Žjįlfunarmarkmiš 8. flokks
Þjálfun 8. flokks gengur öll út á að hér er yfirleitt um fyrst snertingu barnanna við fótbolta. Hugsað er mest um að venja börnin við boltann og einskorðast það ekki við boltanotkun með fótum, heldur eru þau látin rúlla, henda, skalla létt með miklu leikívafi.
Hefðbundin æfing gæti verið svona:
- Upphitun með hlaupaleikjum, eltingaleik, stórfiskaleik þannig að um sé að ræða hlaup með stefnubreytingum.
- léttar boltaæfingar, kasta upp í loft og grípa, kasta í vegg og grípa, kasta bolta og klappa áður en hann er gripinn, rúlla bolta kringum sig sitjandi á gólfi, færsla milli handa og aftur fyrir bak, léttar sendingaæfingar tveir og tveir saman, skotæfingar úr kyrrstöðu eða á hreyfingu, móttaka léttrar sendingar.
- fótboltaleikur ca 10 mínútur.
Ekki er hvatt til keppni á þessu stigi, heldur reynt að hvetja til líðsmyndunar og tilfinningu fyrir því að vera hluti af heild og hve mikilvægt er að liðið skipti meira máli einstaklingurinn.