27. maí 2012 - Ingvar Örn Ákason
Lokahóf Harðar!
Lokahóf Harðar verður haldið í Torfnesi næstkomandi þriðjudagskvöld, 29.maí, kl. 19:00. Veittar verða viðurkenningar í öllum flokkum ásamt því að handknattleiksmaður Harðar verður valinn sem og Harðverji ársins. En sú viðurkenning er veitt þeim iðkanda sem er góð fyrirmynd innan sem utan vallar og drífur liðsfélagana með sér á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Glæsileg verðlaun fyrir þann sem hlýtur nafnbótina Harðverji ársins.
Þriðjudagurinn 29.maí næstkomandi kl. 19:00 í Torfnesi. Stjórnir deildanna innan Harðar grilla svo ofan í foreldra og iðkendur og N1 gefur öllum iðkendum óvæntan glaðning.
Áfram Hörður og sjáumst hress á þriðjudag!