. og 6. flokkur stúlkna æfa saman í vetur.

Æfingar 30. ágúst - 30. september:
ÞRI   15:00-16:10
MIР 16:00-17:10
FIM   16:00-17:10

Stella
22. įgśst 2010 - Eyžór Bjarnason

Markmannsžjįlfari mętti į ęfingu

Stelpurnar įsamt Jakobi
Stelpurnar įsamt Jakobi
« 1 af 2 »
VIð fengum góða heimsókn á æfingu s.l. miðvikudag en þá mætti Jakob pabbi hennar Ásthildar.  Tilgangurinn var að bjóða markmönnum liðsins upp á sérþjálfun.  Markmönnum liðsins fjölgaði óvænt á þessari æfingu en flestar stelpurnar sögðust vilja æfa mark.  Æfingin gekk frábærlega og í lokin stilltu stelpurnar sér upp með Jakobi.

Takk fyrir góða tilsögn Jakob :-)

Stella
22. įgśst 2010 - Eyžór Bjarnason

Ęfingar 23. - 29. įgśst

Æfingar í næstu viku verða mán.-fim. kl.17:00-18:20 á gervigrasvellinum á Torfnesi.

Stella
16. įgśst 2010 - Eyžór Bjarnason

Ęfingar ķ žessari viku

Næstu æfingar verða á þri. mið. og fim. á gervigrasvellinum á Torfnesi.  Æfingatími: 17:00-18:20.
Ég endurskoða æfingatímann í vikulok.  Það lítur þó út fyrir að ég haldi þessum tíma út ágúst.

Stella
12. įgśst 2010 - Eyžór Bjarnason

Nęsta ęfing

Næsta æfing verður mánudaginn 16. ágúst kl.17:00-18:20 á grasvellinum í Tunguhverfi.  Mætið með nýju boltana ykkar vel merkta.

Ís í boði eftir æfingu ;-)

Stella
12. įgśst 2010 - Eyžór Bjarnason

Frįbęrt Pęjumót

Stelpurnar tóku þátt í Pæjumótinu á Siglufirði um síðustu helgi og gerðu góða ferð norður.  Við tefldum fram tveimur liðum í 6. flokki þ.e. B og C.  Hópurinn stóð sig frábærlega, stelpurnar í C liðinu voru flestar að taka þátt í sínu fyrsta Pæjumóti og eru reynslunni ríkari eftir helgina.  Þær uxu með hverjum leik og það var ánægjulegt að sjá hve miklum framförum þær hafa tekið í sumar.  B liðið stóð líka í ströngu en það einkenndi flesta leiki hjá stelpunum að þeir voru gríðarlega jafnir og allt í járnum fram á síðustu mínútu.  B liðið komst í úrslitaleikinn en varð að lúta í lægra haldi fyrir Stjörnunni þrátt fyrir góðan leik.  Frábær árangur hjá stelpunum okkar.

Það sem einkenndi hópinn okkar var gleði, baráttuandi og samstaða.  Það var alveg sama hvar við vorum; á leikvellinum, í matsalnum, í sundi, á kvöldvöku ... stelpurnar sýndu fyrirmyndar framkomu.  Það er bjart framundan hjá okkur og vonandi halda allar stelpurnar áfram að æfa af krafti í vetur og koma þá enn betur undirbúnar næsta sumar.

Ég vil þakka ykkur stelpur fyrir samveruna á Siglufirði, þið eruð frábærar og það eru gaman að þjálfa svona duglegar og jákvæðar stelpur :-)

Foreldrar eiga líka lof skilið fyrir sinn þátt en við vorum með gríðarlega öflugt stuðningslið sem hvatti okkur óspart áfram.  Vonandi sjá enn fleiri foreldrar sér fært að mæta á Pæjumótið 2011.

ÁFRAM BÍ!!!

Stella
Fyrri sķša
1
234Nęsta sķša
Sķša 1 af 4
Eldri fęrslur

Vefir ašildarfélaga HSV

Vefumsjón