Úrslit síđustu leikja hjá 2.flokki og meistaraflokki Harđar
2.flokkur spilaði fyrir skömmu tvo leiki gegn Akureyri2 hér á Ísafirði. Ákveðið var, sameiginlega af hálfu beggja liða, að spila báða leikina hér fyrir vestan og spara þar með ferðakostnað. Akureyri2 vann báða leikina sannfærandi. Fyrri leikurinn fór 30-20 (20-8 í hálfleik) og seinni leikurinn fór 33-22 (16-10 í hálfleik). Næstu verkefni 2.flokks eru ekki fyrr en eftir áramót en þeir eiga næst heimaleik á móti ÍR laugardaginn 7.janúar.
Meistaraflokkur (þar sem uppistaðan var leikmenn 2.flokks og svo nokkrir reynsluboltar í bland) tók þátt í bikarkeppni HSÍ á dögunum. Við sátum hjá í fyrstu umferð og fórum því beint í 16-liða úrslit. Þar drógumst við gegn Stjörnunni2, eða Heimsliðinu, eins og þeir kalla sig í utandeildinni. Sigur Heimsliðsins var aldrei í hættu og þeir fóru að lokum með 41-27 útisigur í farteskinu heim í Garðabæinn. Næsta verkefni meistaraflokks er því að ári í bikarnum.
Af öðrum flokkum má nefna það að 5.flokkur yngri keppir á sínu fyrsta Íslandsmóti í vetur þegar þeir halda suður um helgina og spila á deildarmóti ÍR-inga í Austurbergi. Þeir spila einungis 3 leiki seinni part laugardags en verið er að vinna í því að fá 2-3 æfingaleiki á sunnudagsmorgninum fyrir heimför. 3.flokkur spilar síðan á sunnudag kl. 14:00 sinn erfiðasta leik til þessa á Íslandsmótinu í 2.deildinni þegar þeir mæta langsterkasta liði riðilsins á papír allavega en þá mætir FH1 í heimsókn.
Áfram Hörður!