A A A

Atburđir

« Febrúar »
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
14. september 2009 - Kristján Kristjánsson

Dómaranámskeiđ í Blaki

Dómaranámskeið í blaki á vegum Blaksamband Íslands í samvinnu við Blakfélagið Skell verður haldið miðvikudagskvöldið
16.september  n.k.  Námskeiðið hefst kl.18:10 í Skólagötu 10 en síðan lýkur því með verklegri æfingu og prófi til héraðsdómara í Íþróttahúsinu á Torfnesi síðar um kvöldið.

Kennari á námskeiðinu er Sævar Guðmundsson landsdómari og framkvæmdastjóri BLÍ.

Hægt er að skrá sig á námskeiðið og fá frekari upplýsingar með því að senda tölvupóst til Ásdísar á netfangið asdisbirna@simnet.is eða hafa samband í síma 862 6561

10. september 2009 - Kristján Kristjánsson

Íţróttasjóđur menntamálaráđuneytisins

Styrkir úr Íþróttasjóði


Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði sem starfar samkvæmt íþróttalögum nr. 64/1998, sbr. reglugerð nr. 803/2008. Veita má framlög til eftirfarandi verkefna á sviði íþrótta:

  • Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana.
  • Útbreiðslu- og fræðsluverkefna.
  • Íþróttarannsókna.
  • Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi.
Eyðublöð má finna á http://umsoknir.menntamalaraduneyti.is/

Sækja þarf um aðgang að umsóknavef ráðuneytisins. Aðgengi er einungis gefið á kennitölur og er lykilorð sent til viðkomandi á netfang sem gefið er upp við nýskráningu.

Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar.
Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja menntamálaráðuneytið undir flipanum Umsóknir. Þar er umsóknareyðublað fyrir íþróttasjóð. Svæði merkt rauðri stjörnu verður að fylla út. Umsækjendur geta fylgst með afgreiðslu umsókna sinna með því skrá sig inn á umsóknavefinn.
Nánari upplýsingar veitir Valgerður Þórunn Bjarnadóttir í síma 545 9500 eða í tölvupósti á valgerdur.thorunn.bjarnadottir@mrn.stjr.is.

Umsóknarfrestur er til 1. október 2009.

7. september 2009 - Kristján Kristjánsson

Verkefnasjóđur HSV

  

Héraðssamband Vestfirðinga auglýsir eftir umsóknum í verkefnasjóð sambandsins. Samkvæmt reglugerð sjóðsins er honum ætlað að styrkja útbreiðslu og átaksverkefni í íþróttastarfi í Ísafjarðarbæ. Styrkveitingum er ætlað að efla íþróttastarf í sveitarfélaginu og auka aðgengi að einstökum íþróttagreinum.

 

 

Umsóknarfrestur er til 18. september 2009

 

Vakin er sérstök áhersla á reglugerð sjóðssins sem finna má á heimasíðu HSV www.hsv.is . Þar undir „Um HSV" og þar í verkefnasjóður. 

 

Sjóðurinn styrkir ekki: mannvirkjagerð, áhaldakaup, keppnisferðir eða uppskeruhátíðir.

 

 

Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdarstjóri HSV Kristján Þór Kristjánsson   í síma: 861-4668 eða í tölvupósti: hsv@hsv.is

 

27. júlí 2009 - Jón Páll Hreinsson

Tilkynning til landsmótsfara frá HSV


HSV mun greiða mótsgjöldin fyrir alla þátttakendur. Þátttökugjaldiðí ár er kr. 6.000 en HSV mun niðurgreiða kr. 3.000 pr. þátttakanda. Þetta þýðir að hver og einn þarf að greiða sinn hlut til HSV. Eru landsmótsfarar vinsamlegast beðnir um að millifæra kr. 3.000 inn á reikning
556-14-602395
490500-3160

Enn er opið fyrir skráningar, en í dag 27.júlí er þó síðasti dagur! Allir hvattir til að drífa sig á landsmót, frábær fjölskylduskemmtun.

19. júlí 2009 - Kristján Kristjánsson

Frí framkvćmdarstjóra

Framkvæmdarstjóri HSV verður í frí frá mánudeginum 20.júlí og til 5.ágúst.  Ef um áríðandi atriði eru að ræða þá er hægt að hafa samband við formann HSV Jón Pál Hreinsson í síma 8994311 og í tölvupósti jonpall@westfjords.is
Ef fyrirspurnig tengjast Unglingalandsmóti UMFÍ þá sér Guðni Guðnason alfarið um það og er hægt að ná í hann í síma 6605094 og í tölvupóst gudnig@vis.is .
16. júlí 2009 - Kristján Kristjánsson

Unglingalandsmót UMFÍ á Sauđárkróki

HSV mun fara á Unglingalandsmót UMFÍ sem haldin er um verslunarmannahelgina.  Landsmótið er haldið á Sauðárkróki og verður 12. Unglingalandsmót UMFÍ.  Unglingalandsmót er góð blanda af fjölbreyttri íþróttakeppni og annarri heilbrigðri afþreyingu fyrir ung fólk.  Lögð er áhersla á fjöldskylduvænt umhverfi þar sem þátttakendur okkar á aldrinum 11-18 ára eru í fyrirrúmi. Unglingalandsmót er vímulaus hátíð.

Nú taka allir stefnuna á Sauðárkrók um verslunarmannahelgina.  Unglingalandsmótin eru góð blanda af fjölbreyttri íþróttakeppni og annarri heilbrigðri afþreyingu fyrir ungt fólk. Lögð er áhersla á fjölskylduvænt umhverfi þar sem þátttakendur okkar á aldrinum 11-18 ára eru í fyrirrúmi.

Unglingalandsmótin hafa sýnt svo ekki verður um villst að það er lítill vandi að skemmta sér án vímuefna.  Sauðárkrókur er svo sannarlega staður sem vert er að heimsækja. Um verslunarmannahelgina mun hann iða af lífi ungmenna og fjölskyldna þeirra.

 

HSV mun sjá um að skrá keppendur til leiks og mun HSV greiða helming af keppnisgjöldum fyrir keppendur, keppnisgjaldið er 6000 kr, sem þýðir að HSV greiðir 3000 kr fyrir hvern keppanda og keppandinn 3000 kr. Keppandur þurfa að skrá sig og vera búinn að greiða HSV sitt gjald fyrir 25.júlí.   Skipuleggjandi og yfirfararstjóri HSV verður Guðni Guðnason og tekur hann við skráningum í tölvupóstfang guðnig@vis.is  og í síma 6605094, best er að senda honum tölvupóst. Upplýsingar sem þurfa að koma fram þar eru nafn og kennitala keppanda, keppnisgrein/ar keppanda, nafn, sími og tölvupóstfang foreldra/forráðarmanns.  Allar upplýsingar um keppnina er á heimasíðu Unglingalandsmótsins www.umfi.is/unglingalandsmot .

 

Eftirfarandi eru keppnisgreinar mótsins.

 

Frjálsíþróttir

Knattspyrna

Körfubolti

Sund

Skák

Glíma

Golf

Hestaíþróttir

Motocross. 

24. júní 2009 - Kristján Kristjánsson

Knattspyrnuskóli Íslans á Ţingeyri

 

 Knattspyrnuskóli Íslands verður haldinn á ÞINGEYRI

8. - 12. júlí, 2009

 

 Hvar:  Á Þingeyri við Dýrafjörð.

Hvenær:  8. - 12. júlí 2009.

Fyrir hverja: Alla knattspyrnuiðkendur, stráka og stelpur, sem eru 11 - 17 ára, þ.e. fædd 1992-1998, sem eru: 3., 4. og 5. flokkur og yngsta ár í 2. flokki.

Tilgangur:  Bjóða knattspyrnuiðkendum á Vestfjörðum upp á úrvals knattspyrnuskóla á svæðinu. Í skólanum er kennd tækni, taktík og gildi rétts hugarfars.

Skólasetning: Miðvikuudaginn 8. júlí kl. 14:00 í Grunnskólanum á Þingeyri. Skráning/mæting kl. 12:00 - 13:30 þann sama dag.

Skólaslit: Sunnudaginn 12. júlí kl. 14:00

Kennarar: Reyndir þjálfarar & íþróttakennarar

Sérstakir gestir: Nánar auglýst síðar.

Skólastjóri: Bjarni Stefán Konráðsson, íþróttafræðingur og knattspyrnuþjálfari.

Skráning og uppl.:   Bjarni Stefán, s. 695-4504 og bjarnist@mr.is, Sigmundur, s. 863-4235 og sigmfth@simnet.is

Verð: 16.900.- krónur. Systkinaafsláttur 4.000.- krónur.

Innifalið: Sjö æfingar og knattspyrnumót • fullt fæði og húsnæði (svefnpokagisting í Grunnskólanum) • peysa, bakpoki, þátttökupeningur, fótbolti, frítt í sund, hæfileikakeppni o.fl. • fræðsla fagmanna um knattspyrnuleg málefni • örugg gæsla allan sólarhringinn.

23. júní 2009 - Kristján Kristjánsson

Landsmót á Akureyri 2009

Lokaskráningardagur fyrir Landsmót á Akureyri er 29. júní næstkomandi.  Það er því ekki eftir neinu að bíða en að fara að að skrá sig til leiks og er það gert hjá framkvæmdarstjóra HSV í netfang hsv@hsv.is eða í síma 861-4668.  Nú þegar eru búinn að skrá sig til leiks fimm lið í blaki, körfubolta, fótbolta og Bridds.  Ekki hefur verið mikið um skráningar í einstaklingsgreinar en það er nægur tími til stefnu.  HSV heldur á morgun miðvikudaginn 24. júní opinn fund um Landsmótsferðina og verður fundurinn kl 18:00 í íþróttahúsinu Torfnesi.  Þar er hægt að nálgast upplýsingar um keppnisgreinar, dagskrá og einnig verður hægt að skrá sig til keppni.  HSV hvetur alla sem hafa hug á og langar að fara á landsmót að mæta á fundinn.   Allar upplýsingar um mótið er einnig að finna á heimasíður mótsins www.umfi.is/landsmot .  Allir geta fundið sér eitthverja grein við hæfi þar sem keppt er bæði í íþróttagreinum sem og starfsgreinum.

23. júní 2009 - Kristján Kristjánsson

Strandblak námskeiđ og Vestfjarđamót

Íþróttafélagið Höfrungur á Þingeyri mun um næstu helgi 26.-28. júní halda viðamikið og glæsilegt námskeið í strandblaki í samstarfi við strandblak.is.  Í beinu framhaldi af námskeiðinu og kennslunni mun verða haldið fyrsta Vestfjarðamótið í strandblaki.

Karl Sigurðsson reyndur leiðbeinandi frá Strandblak.is hefur yfirumsjón með námskeiðinu.  Hann er einn af frumkvöðlum strandblaks á Íslandi og hefur meðal annars keppt fyrir hönd Íslands í strandblaki erlendis.  Við hjá Höfrungi teljum okkur vera virkilega lánssöm að fá Karl vestur til þess að kenna þessa skemmtilegu íþrótt á okkar glæsilegu völlum við íþróttamiðstöðina á Þingeyri.

Kjörið er fyrir alla fjölskylduna að koma á svæðið og tjalda á tjaldsvæðinu sem er stutt frá strandblaksvöllunum

 

Dagskrá helgarinnar verður sem hér segir:

 

Föstudagurinn 26. júní              19:00-21:00

Farið yfir grunn hugmyndina með strandblaki, farið yfir helstu reglur, grunntækni í boltameðferð strandblaksins kennd og leyft að prófa.

 

Laugardagurinn 27. Júní       10:00 - 13:30 byrjendur og unglingar.

14:30 - 18:00 fólk með smá reynslu.

Framhald af því sem kennt hafði verið á föstudeginum og reynt að auka við færni þátttakennda á markvissan hátt.

 

Sunnudagurinn 28. júní                  09:00 - ? Vestfjarðamót í blaki

Keppt verður í karla og kvennaflokki, byrjendur munu keppa í svokölluðum trimmhóp (þrír saman) þannig að allir ættu að geta haft gaman af því að vera með.

 

Verð er krónur 4000 á mann og greiðist við upphaf námskeiðs

Áhugasömum er bent á að skrá sig hjá Eyrúnu Hörpu á eyrunharpa@simnet.is og síma 456-8475

18. júní 2009 - Kristján Kristjánsson

Frjálsar íţróttir - Ćfingar

Boðið verður upp á æfingar í frjálsum íþróttum í sumar. Það er Jón Halldór Oddsson sem mun sjá um æfingarnar sem fara fram á Torfnesvelli mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá kl. 12-13 fyrir 10-13 ára og mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18:30 fyrir 14 ára og eldri. Stefnt verður að þátttöku á Unglingalandsmóti Íslands á Sauðárkróki um verslunarmanna-

helgina. Verð fyrir sumarið er 10.000 krónur.

Eldri fćrslur

Vefir ađildarfélaga

Fréttir ađildarfélaga

Vefumsjón