A A A
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Atburðir

29. janúar 2012 - Ingvar Örn Ákason

Leikmannapistill 3.flokks

Þórólfur var orðinn lúinn í lok ferðar enda væntanlega einn af þeim sem fóru of seint að sofa alla dagana :)
Þórólfur var orðinn lúinn í lok ferðar enda væntanlega einn af þeim sem fóru of seint að sofa alla dagana :)
« 1 af 4 »
Já hér að neðan má líta á mjög ítarlegan leikmannapistil sem vegna tæknilegra örðugleika kemur fyrst inná síðuna núna en pistillinn barst vefritara fyrir rúmri viku síðan. Hér er pistillinn.


Lagt var af stað frá Torfnesi fimmtudaginn 12. Janúar eitthvað um 9 um morguninn. Farið var með rútu og voru nánast allir sem fóru með rútunni. En Ívar og Halldór voru ekki með og Ingvar Örn fór með flugi suður. Rútuferðin gekk slysalaus fyrir sig og vorum við komnir suður um 3 og leið okkar lá beint á Hótel Hafnarfjörð þar sem allir komu sér vel fyrir. Síðan fóru allir að slaka á.

Síðan lá leið liðsins upp í útvarpshús þar sem Gettu betur fór fram á milli Menntaskólans á Ísafirði og Verkmenntaskólans á Akureyri og hafði Ísafjörður betur. Síðan lá leiðin upp í Fjölbrautarskólann í Breiðholti þar sem Morfís fór fram og hafði Ísafjörður betur í þeirri viðureign. Eftir Morfís fórum við aftur upp á hótel með smá stoppi í Hagkaup. Þegar við komum á hótelið tók svefninn við en fóru menn á misjöfnum tíma að sofa eins og venjan er.

Síðan var vaknað um morguninn til þess að fara í morgunmat, eða flestir vöknuðu og sumum var hótað lífláti ef hann yrði vakinn. Síðan lögðu sig allir eftir morgunmatinn. Þegar allir höfðu vaknað var haldið upp í Kringlu til þess að fá sér að borða og versla smá. Eftir Kringluferðina fórum við upp á hótel til að taka okkur til fyrir leikinn. Síðan lá leiðin í Höllina með smá stoppi í Hagkaup. Síðan þegar komið var í Höllina var einhver landsleikur í gangi og við þurftum að bíða eftir því að hann kláraðist svo að við gætum spilað okkar leik.

Þegar landsleiknum lauk fórum við að hita upp fyrir okkar leik á móti Þrótti. Hann fór ekki eins og við vildum að hann hefði farið en þetta var hörku leikur allan tímann og leiddum við leikinn mestallan fyrri hálfleikinn en síðan töpuðum við forystunni niður og vorum undir með einu marki eftir fyrri hálfleik. Síðan mættum við sterkir til fyrri hálfleiks en það dugði ekki til en leikurinn fór 40-36 Þrótturum í vil. Eftir leikinn fórum við aftur upp á hótelið til þess að hvíla okkur en fóru menn að sofa á misjöfnum tíma en þegar að morgunmaturinn byrjaði voru sumir ekki ennþá farnir að sofa.

Eftir morgunmat fóru flestir að sofa eða lögðu sig. Svo uppúr 3 var leiðinni haldið í Smáralindina, þegar þangað var komið áttaði Jói sig á því að buxurnar sem hann ætlaði að kaupa sér voru ekki til í Smáralindinni þannig að Þórólfur, Jói og Ásgeir brunuðu upp í Kringlu og keyptu þessar buxur með Jóa. Þegar til baka var komið í Smáralindina fóru S.Óli, Þórólfur, Halldór,Alex,Tómas og Stefán í Skemmtigarðinn í Smáralindinni og skemmtu sér konunglega. Þegar klukkan fór að slá 8 fóru flestir í bíó á myndina The Sitter en aðrir fóru að hitta fjölskyldumeðlimi.

Uppúr hálf 11 þegar myndin kláraðist var haldið uppá hótel. Þegar þangað var komið var pöntuð pizza frá Dominos, sem hann Gísli Jón var svo góður að splæsa á okkur. Eftir að við höfðum étið á okkur gat var haldið í rúmið. Morguninn eftir kl 8 var ræs í morgunmat og menn lögðu sig smá eftir hann. Síðan rann stundin upp, um klukkan 9 voru allir ræstir aftur og við kláruðum að pakka niður og svo var farið út í rútu. Þegar allir voru þangað komnir var haldið af stað upp í KR heimili, eftir miklar leitir fundum við það loksins. Við klæddum okkur í föt og fórum svo að hita upp og svo hófst leikurinn. Við byrjuðum af miklum krafti og stóðum vel í þeim og í hálfleik var staðan 18-11. Við héldum áfram að spila vel og að leikslokum var staðan 34-24 fyrir KR.

Eftir leikinn héldu allir sáttir í sturtu þótt við hefðum tapað. Við áttum samt góðan leik og allir stóðir sig vel þótt skemmtilegra hefði verið ef við hefðum unnið. Þegar allir voru búnir í sturtu var farið út í rútu og svo upp í Kringlu að fá sér að borða og beint heim. Við stoppuðum á Hólmavík og fengum okkur smá að éta og vorum svo komnir á Ísafjörð rúmlega 10.


-Þórólfur og Birkir


Heimasíðan þakkar Birki og Þórólfi kærlega fyrir ítarlegan og skemmtilegan leikmannapistil.

Áfram Hörður! 

Skrifaðu athugasemd:


Fréttir

Vefir aðildarfélaga HSV

Vefumsjón