A A A

Atburđir

« Maí »
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
30. október 2008 - Kristján Kristjánsson

Frístundamiđstöđ/ungmennahús opnar

Frístundamiðstöð/ungmennahús verður opnað að Skólagötu 10 á Ísafirði föstudaginn 31. október næstkomandi og gefst bæjarbúum kostur á að koma og skoða húsið milli kl. 16 og 18.

Opið verður fyrir 16 ára og eldri á mánudögum og miðvikudögum milli kl. 20 og 23 fyrst um sinn, frá og með 3. nóvember.

Margvíslegt starf verður í húsinu en auk hefðbundinnar starfsemi ungmennahússins geta íþróttafélög- og önnur félög sem vinna að uppbyggilegu ungmennastarfi fengið aðstöðu í húsinu. Áhugasömum er bent á að hafa samband á fristund@isafjordur.is

Varla þarf að taka það fram að húsið verður algjörlega tóbaks- og vímuefnalaust

HSV hvetur alla til að mæta á föstudaginn og skoða húsið og kynna sér mögulega starfssemi í húsinu.

30. október 2008 - Kristján Kristjánsson

Körfuboltahelgi

Það verður svo sannarlega körfuboltahátíð á Torfnesi um helgina. Hún hefst á föstudagskvöld þegar meistaraflokkur fær Valsmenn í heimsókn klukkan 19.15.

Á laugardag eigast svo sömu lið við í unglingaflokki 16-20 ára, sá leikur hefst klukkan 12 á hádegi. Einnig er fjölliðamót hjá 11 flokki sem eru 14-16 ára strákarnir okkar sem unnu sig upp í a-riðil á Akureyri um daginn. Þar má vafalaust sjá skemmtileg tilþrif. Þetta mót er í gangi laugardag og sunnudag.

16. október 2008 - Kristján Kristjánsson

Uppskeruhátíđ BÍ88

Uppskeruhátíð Boltafélags Ísafjarðar var haldin laugardaginn 11. október sl. í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Var mæting afskaplega góð eða vel á þriðja hundrað manns sem fylgdust með verðlaunaafhendingu fyrir liðið keppnistímabil auk þess sem gestir gæddu sér á ljúffengu kaffibrauði sem foreldrar í fótboltahreyfingunni buðu hverjir öðrum. Myndir frá tímabilinu voru sýndar á stóru tjaldi hússins og vöktu hrifningu og kátínu viðstaddra enda er einbeitingin ekki alltaf fögur. Formaðurinn hélt stutta tölu um liðið fótboltaár við mikla hrifningu enda var hljóðkerfið eitthvað klikkað svo að hann hljómaði eins og niðursoðin teiknimyndafígúra. Var stjórnendum félagsins efst í huga þakklæti til krakkanna og foreldra þeirra fyrir það frábæra starf sem þau hafa unnið, krakkarnir við æfingar og keppni og foreldrarnir við undirbúning og aðstoð við rekstur félagsins og framkvæmd á öllum þeim verkum sem þarf að vinna hjá stóru félagi.
Og starfið þetta árið var viðamikið. 2., 4., 5. og 6. flokkur drengja og 2., 3. og 4. flokkur stúlkna tóku þátt í Íslandsmótum KSÍ og voru þar allir flokkar nema 6. flokkur drengja að spila í deildakeppni, þ.e. spilaðir eru heima- og útileikir með tilheyrandi ferðalögum og tilkostnaði. 4., 5., 6. og 7. flokkur stúlkna tóku síðan þátt í Pæjumóti á Siglufirði á meðan strákarnir kepptu á Króksmóti á Sauðárkróki og Sparisjóðsmótinu í Borgarnesi þar sem stelpurnar voru margar hverjar með í för og gáfu strákunum ekkert eftir. Það er því erfitt verk hjá þjálfurunum að velja þá sem skara framúr á hverju tímabili en þá eru veitt verðlaun fyrir prúðmennsku, ástundun og framfarir í hverjum flokki fyrir sig.

Verðlaunahafar voru þessir:

3. flokkur karla:

Prúðmennska: Þorgeir Jónsson

Ástundun: Emil Pálsson

Framfarir: Axel Sveinsson

 

3. flokkur kvenna:

Ástundun: Klara Dís Gunnarsdóttir

Framfarir: Margrét Regína Grétarsdóttir

Prúðmennska: Ásdís Rún Ólafsdóttir

 

4. flokkur karla:

Prúðmennska: Bjarni Maron Magnússon

Ástundun: Hinrik Elís Jónsson

Framfarir: Andrés Hjörvar Sigurðsson

 

4. flokkur kvenna:

Prúðmennska: Hildur Hálfdánardóttir

Ástundun: Margrét Helga Haraldsdóttir Ísaksen

Framfarir: Lára Margrét Gísladóttir

 

5. flokkur karla:

Prúðmennska: Daníel Agnar Ásgeirsson

Ástundun: Gísli Rafnsson

Framfarir: Þorbergur Haraldsson

 

5. flokkur kvenna:

Prúðmennska: Lovísa Ósk Halldórsdóttir

Ástundun: Sara Rut Snorradóttir

Framfarir: Rósa Överby

 

6. flokkur karla

Prúðmennska: Jens Ingvar Gíslason Hjalti Hermann Gíslason

Ástundun: Sigurður Hannesson Dagur Benediktsson

Framfarir: Gísli Jörgen Gíslason Friðrik Þórir Hjaltason

 

6. flokkur kvenna:

Prúðmennska: Natalía Kaja Fjölnisdóttir

Ástundun: Kolfinna Brá Ewa Einarsdóttir

Framfarir: Aldís Huld Höskuldsdóttir

 

7. flokkur karla:

Prúðmennska: Magnús Þórir Þorsteinsson

Ástundun: Ívar Tumi Tumason

Framfarir: Birkir Eydal

 

7. flokkur kvenna:

Prúðmennska: María Björg Fjölnisdóttir

Ástundun: Auður Líf Benediktsdóttir

Framfarir: Jóhanna Ósk Gísladóttir

 

8. flokkur drengja:

Prúðmennska: Davíð Hjaltason

Ástundun: Ásgeir Óli Kristjánsson

Framfarir: Guðmundur Arnar Svavarsson

 

8. flokkur stúlkna:

Prúðmennska: Linda Rós Hannesdóttir

Ástundun: Þórunn Birna Bjarnadóttir

Framfarir: Hafdís Bára Höskuldsdóttir

 

Óskum við þessum iðkendum kærlega til hamingju með árangurinn en viljum líka beina því til þeirra sem ekki fengu verðlaun í þetta skiptið, að það er engin skömm að fá ekki slík verðlaun en gleymum ekki að fótboltinn er hópíþrótt og hver einstaklingur er mikilvægur og verðmætur. Þess vegna er ekkert annað að gera en halda áfram að æfa vel, bæta sig á öllum sviðum, hlýða þjálfaranum, styðja við félaga sína og þá eiga allir möguleika á verðlaunum á næsta ári.

Boltafélagið vill að lokum þakka Straumi kærlega fyrir styrkinn á þessari hátíð en fyrirtækið gaf verðlaunin sem veitt voru.

7. október 2008 - Kristján Kristjánsson

Grunnskólamót HSV í frjálsum íţróttum

Grunnskólamót Héraðssambands Vestfirðinga í frjálsum íþróttum verður haldið á Ísafirði kl. 13 á morgun. Mótið fer fram íþróttavallarhúsinu á Torfnesi en keppnisgreinar verða; langstökk, kúluvarp, boltakast, víðavangshlaup, 60 metra hlaup og 5X60 metra boðhlaup. Halda átti mótið á föstudag en því var frestað vegna veðurs. HSV hvetur alla sem geta að mæta og hvetja börnin áfram.

6. október 2008 - Kristján Kristjánsson

Skólagata 10

Eins og við flest vitum þá hefur Ísafjarðarbær ákveðið að nýta megi húsnæðið að Skólagötu 10 sem Menningarhús. Húsnæðið er mjög mikilvægt fyrir okkur og eiga íþróttafélögin eftir að geta notað húsnæðið á margan hátt.  Nú vantar duglegar hendur til að koma húsinu í gott stand. og vonumst við til að íþróttafélögin hjálpi til við að koma því í gang. Verkstjóri verður í húsinu frá kl. 17 alla vikuna og frá kl. 10 á laugardag. Því betur sem þetta gengur því fyrr opnar húsið til notkunar.

3. október 2008 - Kristján Kristjánsson

Fyrirtćkjamót Ívars í boccia

Sunnudaginn 12 október kl 13:30 ætlar íþróttafélagið Ívar að halda hið árlega opna bocciamót í íþróttahúsinu á Torfnesi og vill bjóða öllum sem áhuga hafa að senda lið og taka þátt.
Einu skilyrðin fyrir þátttöku er að það verður að vera lið með tveimur einstaklingum. Það geta verið t.d. vinnufélagar, vinir eða fjöldskyldumeðlimir.
Veitt eru verðlaun fyrir efsta liðið og eru svo ýmis aukaverðlaun svo sem besta liðsheildin, besta hittni, bestu búningar, besta stuðningslið o.fl.
Þátttökugjald er 6000-kr. á lið, en fyrirtækjum er frjálst að greiða hærri upphæð sem styrk við félagið.

Tekið er við skráningum í síma 863-1618 og 865-4756 eða á netföngin gek@snerpa.is.is og gg@visir.is. tekið er við skráningum til kl 13:00 fimmtudaginn 9.október.

Þátttökugjald er notað sem styrkur til að senda íþróttafólk Ívars á Íslandsmót í boccia og sundi.

Þeir sem vilja kynnast boccia betur fyrir mótið eða æfa liðið eru velkomnir að koma á bocciaæfingar í næstu viku í íþróttahúsinu Torfnesi á miðvikudaginn og föstudaginn kl 17:00

Allir eru hvattir til að vera með, skemmta sér og styrkja frábært málefni í leiðinni.
23. september 2008 -

Frjálsíţróttaćfingar á Ísafirđi

Laugardaginn 20. september hefjast frjálsíþróttaæfingar í íþróttahúsinu á Torfnesi.

 

Æfingarnar eru fyrir alla krakka í 5. bekk og uppúr og eru íþróttakrakkar sem vilja bæta, hraða, stökkkraft, liðleika og snerpu sérstaklega hvött til að mæta.

 

Æfingar verða á laugardögum kl. 9:30-11:00 og fimmtudögum kl. 16:20-17:00.

 

Þjálfari verður Jón Oddsson

15. september 2008 -

Góđur árangur keppenda HSV á ULM 2008

HSV var með 31 keppenda á ULM 2008 er haldið var í Þorlákshöfn.

Árangur þeirra var góður en þeir uppskáru 16 gull, 7 silfur og brons.


Sundliðið stóð sig vel á mótinu en þar var fremst á meðal jafningja Ástrós Þóra Valsdóttir en hún vann 6 gull, 3 silfur og einn brons.


Körfuboltastrákar stóðu sig vel á mótinu en þeir voru einni körfu frá því að vera í verðlaunasæti á mótinu.


Næsta stóra mót er HSV tekur þátt í er Landsmót UMFÍ á næsta ári. Mótið verður haldið á Akureyri en þar hófst saga Landsmóta UMFÍ fyrir 100 árum.

13. september 2008 -

Íţrótta- og ćskulýđsstarf eflt

Halldór Halldórsson og Jón Páll Hreinsson undirrita samninginn
Halldór Halldórsson og Jón Páll Hreinsson undirrita samninginn

Frétt af bb.is

Ísafjarðarbær og Héraðssamband Vestfirðinga (HSV) hafa gert með sér verkefnasamning sem hefur það að markmiði að renna enn frekari stoðum undir íþrótta- og æskulýðsstarf í sveitarfélaginu.

Samningnum fylgja greiðslur upp á átta milljónir króna gegn vinnu ýmissa verkefna. Með samningnum aukast greiðslur bæjarins til HSV um tæp 170% og sér sambandið um að ráðstafa bæði fjármunum og verkefnum til aðildarfélaga sinna með tilliti til barna- og unglingastarfs þeirra.

Segja má að um tímamótasamning sé að ræða þar sem verið er að tryggja HSV í sessi sem fulltrúa íþróttafélaganna í bænum. Beinum samningum bæjarins við íþróttafélögin fækkar með honum, en fjárframlagið eykst.

Meðal þeirra verkefna sem skilgreind eru í fylgiskjali samningsins eru vinna við atburði Skíðaviku, árleg þrif á fjörum, umsjón með sparkvöllum bæjarins, þrif á rakettum og öðru drasli eftir áramót og umsjón með Fossavatnsgöngunni og Óshlíðarhlaupinu.

12. september 2008 -

Sparkvallarleikar í Ísafjarđarbć

HSV og Ísafjarðarbær efna í sumar til sparkvallarkeppni milli hverfa.  Fyrirkomulagið verður þannig að krakkar skrá liðið sitt á ákveðinn völl í hverfinu sínu.


Keppt verður innan hverfis um sæti í úrslitum og mun eitt lið í hvorum aldursflokki komast áfram á Sparkvallarleikana sem verða helgina 13.-14. september.


Flokkaskiptingin verður krakkar fæddir 1994-1996  verða  saman og krakkar fæddir 1997 og síðar verða saman. Fimm leikmenn verða inná í hverju liði en auðvitað geta liðin verið stærri.


Hverfaskiptingin verður eftirfarandi: Hnífsdalur, eyrin neðan Túngötu, efri bærinn, fjörðurinn, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri.


Skráning liða á að berast á netfangið bolti@isafjordur.is og þarf að koma fram hver er í forsvari. Þátttökulið verða birt á heimasíðu HSV 15. júlí. 

Fyrri síđa1239101112131415
16
Nćsta síđa
Síđa 16 af 16
Eldri fćrslur

Vefir ađildarfélaga

Fréttir ađildarfélaga

Vefumsjón