A A A

Atburđir

« Febrúar »
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
7. desember 2009 - Kristján Kristjánsson

Arna Sigríđur skíđar í Ameríku

Þessa dagana er Ísfirðingurinn Arna Sigríður Albertsdóttir, ásamt stöllu sinni og fylgdarmönnum þeirra, á skíðum í Winter Park í Colorado. Þær stöllur eru með bloggsíðu þar sem lesa má um ævintýri þeirra og skoða myndir. Slóð síðunnar er: http://kristinogarna.bloggar.is 

7. desember 2009 - Kristján Kristjánsson

Frábćr árangur hjá sundfólki íţróttafélagsins Ívars.

Tveir þátttakendur, þær Ragney Líf Stefánsdóttir og Kristín Þorsteinsdóttir fóru á vegum íþróttafélagsins Ívars og kepptu á  Íslandsmóti ÍF í sundi í 25 metra laug. Það er óhætt að segja að árangurinn hafi verið glæsilegur og fengu þær 10 verðlaunapeninga og Ragney Líf setti 2 Íslandsmet. Ragney bætti 9 ára gamalt Íslandsmet í 50 metra skriðsundi um þriðjung úr sekúndu. Einnig setti hún Íslandmet í 50 metra bringusundi og bætti metið um rúmar 2 sekúndur. Kristín vann 1 gull, 2 silfur og 1 brons

Ragney keppti í 6 greinum og vann þær allar. Hún keppti í eftirfarandi greinum.

50 skrið: 35,20    ÍSLANDSMET!
50 bak: 46,58
100 bringa: 1.53,29
100 skrið: 1.18,63
50 bringa: 48,79    ÍSLANDSMET!
200 skrið: 3.01,05

Kristín keppti í 5 greinum og fék 1 gull, 2 silfur og 1 brons. Hún keppti í eftirfarandi greinum:

50 skrið: 40,73 
50 bak: 48,84
100 skrið: 1.32,09 
50 bringa: 58,48
200 skrið: 3.20,14
7. desember 2009 - Kristján Kristjánsson

Verkefnasjóđur HSV

Héraðssamband Vestfirðinga auglýsir eftir umsóknum í verkefnasjóð sambandsins. Samkvæmt reglugerð sjóðsins er honum ætlað að styrkja útbreiðslu og átaksverkefni í íþróttastarfi í Ísafjarðarbæ. Styrkveitingum er ætlað að efla íþróttastarf í sveitarfélaginu og auka aðgengi að einstökum íþróttagreinum.

 

 

Umsóknarfrestur er til 20. desember 2009

 

Vakin er sérstök áhersla á reglugerð sjóðssins sem finna má á heimasíðu HSV www.hsv.is . Þar undir „Um HSV" og þar í verkefnasjóður. 

 

Sjóðurinn styrkir ekki: mannvirkjagerð, áhaldakaup, keppnisferðir eða uppskeruhátíðir.

 

 

Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdarstjóri HSV Kristján Þór Kristjánsson   í síma: 861-4668 eða í tölvupósti: hsv@hsv.is

 

3. desember 2009 - Kristján Kristjánsson

KFÍ-ÍR keppa í 16 liđa úrslitum Subway-bikarsins á Sunnudagskvöld

KFÍ-ÍR keppa í 16 liða úrslitum Subway-bikarsins á Sunnudagskvöld.  Leikurinn hefst kl 19:15 og hvetjum við alla til að mæta og hvetja leikmenn KFÍ á móti úrvalsdeildarliði ÍR.  Frekari upplýsingar eru á heimasíðu KFÍ www.kfi.is
3. desember 2009 - Kristján Kristjánsson

Velheppnađ Jólamót Skells.

Hurðaskellur, jólamót blakfélagsins Skells var haldið í íþróttahúsinu Torfnesi s.l. laugardaginn 28. Nóvember.  Góð þátttaka var bæði í krakka og fullorðinsflokki og kepptu um 60 blakarar á mótinu.


Myndir frá mótinu eru komnar inn á myndasíðuna á heimasíðu Skells www.hsv.is/skellur

3. desember 2009 - Kristján Kristjánsson

Matti Villa stođsendingakóngur 2009

Matthías Vilhjálmsson leikmaður Íslandsmeistara FH lagði upp flest mörk í Pepsi deildinni í sumar.  Þetta var tilkynnt á kynningarhófi bókarinn íslensk knattspyrna 2009 í höfuðstöðvum KSÍ í gær.  Matthías lagði upp 11 mörk fyrir félaga sína og skoraði auk þess 10 mörk sjálfur.  Eins og flestum er kunnugt þá er Matthías Ísfirðingur og uppalinn hjá Boltafélagi Ísafjarðar.  HSV óskar Matta til hamingju með árangurinn í sumar.
2. desember 2009 - Kristján Kristjánsson

Inniţríţraut haldin á laugardaginn.

Inniþríþraut á vegum íþróttahópsins Þrír-Vest og líkamsræktarstöðvarinnar Stúdíó Dan verður haldin á Ísafirði á laugardag. Upprunalega átti þríþrautin að fara fram laugardaginn 7. nóvember en var frestað. Allir krakkar 13-18 ára hafa þátttökurétt (fæddir 1991-1996). Syntir verða 400 metrar í Sundhöll Ísafjarðar og verður gert smá hlé eftir sundið. Síðan verður haldið í Stúdíó Dan þar sem að hjólaðir verða 10 km á þrekhjólum og strax að því loknu verður farið beint á hlaupabrettið þar sem hlaupnir verða 2,5 km.
18. nóvember 2009 - Kristján Kristjánsson

11.flokkur KFÍ fór upp í A-riđil

11. flokkur KFÍ gerði sér lítið fyrir og vann alla leiki sína í fjölliðamótinu sem haldið var í Bolungarvík um helgina.  Þetta þýðir að strákarnir eru meðal fimm bestu bestu liða landsins í dag og keppa í A-riðli í næsta fjölliðamóti.  Frábær árangur hjá strákunum.  Mikið er um að vera hjá KFÍ þessa dagana og hafa margir flokkar hjá þeim verið að keppa undanfarnar vikur.  KFÍ menn eru með flotta heimasíður og eru til fyrirmyndar í fréttaflutningi á síðunni. Þeir sem vilja fræðast um starfið hjá þeim og skoða úrslit hjá flokkunum og frekari fréttir af starfinu endilega kíkið á heimasíðu þeirra www.kfi.is
18. nóvember 2009 - Kristján Kristjánsson

KFÍ styrkir fjölskylduhjálp Ísafjarđarkirkju

Allur ágóði af leik KFÍ og Hattar frá Egilsstöðum í íþróttahúsinu á Torfnesi á föstudag mun renna óskertur til fjölskylduhjálpar Ísafjarðarkirkju. „Við höfum fundið fyrir velvilja í okkar garð í samfélaginu í haust og viljum með þessu móti gefa eitthvað til baka," segir Ingólfur Þorleifsson, formaður Körfuknattleiksfélags Ísafjarðar. Stjórn KFÍ ákvað í samstarfi við Landsbankann að leggja fjölskylduhjálpinni lið með þessum hætti. „Við viljum hvetja alla sem vettlingi geta valdið að skella sér á leikinn og láta gott af sér leiða. Við vonumst til þess að geta fyllt húsið. Verðið verður ekki bundið við fast miðaverð heldur má fólk borga eins lítið og mikið og það vill og getur", segir Guðjón Már Þorsteinsson, meðstjórnandi og íþróttafulltrúi KFÍ.

Aðstandendur KFÍ hvetja önnur félög alls staðar af landinu að fylgja fordæmi þeirra. „Við erum ekki að fara fram á félög láti endilega ágóða af í! þróttaleikjum renna til góðgerða, en við hvetjum félög til að líta í kringum sig og athuga hvort þeir geta ekki látið gott af sér leiða, oft þarf mun minna til en maður heldur," segir Guðjón. Leikurinn fer fram á föstudagskvöld klukkan 19.15. KFÍ tekst síðan aftur á við Hött á laugardag.

29. október 2009 - Kristján Kristjánsson

Sundátak Vestra og Ísafjarđarbćjar

 Sundfélagið Vestri og Ísafjarðabær taka saman höndum og bjóða upp á sundkennslu fyrir almenning á Ísafirði. Tilgangurinn er að efla sundmenningu í bæjarfélaginu með því að auka almenna þátttöku í íþróttinni.

Einnig verða sundgestir hvattir til aukinnar iðkunar með því að skrá sundferðir sínar hjá starfsfólki sundhallarinnar sem mun halda utan um ferðarfjölda þátttakenda. Viðurkenningar verða veittar þegar 12km, 25km, 50km og 100km er náð.

 

Átakið hefst þann 3. nóvember og verður leiðsögn á þriðjudögum kl.19:00-19:40

miðvikudögum og föstudögum kl. 06:45-07:45

 

Þáttakendur skrái sig hjá Margréti Eyjólfsdóttur í síma 867-7745

eða í afgreiðslu Sundhallar Ísafjarðar.

Eldri fćrslur

Vefir ađildarfélaga

Fréttir ađildarfélaga

Vefumsjón