A A A
« Júní »
S M Ţ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Atburđir

23. apríl 2012 - Ingvar Örn Ákason

Glćsilegir deildarmeistarar 4.deildar á Akureyri!

Sigurvegararnir kátir inní klefa beint eftir síđasta leikinn! Aftari röđ frá vinstri: Elías fyrirliđi, Birkir, Jón Ómar og Hákon. Fremri röđ frá vinstri: Tryggvi, Ísak, Andri og Sigurđur.
Sigurvegararnir kátir inní klefa beint eftir síđasta leikinn! Aftari röđ frá vinstri: Elías fyrirliđi, Birkir, Jón Ómar og Hákon. Fremri röđ frá vinstri: Tryggvi, Ísak, Andri og Sigurđur.
« 1 af 2 »
Fimmta og síðasta deildarmót 5.flokks yngri (árgangur 1999 en við erum með blandað lið af drengjum fæddum 1999 og 2000) fór fram um nýliðna helgi á Akureyri. KA og Þór héldu glæsilegt mót í alla staði og vel haldið á málum þar á bæ enda miklir handboltaspekúlantar í hverju skúmaskoti. Sérstaklega toppnáungarnir Stebbi Guðna og Siggi Bald. Það voru 8 vaskir Harðarpúkar sem fóru í þessa ferð. Sumir fóru með foreldrum sínum sem nýttu vetrarfrí í skólanum til að fara fjölskylduferð norður, aðrir voru á skíðamóti Andrésar og svo voru þrír töffarar sem fylgdu þjálfaranum hvert fótmál og voru þeir algjörir topp herbergisfélagar.

Það má með sanni segja að strákarnir hafi sýnt sitt allra besta í þessu móti og gott betur. Stemmningin, samheldnin, gleðin og vináttan skein í allar áttir. Þeir mættu vel stemmdir til leiks strax í fyrsta leik á föstudagskvöldi en þá biðu sterkir ÍR-ingar þeirra. Mikil barátta frá fyrstu til síðustu mínútu og það átti eftir að verða þannig í öllum leikjum mótsins. Flottur tveggja marka sigur, 19-17, gegn ÍR2, hafðist að lokum með mikilli baráttu og frábærri vörn á lokasprettinum. Flestir fóru þá til sinna foreldra en þessir þrír töffarar sem gistu í skólanum fylgdu þjálfaranum í Borgarbíóið á Akureyri. Stemmning í því og menn fóru því þreyttir og sælir að sofa eftir þá fínu bíóferð.

Laugardagurinn var vel nýttur en liðið átti ekki leik fyrr en seinni partinn. Fyrri hluti dagsins fór því í sund og keilu og eftir hádegið keyrðu menn sig bara í stuð og settu í fluggír fyrir næstu tvo leiki mótsins. Strákarnir voru bara 8 í þetta skiptið en voru 13 á síðasta móti. Nokkrir sem komust ekki með í þessa ferð. Þar af voru tveir markmenn sem skipta með sér hálfleikjum og því ljóst að allir sex útileikmenn liðsins þyrftu að standa vel saman og vera duglegir þrátt fyrir þreytu sem kæmi upp. Fyrri leikur laugardagsins var gegn Þór3. Mjög flottir Þórsarar og mikill kraftur í þeim. Þetta var barátta allan tímann en að lokum hafðist góður fjögurra marka sigur, 15-11. Glæsilegt það.

Stærsta prófið var gegn mjög sterku (sérstaklega líkamlega) liði Aftureldingar. Þeir höfðu gert eitt jafntefli og unnið einn þegar þarna var komið við sögu og því ljóst að þetta var nokkurskonar úrslitaleikur fyrir útkomu deildarinnar hjá okkar drengjum. Staðan var 8-10 í hálfleik, Aftureldingu í vil. Seinni hálfleikurinn var frábær. Mikið stress í strákunum en þeir nýttu sér það til góðs. Mörkin sem komu uppúr flottu spili voru mörg og vörnin var stórkostleg á köflum. Spiluðu skemmtilega og aggressífa framliggjandi 3-2-1 vörn allt mótið og hjálpuðu þannig flottum markmönnum liðsins, Ísaki og Andra, að verja enn fleiri bolta en áður. Báðir áttu þeir frábært mót, eins og allir leikmenn liðsins. 19-18 sigur gegn Aftureldingu2 var staðreynd eftir mjög taugatrekkjandi lokamínútur og sekúndur. Frábært hjá strákunum sem þarna voru búnir að tryggja sér sigur í 4.deild A. Þjálfarinn vissi það reyndar ekki sjálfur fyrr en síðar um kvöldið og strákarnir fengu ekki að vita það fyrr en eftir lokaleik mótsins, gegn KA2 á sunnudeginum. Lykilatriði að halda mönnum á tánum.

Laugardagskvöldið endaði svo á diskóteki í KA-heimilinu þar sem allt flotta handboltafólkið sem tók þátt í mótinu, strákar og stelpur, mætti og skemmti sér saman. Sunnudagsmorguninn var síðan tekinn í kirkjutröppugöngu hjá okkur herbergisfélögunum (Andri hljóp upp og niður á 50 sekúndum, við hinir töltum þetta bara í rólegheitunum og virtum fyrir okkur fallegt umhverfi Akureyrar). Eftir kirkjutröppurnar og smá miðbæjarrölt var ekkert annað í stöðunni en að taka messu kl. 11 til að koma sér í gírinn fyrir lokaleikinn gegn virkilega sprækum KA-mönnum. Sá leikur var ekki síður spennandi og ekki færri frábær atvik hjá strákunum okkar en í hinum leikjunum. Flottar vörslur hjá markmönnunum. Birkir vippaði einusinni í samskeytin og inn úr ótrúlegu skoti í horninu og svona mætti lengi telja. Lokatölur í leiknum voru 18-17 og fjölmargir stuðningsmenn Harðar klöppuðu vel og innilega fyrir sínu liði sem tók í leikslok við gullmedalíu og bikar fyrir að sigra sína deild og enda þannig í 3.deild í lok vetrar.

Þetta er flottur árangur hjá strákunum og gífurlega miklar framfarir sem hafa átt sér stað hjá þeim og þeir að spila sem flott lið - sem heild. Það er mikilvægast af öllu. Birkir með sinn hraða og styrk í horninu, þvílíkt klókur. Siggi í vinstri skyttunni var alveg ótrúlegur allt mótið. Báðir voru þeir líka að skíðastússast á milli handboltaleikjanna og rúlluðu því líka upp. Frábær helgi hjá þeim. Jón Ómar átti flotta leiki á miðjunni að venju en hann er mjög duglegur strákurinn að koma sér í góð færi og leitar oft uppi aðra með góðum sendingum. Elías fyrirliði var öflugur að hvetja liðið sitt áfram og var óhræddur við að láta vaða í hægri skyttunni, eitthvað sem hefur farið batnandi hjá honum með hverju mótinu. En hann var að spila nýja stöðu á þessu móti og leysti það vel. Tryggvi í hægra horninu varð sterkari með hverjum leiknum og sérstaklega gaman að sjá hann verða sífellt betri í vörninni. Hákon var eins og flestir í liðinu sterkari og sterkari eftir því sem leið á mótið og virkilega góð helgi hjá honum. Hann var oft eins og herforingi á línunni og stjórnaði varnarskiptingum eins og enginn væri morgundagurinn. Svo voru markmennirnir, Ísak og Andri, eins og áður segir mjög flottir og vinna vel saman. Eru duglegir að hvetja hvorn annan og bakka hvorn annan upp.

Undirritaður, þjálfari liðsins, er mjög stoltur af þessum strákum og hvernig þeir tækluðu þetta mót. Fyrir nokkrum mánuðum hefðum við ekki unnið þessa deild og hefðum á mörgum tímapunktum í mótinu geta lagt árar í bát og tapað sannfærandi við að gera ákveðin mistök. En nú var annar andi yfir þessu og allir staðráðnir í að gera vel fyrir næsta mann. Berjast fyrir félagana. Frábært! Nú þurfa þeir bara að halda áfram á sömu braut, bæta sig enn meira á næstu misserum og halda áfram að njóta þess að spila handbolta saman.



Áfram Hörður!

Skrifađu athugasemd:


Vefir ađildarfélaga HSV

Vefumsjón