16. apríl 2013 - Ingvar Örn Ákason
Hópurinn fyrir brottför frá Landeyjarhöfninni. Efri frá vinstri: Pétur, Hjalti, Jens, Jakob, Eggert, Hreinn. Neđri frá vinstri: Gísli, Friđrik.
Hópurinn á Pizza 67 í Eyjum
Drekabrunch
Flott lið Harðar í 4.flokki beið lægri hlut gegn virkilega góðu Eyjaliði í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins um helgina. Það var ljóst frá upphafi að á brattann yrði að sækja í þessari hörkuviðureign. Okkar lið lét það ekki á sig fá og var vel stemmt þegar flautað var til leiks.
ÍBV 24 - 13 Hörður (11-7)Eyjamenn áttu heimaleikjaréttinn þar sem þeir enduðu í 3.sæti 1.deildar á meðan okkar lið inn í keppnina sem sjötta efsta liðið en Harðverjar unnu 2.deild með miklum yfirburðum. Leikurinn byrjaði á að við misstum boltann í fyrstu tveimur sóknunum en svo fór þetta að lagast og baráttan var til staðar í vörninni. Skot okkar manna voru ekki að rata á réttu staðina og mikið var um að skjóta beint á markið, smá stress í gangi en það lagaðist þegar leið á leikinn. Eyjamenn komust með harðfylgi í 7-3 en Harðarpúkarnir komu sterkir til baka og minnkuðu muninn í 7-6. Lokasprettur Eyjamanna fyrir hálfleikinn var góður og þeir fóru með fjögurra marka forystu, 11-17, inn í hálfleikinn.
Þar ræddum við saman þar sem allt var lagt á borðið og í sölurnar. Leikmenn voru staðráðnir í að minnka muninn og gefa allt sitt í verkefnið. Sem og þeir í raun gerðu að flestu leyti nema að leikmenn náðu aldrei að framkalla sinn besta leik enda ekki nógu vanir svona miklum spennuleikjum. Það breytist vonandi á næstu árum þegar þeir spila gegn sterkari liðum og verða sjálfir enn betri.
Lokaniðurstaðan gaf ekki alveg rétta mynd af leiknum að mínu mati en mjög sanngjarn heimasigur staðreynd, 24-13. Harðverjar geta borið höfuðið hátt eftir frammistöðu vetrarins og ljóst að hægt er að byggja vel ofan á þetta í framtíðinni. Hörður1 og Hörður2 sameinast líklega í eitt stórt lið næsta vetur og þá ætti stemmningin að verða enn betri eftir heilan vetur þar sem allir fengu að spila alla leiki með fáa varamenn en það var einmitt ætlun vetrarins.
Markaskorarar Harðar í leiknum: Gísli Jörgen 6, Friðrik Þórir 2, Pétur 2, Jakob Jóhann 1, Hjalti Hermann 1, Eggert Karvel 1. Jens átti góðan leik í markinu og varði 16 skot en hann átti þar með 40% markvörslu. Piltarnir eiga að vera stoltir af sér.
Ferðin var flott í alla staði með Gísla Jón fararstjóra í broddi fylkingar en hópurinn hélt til Eyja frá Landeyjarhöfn á föstudagskvöldi eftir keyrslu frá Ísafirði fyrr um daginn. Stefnan var svo alltaf tekin á heimferð á sunnudeginum eftir gistingu á Hótel Hafnarfirði eina nótt en sú dvöl lengdist fram til mánudags þar sem ófært var á sunnudeginum. Það kom ekki að sök þar sem hópurinn hafði nóg fyrir stafni í ísrúntum, bíóferðum, stelpustússi, ömmubrönchum, stjórnmálaspjalli, Hjaltahittingum og fleira.
Ein heild. Eitt lið. Hörður!