A A A

Atburđir

« Febrúar »
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
18. mars 2011 - Kristján Kristjánsson

Námskeiđ á vegum ÍSÍ

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum, konu og karli, á námskeið ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 25. júní til 9. júlí n.k.  Að þessu sinni er umfjöllunarefnið ólympismi auk þess sem fjallað er um 50 ára sögu Alþjóða Ólympíuakademíunnar og fræðslu á hennar vegum. Flugferðir og uppihald eru þátttakendum að kostnaðarlausu. Leitað er eftir einstaklingum sem náð hafa mjög góðum árangri í íþróttagrein (-greinum) og/eða sinnt kennslu/þjálfun/félagsstörfum innan íþróttahreyfingarinnar, ásamt því að sýna málefnum ólympíuhreyfingarinnar sérstakan áhuga. Þeir skulu hafa gott vald á ensku og/eða frönsku og vera fyrirmynd annars æskufólks í hvívetna.

Umsóknum skal skilað, á þar til gerðum eyðublöðum til skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, ekki seinna en föstudaginn 25. mars n.k. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöðin á heimasíðu ÍSÍ, www.isi.is.

Umsókn skal skilað á ensku og skulu fylgja henni tvær passamyndir. Umsóknareyðublöð liggja einnig frammi á skrifstofu ÍSÍ. Frekari upplýsingar veitir Örvar Ólafsson verkefnastjóri á skrifstofu ÍSÍ. Sími 514 4000, orvar@isi.is

Einnig má benda á heimasíður IOA www.ioa-sessions.org/ , og www.ioa.org.gr

28. febrúar 2011 - Kristján Kristjánsson

Afreksmannasjóđur HSV

 

Héraðssamband Vestfirðinga auglýsir eftir umsóknum í afreksmannasjóð sambandsins. Geta allir íþróttamenn sótt um styrk í sjóðinn svo framlega sem þeir séu aðilar innan HSV og uppfylli þau skilyrði sem eru í 7.grein laga afreksmannasjóðsins.

 

7. gr.

Stjórn sjóðsins getur veitt styrk ef viðkomandi uppfyllir eitthvert eftirtalinna skilyrða:

Ef hann keppir á eða hefur möguleika á þátttöku á Ólympíu-, Heims-, Evrópu- eða

Norðurlandameistaramótum.

Ef hann er valinn í landslið eða úrtök fyrir landslið. Ef hann er framarlega í íþróttagrein

sinni á landsvísu eða hefur sýnt mjög góðan árangur og er líklegur til að komast í hóp

bestu íþróttamanna landsins í íþróttagrein sinni. Skal þá miðað við styrkleikaflokkun

sérsambanda (sé hún til).

Lið eða hópur geta fengið úthlutað ef þau eru framarlega í íþróttagrein sinni á landsvísu

eða hafa sýnt mjög góðan árangur og eru líkleg til að komast í hóp bestu liða/hópa

 

Hægt er að sjá reglugerð sjóðsins inn á heimasíðu HSV.  

 

Umsóknarfrestur er til  10. mars 2011

 

Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdarstjóri HSV Kristján Þór Kristjánsson  í síma: 861-4668 eða í tölvupósti: hsv@hsv.is

14. febrúar 2011 - Kristján Kristjánsson

Afrekskvennasjóđur

ÍSÍ hefur auglýst til febrúarúthlutunar úr afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍ.  Umsóknarfrestur er til 28.febrúar 2011 og skal senda umsóknir til ÍSÍ merktar afrekskvennasjóður Íslandsbanka og ÍSÍ, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.  Einnig er hægt að senda umsóknir rafrænt á orvar@isi.is.  Að þessu sinni hvetur sjóðsstjórn sérstaklega ungar og framúrskarandi íþróttakonur til að sækja um í sjóðinn.
24. janúar 2011 - Kristján Kristjánsson

Emil Pálsson íţróttamađur Ísafjarđarbćjar

Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2010 var kjörinn í gær sunnudaginn 23.janúar.  Flottur hópur af frábæru íþróttafólki var tilnefndur frá níu íþróttarfélögum.   Emil Pálsson Boltafélagi Ísafjarðar varð hlutskarpastur í kjörinu annað árið í röð.  Þrátt fyrir ungan aldur er Emil einn allra besti knattspyrnumaður sem Vestfirðingar hafa átt. Hann spilaði á æfingamóti í Svíþjóð með U-18 ára liði Íslands þar sem hann var byrjunarmaður í öllum leikjum. Þrátt fyrir ungan aldur er hann burðarstólpi í meistaraflokki BÍ88 og var fyrirliði þess árið 2010. Hann hefur verið fastamaður í unglingalandsliðum KSÍ og stundar nú æfingar með U-19 ára landsliði Íslands. Hann leggur hart að sér við æfingar jafnt sem leiki og er fyrirmynd allra íþróttamanna, yngri sem eldri.  Emil er vel af þessum titli kominn og óskar HSV honum innilega til hamingju með árangurinn.

Í kjöri til íþróttamanns Ísafjarðarbæjar voru eftirfarandi íþróttafólk.  Við hjá HSV erum gríðalega stolt af þessu frábæra íþróttafólki og óskum þeim öllum til hamingju með frábæran árangur á síðasta ári og hlökkum til að fylgjast með því í framtíðinni. 

Anton Helgi Guðjónsson Golfklúbbi Ísafjarðar

Elena Dís Víðisdóttir Sundfélaginu Vestra

Elín Jónsdóttir Skíðafélagi Ísfirðinga

Emil Pálsson Boltafélagi Ísafjarðar

Guðmundur Valdimarsson Skotíþróttafélagi Ísafjarðarbæjar

Jóhann Bragason Hestamannafélaginu Stormi

Margrét Rún Rúnarsdóttir Ksf. Harðar

Craic Schoen KFÍ

Ragney Líf Stefánsdóttir Íþróttafélaginu Ívar 

19. janúar 2011 - Kristján Kristjánsson

Íţróttamađur Ísafjarđarbćjar

Sunnudaginn 23.janúar kl 16:00 verđur íţróttamađur Ísafjarđarbćjar útnefndur viđ hátíđlega athöfn.  Athöfnin fer fram á 4.hćđ stjórnsýsluhússins á Ísafirđi og er öllum opin. 
7. janúar 2011 - Kristján Kristjánsson

Ferđasjóđur Íţróttafélaga

HSV minnir á að umsóknarfrestur til að sækja í ferðasjóð íþróttafélaga 2010 ér til 10.janúar 2011.
7. janúar 2011 - Kristján Kristjánsson

Kompás - námskeiđ

 

Ungmennafélag Íslands stendur fyrir námskeiðum í Kompás undir yfirskriftinni, mannréttindi, lýðræði og barnasáttmálinn. Námskeiðin eru ætluð æskulýðsleiðtogum, kennurum og öðrum er vinna með ungu fólki sem fagaðilar eða áhugafólk.  

Námskeiðin eru byggð á handbókinni Kompás. Kenndir verða hópeflisleikir ásamt hagnýtum verkefnum. Markmiðið er að virkja ungt fólk og vekja jákvæða vitund þeirra á mannréttindum, mannvirðingu og eflingu minnihlutahópa.

  • Fyrsta námskeiðið verður haldið í Hrafnagilsskóla 14.-15 janúar þar sem mannréttindi verða tekin fyrir.
    Leiðbeinendur verða Pétur Björgvin Þorsteinsson og Ágúst Þór Árnason.
  • Annað námskeiðið undir yfirskriftinni ,,Lýðræði" verður haldið á Húsavík 28.-29. janúar.
    Leiðbeinendur þar verða Pétur Björgvin Þorsteinsson og Aldís Yngvadóttir.
  • Þriðja og síðasta námskeiðið undir yfirskriftinni ,,Barnasáttmálinn" verður haldið á Þórshöfn 11.-12. febrúar. Leiðbeinendur verða Pétur Björgvin Þorsteinsson og Elísabet Gísladóttir.

Dagskrá námskeiðanna er með þeim hætti að þau hefjast öll klukkan 18.30 á föstudögum til 21.30 með kvöldverði og hópefli.  Á laugardeginum hefjast þau klukkan 9 og standa til klukkan 17.

Skráning og upplýsingar eru í síma 568-2929 eða á netfanginu alda@umfi.is

31. desember 2010 - Kristján Kristjánsson

Gleđilegt nýtt ár

Gleðilegt nýtt ár og þökkum samstarfið á árinu sem er að líða

30. desember 2010 - Kristján Kristjánsson

HSV og Ísafjarđarbćr skrifa undir samninga

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar og Jón Páll Hreinsson, formaður Héraðssambands Vestfirðinga, skrifuðu í dag undir samstarfssamning og verkefnasamning. Samningar sem þessir hafa verið í gildi undanfarin ár og hafa vakið athygli og eftirtekt á landsvísu.

Samstarfssamningurinn hljóðar alls upp á 10,2 m.kr. og felur í sér framlag bæjarins vegna skrifstofuhúsnæðis, þjálfarastyrkja, húsaleigu- og æfingastyrkja og framlög í afreksmannasjóð.

Verkefnasamningurinn felur í sér rekstrarstyrk frá Ísafjarðarbæ að fjárhæð 6,7 m.kr. sem verður ráðstafað sem rekstrarframlagi til aðildarfélaga HSV. Stjórn HSV sér um að ráðstafa rekstrarframlaginu milli félaga með tilliti til umfangs barna- og unglingastarfs þeirra.

Aðildarfélög HSV taka á móti að sér einstaka verkefni, svo sem þrif á fjörum, umsjón með golfvöllum, vinnu við Skíðaviku og 17. júní, þrif eftir áramót og fleira.
24. desember 2010 - Kristján Kristjánsson

Jólakveđja

Héraðssamband Vestfirðinga óskar öllum nær og fjær gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári.

Eldri fćrslur

Vefir ađildarfélaga

Fréttir ađildarfélaga

Vefumsjón