A A A

Atburđir

« Febrúar »
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
25. febrúar 2010 - Kristján Kristjánsson

KFÍ-ÍA Sunnudagskvöld 27.febrúar

Á sunnudagskvöldið n.k. koma strákarnir frá ÍA í heimsókn og spila við KFÍ og er leikurinn gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið. Ef KFÍ sigrar í leiknum þá eru þeir búnir að tryggja sér sæti Í Iceland Express deildinni næsta vetur. Á sama tíma er hver leikur fyrir ÍA mikilvægur þar sem þeir eru að reyna að halda sér uppi í 1. deild. Leikurinn hefst kl. 19.15 og verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu fyrir þá sem ekki komast á leikinn.

Við hvetjum alla til að mæta á leikinn og fylla húsið og mynda brjálaða stemningu. Skiptir miklu máli fyrir strákana að fá hjálp frá stuðningsmönnum til að hjálpa þeim yfir síðasta hjallann.

Ýmsir skotleikir og annað sem kemur á óvart verður á á leiknum og nú er ekkert annað að gera en að mæta og hvetja strákana.
22. febrúar 2010 - Kristján Kristjánsson

Afreksmannasjóđur

 Héraðssamband Vestfirðinga auglýsir eftir umsóknum í afreksmannasjóð sambandsins. Auglýst er eftir umsóknum fyrir árið 2010 og síðstu þrjá mánuði ársins 2009.

Geta allir íþróttamenn sótt um styrk í sjóðinn svo framlega sem þeir séu aðilar innan HSV og uppfylli þau skilyrði sem eru í 7.grein laga afreksmannasjóðsins.

 

7. gr.

„Stjórn sjóðsins getur veitt styrk ef viðkomandi uppfyllir eitthvert eftirtalinna skilyrða:

Ef hann keppir á eða hefur möguleika á þátttöku á Ólympíu-, Heims-, Evrópu- eða Norðurlandameistaramótum.

Ef hann er valinn í landslið. Ef hann er framarlega í íþróttagrein sinni á landsvísu eða hefur sýnt mjög góðan árangur og er líklegur til að komast í hóp bestu íþróttamanna landsins í íþróttagrein sinni.  Skal þá miðað við styrkleikaflokkun sérsambanda (sé hún til)".

 

Hægt er að sjá reglugerð sjóðsins inn á heimasíðu HSV.  

 

Umsóknarfrestur er til 7. mars 2010

 

Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdarstjóri HSV Kristján Þór Kristjánsson  í síma: 861-4668 eða í tölvupósti: hsv@hsv.is

26. janúar 2010 - Kristján Kristjánsson

Tippleikur HSV

Tippleikur HSV er að hefja göngu sína núna í janúar.  Erfiðlega hefur gengið að koma leiknum af stað á ný eftir flott ár 2006-2007.  Eru margar ástæður fyrir því.  Nú hefur Boltafélag Ísafjarðar ákveðið að sjá um leikinn fyrir HSV og öll aðildarfélög HSV.  Það eru góðar fréttir því þarna er mjög duglegt og drífandi fólk sem á örugglega eftir að drífa leikinn í gang. 

 

Leikurinn hefst laugardaginn 30.janúar og fer skráning fram á heimasíðu tippleiksins www.tippleikur.is/hsv og einnig er hægt að skrá sig í gegnum netfang tippleiksins getraunir@hsv.is
Þess má geta að með því að taka þátt í tippleik HSV og tippa hjá Íslenskum getraunum styrkir þú öll íþróttarfélögin í Ísafjarðarbæ í einu.  Tippnúmer aðildarfélaga HSV er nr 400

25. janúar 2010 - Kristján Kristjánsson

Emil Pálsson íţróttamađur Ísafjarđarbćjar

« 1 af 2 »
Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2009 var kjörinn í gær sunnudaginn 24.janúar.  Flottur hópur af frábæru íþróttafólki var tilnefndur frá níu íþróttarfélögum.  Emil Pálsson knattspyrnumaður úr Boltafélagi Ísafjarðar var kjörinn íþróttamaður ársins 2009.   Þrátt fyrir ungan aldur er Emil einn allra besti knattspyrnumaður sem Vestfirðingar hafa átt. Hann spilaði á tveimur stórmótum í haust, Norðurlandamóti og Evrópumóti þar sem hann var byrjunarliðsmaður í U-17 liði Íslands og skoraði tvö mörk í erfiðum leikjum. Þrátt fyrir ungan aldur er hann burðarstólpi í meistaraflokki BÍ88. Hann hefur verið fastamaður í unglingalandsliðum KSÍ og stundar nú æfingar með U-17 ára landsliði Íslands. Hann leggur hart að sér við æfingar jafnt sem leiki og er fyrirmynd allra íþróttamanna, yngri sem eldri.  Emil er vel af þessum titli kominn og óskar HSV honum innilega til hamingju með árangurinn.

Í kjöri til íþróttamanns Ísafjarðarbæjar voru eftirfarandi íþróttafólk.  Við hjá HSV erum gríðalega stolt af þessu frábæra íþróttafólki og óskum þeim öllum til hamingju með frábæran árangur á síðasta ári og hlökkum til að fylgjast með því í framtíðinni. 

Anna María Stefánsdóttir          Sundfélagið Vestri

Anton Helgi Guðjónsson           Golfklúbbur Ísafjarðar

Baldur Geir Gunnarsson            Knattspyrnufélagið Hörður, handknattleiksdeild

Bylgja Dröfn Magnúsdóttir         Hestamannafélagið Hending

Emil Pálsson                             Boltafélag Ísafjarðar

Guðmundur Valdimarsson          Skotíþróttafélag Ísafjarðarbæjar

Pance Iliewski                          Körfuknattleiksfélag Ísafjarðar

Ragney Líf Stefánsdóttir            Íþróttafélagið Ívar

Silja Rán Guðmundsdóttir          Skíðafélag Ísfirðinga



4. janúar 2010 - Kristján Kristjánsson

Endurnýjun á verkefnasamningi

Ísafjarðarbær hefur endurnýjað verkefnasamning við Héraðssamband Vestfirðinga. Samningurinn felur í sér að HSV tekur að sér skilgreind verkefni á vegum bæjarfélagsins.  Samningurinn er mjög mikilvægur fyrir íþrótta og æskulýsstarfsemina í bænum og er markmiðið með samningnum er að renna enn styrkari stoðum undir íþrótta- og æskulýðsstarfsemi á vegum HSV. Verkefnin sem héraðssambandinu eru falin eru af ýmsum toga svo sem þrif á fjörum, þrif eftir áramót, umsjón með ýmsum verkefnum á Skíðaviku, umsjón með knattspyrnusvæði, umsjón með golfvöllum, vinna við 17. júní og fleira.

23. desember 2009 - Kristján Kristjánsson

Jólakveđja

Héraðssamband Vestfirðinga óskar öllum nær og fjær gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári.

17. desember 2009 - Kristján Kristjánsson

Íţróttafólk okkar á landsliđsćfingum

Guðmundur Guðmundsson leikmaður 11.flokks hjá KFÍ hefur verið valinn í æfingaúrval U-18 landsliðs Íslands en þess má geta að hann er einungis 16 ára. 
Hildur Hálfdánardóttir í 3.flokki BÍ/UMFB hefur verið valin í æfingahóp U-16 ára landsliðs Íslands og tekur þátt í æfingum undir stjórn Þorláks Árnasonar þjálfara liðsins.
Við óskum þeim til hamingju með þennan frábæra árangur.
14. desember 2009 - Kristján Kristjánsson

Hörđur sigrađi Víking Reykjavík

Strákarnir í 3.flokki Harðar unnu góðan sigur á Víking í Reykjavík.  Strákarnir unnu sannfærandi sigur 27-20.  Eru strákarnir alltaf að verða betri og betri og er gaman að fylgjast með þeim framförum sem orðið hefur á liðinu.
14. desember 2009 - Kristján Kristjánsson

KFÍ vann Ţór Ţorlákshöfn

Það var kaflaskiptur en skemmtilegur leikur sem boðið var upp á í Jakanum í gærkveldi.  Gestirnir frá Þorlákshöfn komu sterkir til leiks og börðust eins og ljón.  Það hefði engum átt að koma á óvart enda eru þeir þekktir fyrir baráttu og eru með mjög skemmtilegt lið.  KFÍ menn virtust engu að síður slegnir út af laginu og endaði fyrsti leikhluti 20-28 fyrir Þór.  Svipaða sögu er að segja af öðrum leikhluta þó hann hafi verið heldur jafnari.  Leikmenn KFÍ voru ekki vaknaðir, ef svo má að orði komast, en voru aðeins byrjaðir að bíta frá sér.  Í hálfleik var staðan 36-42 fyrir Þór og ekki laust við að áhorfendur væru orðnir áhyggjufullir.  Ekki var þetta nákvæmlega það sem Borce þjálfari og leikmenn höfðu lagt á ráðin með en aftur verður að hrósa Þórsurum fyrir hörkuleik.  Stefndi í stórsigur gestanna ef fram færi sem horfði.

Í þriðja leikhluta hrökk KFÍ hraðlestin í gang og menn sögðu hingað og ekki lengra.  Annar eins viðsnúningur á leik hefur ekki sést í áraraðir hjá okkar mönnum á heimavelli.  Vörn KFÍ var frábær á þessum kafla og í raun það sem eftir lifði leiks.  Ekki er hægt að sleppa því að minnast á Daniel Midgley sem kom inn með frábæra baráttu þarna og sýndi enn og aftur hversu mikilvægur leikmaður hann er orðinn.  Samvinna hans og Craig Schoen var aðdáunarverð og breytti svo sannarlega gangi leiksins.  Leikhlutinn endaði 31-5 fyrir KFÍ og vel skiljanlegt að leikmenn Þórs hafi verið orðnir aðeins pirraðir undir lok hans.  Líklega langt síðan þeir hafa verið leiknir svona grátt?  Enginn er annars bróðir í leik og staðan var orðin 67-47 fyrir KFÍ!

KFÍ lét aldrei þessa öruggu forystu af hendi þrátt fyrir ágætar tilraunir Þórsara til þess að komast inn í leikinn aftur.  Eins og sagði í fyrirsögn fréttarinnar var að lokum sannfærandi sigur KFÍ á heimavelli gegn Þór orðin staðreynd.  Staðan í leikslok var 83-65 fyrir KFÍ.

Erfitt er að velja mann leiksins og líklega færi best á því að segja að það hafi einfaldlega verið liðsheildin og seiglan sem var MVP í kvöld.  Engu að síður nefnum við miðherjan okkar knáa Mateusz Sowa, sem var með 18 stig, 18 fráköst, 2 varin skot og 4 stolna bolta!  Eigum við að ræða það eitthvað...?  Þeir Darco Milosevic og Hjalti Magnússon voru með athyglisverða tölfræði, báður náðu 75% nýtingu í 3ja stiga skotum sínum.  Greinilegt að tilraun Hjalta til inngöngu í kílograms-klúbbinn hefur ekki haft slæm áhrif á hann.  Að lokum verður að minnast á það að allir úr leikmannahópi KFÍ komu við sögu í kvöld og er það til marks um að hópurinn er að breikka.

Að loknum leik héldu áhorfendur sælir og glaðir heim.  Þetta var síðasti heimaleikur liðsins á árinu og árangur þeirra er mjög viðunandi.  Næst eiga þeir leik á föstudaginn 18. desember í Reykjavík og sækja þá lið Ármanns/Þróttar heim.  Nánar verður tilkynnt um þann leik síðar og Vestfirðingar fyrr og nú sem staddir verða í Reykjavík eru hvattir til að mæta þar og styðja þá til sigurs í síðasta leik ársins.

frétt tekinn af heimasíðu KFÍ www.kfi.is

7. desember 2009 - Kristján Kristjánsson

Tap í bikarnum hjá meistaraflokki KFÍ en stelpurnar í 10.flokki komust áfram.

KFÍ féll úr leik eftir hörkuleik gegn úrvalsdeildarliði ÍR 86-93 og átti KFÍ í fullu tréi við ÍR-ingana.  Stelpurnar í 10.flokki unnu góðan sigur gegn Kormáki og komust áfram í bikarnum.  Hægt er að lesa meira um leikin á heimasíðu KFÍ www.kfi.is .
Eldri fćrslur

Vefir ađildarfélaga

Fréttir ađildarfélaga

Vefumsjón