A A A

Atburđir

« Febrúar »
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
9. nóvember 2010 - Kristján Kristjánsson

Verkefnasjóđur HSV

  Héraðssamband Vestfirðinga auglýsir eftir umsóknum í verkefnasjóð sambandsins. Samkvæmt reglugerð sjóðsins er honum ætlað að styrkja útbreiðslu og átaksverkefni í íþróttastarfi í Ísafjarðarbæ. Styrkveitingum er ætlað að efla íþróttastarf í sveitarfélaginu og auka aðgengi að einstökum íþróttagreinum. 

 

 

Umsóknarfrestur er til 22. nóvember 2010

 

Vakin er sérstök áhersla á reglugerð sjóðssins sem finna má á heimasíðu HSV www.hsv.is . Þar undir „Um HSV" og þar í verkefnasjóður. 

 

Sjóðurinn styrkir ekki: mannvirkjagerð, áhaldakaup, keppnisferðir eða uppskeruhátíðir.

 

 

Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdarstjóri HSV Kristján Þór Kristjánsson   í síma: 861-4668 eða í tölvupósti: hsv@hsv.is

3. nóvember 2010 - Kristján Kristjánsson

Mikiđ og öflugt starf hjá Höfrungi Ţingeyri

Mikið og öflugt starf er í gangi hjá Höfrungi Þingeyri í vetur.  Börnin æfa af kappi blak og fótbolta fjórum sinnum í viku.  Boccia æfingar eru iðkaðar og fara æfingar fram á mánudögum og föstudögum. Á miðvikudögum er nú boðið upp á nýjung hjá Höfrungi en það er línudans.  Sunderóbik er tvisvar í viku á mánudögum og laugardögum og svo er fjölskyldutíminn á sunnudögum mjög vinsæll en þar koma fjölskyldur saman og foreldrar leika sér við börnin í hinum ýmsu íþróttum og leikjum.  Höfrungur stendur sig greinilega vel í að stuðla að hreyfingu og iðkun íþrótta meðal allra aldurshópa.
1. nóvember 2010 - Kristján Kristjánsson

Afreksíţróttamenn Vestra og SFÍ skrifa undir "fyrirmyndarsamning"

Sundfélagið Vestri og Skíðafélag Ísfirðinga hafa skrifað undir samninga við afreksfólk sitt. Samningurinn er við þá íþróttamenn sem stunda nám við Menntaskólann á Ísafirði og eru skráðir á afreksbraut skólans. Samningurinn er svokallaður „fyrirmyndarsamningur" og skrifa íþróttamennirnir m.a undir það að sniðganga áfengi, tóbak og aðra vímugjafa sem og stunda almennt hollt og heilbrigt líferni. Við undirskrift samningsins fengu krakkarnir að gjöf afar vegleg æfingaföt frá sportvöruversluninni Núpi á Ísafirði, en bæði Núpur og sérstakur forvarnarsjóður Lýðheilsustöðvar styrktu fatakaupin.

Með samningnum er Sundfélagið og Skíðafélagið að gefa tóninn varðandi afreksmannastefnu í samfélaginu og hversu mikilvægt það sé að afreksíþróttamenn taki ákvörðun um það nota hvorki áfengi, tóbak né aðra vímugjafa samhliða sinni íþrótt. Þeir íþróttamenn sem skrifuðu undir eru: Aníta Björk Jóhannsdóttir Vestra, Anna María Stefánsdóttir Vestra, Ástrós Þóra Valsdóttir Vestra, Herdís Magnúsdóttir Vestra, Elín Jónsdóttir SFÍ, Ebba Kristín Guðmundsdóttir SFÍ og Gauti Geirsson SFÍ. Vestri og Skíðafélagið vilja jafnframt hvetja önnur íþróttafélög á svæðinu að taka sig til fyrirmyndar og gera slíkt hið sama fyrir sitt íþróttafólk.

27. október 2010 - Kristján Kristjánsson

Handknattleiksmenn á landsliđsćfingu

Handknattleiksdeild Harðar á tvo fulltrúa í æfingahóp U-19 landsliðs Íslands í handbolta. Þetta eru þeir Axel Sveinsson og Jóhann Gunnar Guðbjartsson. Axel er örvhentur hornamaður og er fæddur árið 1993. Jóhann Gunnar er rétthent skytta og er fæddur árið 1992. Drengirnir hafa verið boðaðir suður til Reykjavíkur á fimm æfingar um helgina, frá fimmtudegi til sunnudags.
Ingvar yfirþjálfari deildarinnar mun fylgja drengjunum suður og fylgjast með framgangi þeirra á æfingum sem og fylgjast með störfum landsliðsþjálfarans.
Við óskum drengjunum og fjölskyldum þeirra til hamingju með þennan merka áfanga.
Einnig hægt að sjá í frétt á heimasíðu Harðar www.hsv.is/hordur .
22. október 2010 - Kristján Kristjánsson

Afreksmannasjóđur HSV

  Héraðssamband Vestfirðinga auglýsir eftir umsóknum í afreksmannasjóð sambandsins. Geta allir íþróttamenn sótt um styrk í sjóðinn svo framlega sem þeir séu aðilar innan HSV og uppfylli þau skilyrði sem eru í 7.grein laga afreksmannasjóðsins.

 

7. gr.

Stjórn sjóðsins getur veitt styrk ef viðkomandi uppfyllir eitthvert eftirtalinna skilyrða:

Ef hann keppir á eða hefur möguleika á þátttöku á Ólympíu-, Heims-, Evrópu- eða

Norðurlandameistaramótum.

Ef hann er valinn í landslið eða úrtök fyrir landslið. Ef hann er framarlega í íþróttagrein

sinni á landsvísu eða hefur sýnt mjög góðan árangur og er líklegur til að komast í hóp

bestu íþróttamanna landsins í íþróttagrein sinni. Skal þá miðað við styrkleikaflokkun

sérsambanda (sé hún til).

Lið eða hópur geta fengið úthlutað ef þau eru framarlega í íþróttagrein sinni á landsvísu

eða hafa sýnt mjög góðan árangur og eru líkleg til að komast í hóp bestu liða/hópa

 

Hægt er að sjá reglugerð sjóðsins inn á heimasíðu HSV.  

 

Umsóknarfrestur er til  5. nóvember 2010

 

Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdarstjóri HSV Kristján Þór Kristjánsson  í síma: 861-4668 eða í tölvupósti: hsv@hsv.is

11. október 2010 - Kristján Kristjánsson

Góđur árangur Ívarsmanna á Íslandsmóti í Boccia

Liðsmenn Ívars tóku þátt í Íslandsmóti í einstaklingskeppni í Boccia sem haldið var í Reykjanesbæ nú um síðustu helgi. 200 keppendur frá 12 félögum skráðu sig til leiks. 10 keppendur kepptu fyrir hönd Ívars og náðist góður árangur á mótinu. Magnús H Guðmundsson sigraði í 4. deild og Guðjón Hraunberg Björnsson lenti í 2. sæti í 5. deild. Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir komst inn í úrslit í 2. deild en hún komst ekki á verðlaunapall. Það var einnig haft á orði hve miklum framförum Emilía Arnþórsdóttir hefði náð í Boccia frá síðasta móti. Loks á sunnudagskvöld var lokahóf í Stapanum þar sem boðið var upp á góðan mat og svo lauk kvöldinu með balli  þar sem allir skemmtu sér konunglega.
11. október 2010 - Kristján Kristjánsson

Allt á fullu í íţróttalífinu

Um helgina var mikið um að vera í íþróttalífinu hér í Ísafjarðarbæ.  Lætin byrjuðu á fimmtudagskvöld þegar meistaraflokkur KFÍ spilaði sinn fyrsta heimaleik í Icelandexpress deild karla í körfuknattleik.  Þar sigrðuð heimamenn Tindastól örugglega 85-70.  Drengjaflokkur KFÍ mætti Stjörnuna í heimaleik á laugardaginn og eftir erfiða byrjun náðu strákarnir að innbyrða góðan sigur 68-58.  Meistaraflokkur kvenna heldur áfram að spila vel og sigruðu Grindavík-b á útivelli örugglega 61-40.  Liðið virðist vera á góðu skriði og byrjað tímabilið á tveimur sigrum. 
 Meistaraflokkur karla spilaði svo við geysisterkt lið Grindavíkur á útivelli á sunnudaginn.  Eftir að hafa verið yfir í hálfleik og veitt Grindavík mikla mótspyrnu fór svo að lokum að heimamenn náðu að knýja fram sigur 96-87.  Það var greinilegt á þessum leik að KFÍ eru ekki komnir í úrvaldsdeild að ástæðu lausu og munu vera erfiðir mótherjar í vetur.  Frekari umfjöllun um leiki KFÍ um helgina er að finna á heimasíðu félagsins www.kfi.is .

Strákarnir í 2.flokki Harðar í handknattleik léku sinn fyrsta leik í vetur á móti sterku liði HK.  HK-ingar sigruðu leikinn og voru Harðar strákar svolítið ryðgaðir í fyrsta leik en mikið býr í þessu liði og eiga þeir vafalítið eftir að ná sér á strik í vetur og ná inn góðum úrslitum.

Boltafélag Ísafjarðar hélt lokahóf sitt um helgina í íþróttahúsinu Torfnesi.  Þar kom fram að iðkendur BÍ í sumar voru um 180 talsins strákar og stelpur og kepptu flest allir flokkar á Íslandsmóti í sumar.  Veitt voru verðlaun og viðurkenningar og að lokum fengu sér allir góðar veitingar á glæsilegu kökuhlaðborði.
5. október 2010 - Kristján Kristjánsson

Körfuboltatímabiliđ ađ rúlla af stađ

Körfuboltatímabilið er nú farið af stað og lið KFÍ farin að spila hvert af öðru.  Stelpurnar í meistaraflokki kvenna byrjuðu tímabilið með glæsilegum sigri á Þór frá Akuureyri og er drengjaflokkur KFÍ búin að spila tvo leiki, sigrar einn og tapa öðrum naumlega gegn sterku Haukaliði.  Næstkomandi fimmtudaginn 7.október spilar svo meistaraflokkur KFÍ sinn fyrsta heimaleik í Icelandexpress deild karla.  KFÍ mun þar etja kappi við Tindastól og hefst leikurinn kl 19:15.  Nú er bara að fjölmenna á leikina hjá KFÍ liðunum og styðja vel við bakið á þeim.  Frekari fréttir og nánari skil á leikjum KFÍ liðanna er að finna á heimasíðu KFÍ www.kfi.is .

20. september 2010 - Kristján Kristjánsson

BÍ/Bolungarvík upp í 1.deild

Sameiginlegt lið BÍ/Bolungarvík vann sér sæti í 1.deild í knattspyrnu nú í sumar með því að lenda í öðru sæti í 2.deild.  Þetta er sannarlega glæsilegur árangur hjá þessu unga og efnilega liði.  Liðið vann fimmtán leiki í sumar, gerði tvö jafntefli, tapaði fimm leikjum og fékk því 47 stig.  Á lokahófi liðsins á laugardaginn var Sigurgir Sveinn Gíslason kosinn besti leikmaður sumarsins, Andri Rúnar Bjarnason var kosinn verðmætasti leikmaðurinn ásamt því að vera markahæstur en hann skoraði 18 mörk í 21 leik og Emil Pálsson var kosinn efnilegasti leikmaðurinn.  HSV óskar liðinu til hamingju með glæsilegan árangur og óskar þeim velfarnaðar í 1.deild.

16. september 2010 - Kristján Kristjánsson

Ferđasjóđur íţróttafélaga

Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga hefur verið opnað.  Til úthlutunar vegna ársins 2010 verða 57 millj. króna.  Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um í sjóðinn vegna ferða á fyrirfram skilgreind styrkhæf íþróttamót á árinu 2010.  Umsóknarsvæðið verður opið út mánudaginn 10.janúar 2011. Ekki verður tekið við umsóknum eftir það. 

Hægt er að komast inn á umsóknarsvæðið í gegnum tengil á forsíðu heimasíðu ÍSÍ eða með því að smella hér.  Við stofnun umsóknar fær viðkomandi senda vefslóð sem er rafrænn lykill að umsókninni. Með því að smella á vefslóðina er hægt að koma aftur að umsókninni allt þar til hún er fullkláruð. Umsóknin er síðan send til ÍSÍ í gegnum umsóknarsvæðið innan tilskilins umsóknarfrests.

Eldri fćrslur

Vefir ađildarfélaga

Fréttir ađildarfélaga

Vefumsjón