A A A
Kristján Ţór Kristjánsson Kristján Ţór Kristjánsson | fimmtudagurinn 2. febrúar 2012

Samstarf viđ afreksbraut MÍ

Næstu vikurnar verður íþróttaskólinn í samstarfi við afreksbraut menntaskólans. Krakkar á afreksbraut fá að koma inn í tíma íþróttaskólans og stjórna æfingum. Þetta verður hluti af námi þeirra á afreksbrautinni.

Tveir nemendur koma í einu og þjálfa einn dag og eru þá búnir að undirbúa tímaseðil sem þau þjálfa eftir. Þjálfari íþróttaskólans fer yfir tímaseðlana fyrir hvern tíma og verður þeim svo til halds og trausts í tímunum .

 

Við hjá íþróttaskólanum erum mjög spennt að fá þetta unga og efnilega afreksfólk í samstarf með okkur og vitum að báðir aðilar eiga eftir að njóta góðs af. Þá er ég viss um að þeir sem græða mest á þessu eru krakkarnir okkar í íþróttaskólanum sem komast í návígi við okkar efnilegasta íþróttafólk.

Kristján Ţór Kristjánsson Kristján Ţór Kristjánsson | fimmtudagurinn 26. janúar 2012

Íţróttaskóli HSV fellur niđur í dag

Íþróttaskóli HSV fellur niður í dag fimmtudaginn 26.janúar vegna veðurs og ófærðar.  

Kristján Ţór Kristjánsson Kristján Ţór Kristjánsson | föstudagurinn 20. janúar 2012

Handboltatímabil

Ólafur Stefánsson
Ólafur Stefánsson

Þá er fyrra körfuboltatímabilið á enda í boltaskólanum og við tekur handbolti til 3. febrúar. Eins og áður hefur komið fram þá ætlum við að stytta hvert boltatímabil á vorönninni og vera með hverja grein tvisvar en ekki einu sinni eins og á haustönninni. Þetta er gert til þess að ekki líði of langur tími á milli greina því við höfum fleiri daga að vinna með á vorönn en haustönn.

Í grunnþjálfun þessa vikuna vorum við með þrautahringi í bland við ýmsa skemmtilega leiki. Í næstu viku verður þemað í grunnþjálfun Badminton og leikir tengdir því.

Við viljum að lokum minna foreldra á að það þarf að skrá krakkana aftur inn fyrir vorönnina. Það er gert með því að fara í gegnum skráningarferlið sem er á heimasíðu okkar www.hsv.is/ithrottaskoli. Gjaldið er það sama og áður 1.750 kr. pr. mánuð eða samtals 8.750 kr. önnin.

 

Íþróttakveðjur frá Íþróttaskólanum

Kristján Ţór Kristjánsson Kristján Ţór Kristjánsson | föstudagurinn 13. janúar 2012

Skíđagöngumót

Eins og einhverjir vita átti fyrsta skíðagöngumót vetrarins að fara fram á  þriðjudag. Sú hefð hefur hins vegar skapast á undanförnum árum að fresta þessari boðgöngu og verður ekki brugðið frá þeirri reglu í ár.

Boðgangan verður sem sagt á næsta þriðjudaginn.

 

Í boðgöngunni keppa allir saman, óháð aldri, kyni eða getu. Þeim sem mæta til leiks er skipt í sveitir og er venjan sú að í hverri sveit sé eitt barn og tveir eldri (unglingar og/eða fullorðnir). Börnin ganga um 800 metra, hinir ganga annars vegar 1,5 km og hins vegar 2,5 km. Þeir sem teljast til keppnismanna ganga lengsta sprettinn. Allt er þetta fyrst og fremst til gamans gert, til þess að byrja keppnistímabilið á jákvæðan og skemmtilegan hátt. Og þar sem það skemmtilegasta við skíðagöngumót er að fá að borða á eftir, þá langar okkur að biðja þau sem tök hafa á, að hafa með sér svolítið bakkelsi sem hægt væri að setja í hlaðborð inni í skálanum eftir göngu.

 

Það er ekki skylda að vera með í boðgöngunni, þeir sem ekki vilja taka þátt fara á hefðbundna æfingu á meðan.

 

Nánari upplýsingar verða sendar út þegar nær dregur mótsdeginum, sem verður þriðjudagurinn 17. Janúar.

 

Ef fólk vill vera á  póstlista skíðagönguliðsins þá er best að senda Stellu línu og hún bætir ykkur á lystann, stella@misa.is.

 

Eins viljum við mynna á símsvarar skíðagönguæfinga 878 1512. Þar koma upplýsingar um æfingu dagsins fram.

 

Skíðakveðjur frá íþróttaskólanum

Kristján Ţór Kristjánsson Kristján Ţór Kristjánsson | fimmtudagurinn 15. desember 2011

Jólamót Skells

Jólamót Skells verður haldið sunnudaginn 18. desember frá kl. 11.00 – 15.00 og hvetjum við alla krakka íþróttaskólans að taka þátt í skemmtilegu móti.

 Krakkarnir í 3. og 4. bekk eiga að mæta kl. 12.00 en krakkarnir í 1. og 2. bekk klukkan 14.00. Mótið tekur um klukkutíma fyrir hvorn hóp fyrir sig. 

 

Mótsgjald er kr. 700 og greiðist á staðnum. Inni í því er glaðningur fyrir alla og piparkökur og djús.

Skráning á mótið verður á staðnum.

Krakkarnir munu spila krakkablak - stig 1.-2. Krakkablak er afbrigði af blaki þar sem boltanum er kastað og hann gripinn. Krakkarnir hafa verið að æfa sig í þessum leik í boltaskólanum.

 

Athugið að það verða allir að mæta á réttum tíma svo hægt sé að raða í lið.

 

Við hvetjum foreldra að koma og fylgjast með börnunum sínum í þessari skemmtilegu íþrótt.

 

Kristján Ţór Kristjánsson Kristján Ţór Kristjánsson | fimmtudagurinn 15. desember 2011

Jólamót Vestra

Næstkomandi föstudag heldur Vestri  jólamót Vestra í sundhöllinni.

 Krakkar í 3.-4. bekk sem hafa verið í sundi í íþróttaskólanum er heimil þátttaka en vegna þröngs tímaramma var ekki hægt að bjóða 1.-2. bekk að vera með og er stefnt að því að halda mót fyrir þau strax á nýju ári.

 Krakkarnir mæta á sína hefðbundnu æfingu á föstudaginn þar sem farið verður yfir það sem gert er á mótinu.

 Upphitun hefst svo kl. 16.30 og mótið sjálft kl 17.00. Muna að hafa með sér föt til að vera í á bakkanum.

 Stjórn Vestra óskar eftir aðstoð foreldra við tímatöku á mótinu og eru foreldrar beðnir um að gefa sig fram á mótsstað.

 

 Eftir sundmótið verður notalega jólastund í félagsmiðstöðinni. Allir sundkrakkar íþróttaskólans (1.-4. bekk) eru velkomnir og hvetjum við foreldra einnig að mæta.

Okkur langar til að biðja hvern og einn að leggja til smákökur, kökur eða hvað sem þeir helst óska á sameiginlegt borð.

Vestri býður upp á heitt súkkulaði með rjóma og djús.

Vel þegið væri að fá foreldra til aðstoðar við uppsetningu og í kakóundirbúing.

 

Eftir þetta mót er sundhluti íþróttaskólans komin í jólafrí.

 

 

 

 

Kristján Ţór Kristjánsson Kristján Ţór Kristjánsson | fimmtudagurinn 8. desember 2011

Skíđaćfingar

Fjör á gönguskíđum
Fjör á gönguskíđum

Nú hefur snjóað nóg á Seljalandsdalnum til þess að hægt sé að byrja gönguskíðaæfingar. Þetta eru frábærar fréttir fyrir okkur í íþróttaskólanum því allir krakkar skólans eiga kost á að taka þátt í þeim æfingum sem hluta af íþróttaskólanum og viljum við hvetja alla til að mæta og taka þátt í skemmtilegri íþrótt.

 

Yfirumsjón með gönguþjálfuninni hefur Stella Hjaltadóttir. Hún hefur áralanga reynslu af þjálfun barna og unglinga og er margfaldur meistari á gönguskíðum.

 

Æfingarnar verða á þriðjudögum og fimmtudögum kl.17:30-18:30 og laugardögum kl. 11:00-12:00. Allir krakkar íþróttaskólans æfa á sama tíma.

 

Svarhólf skíðagönguliðs SFÍ er: 878-1512.  Þjáfari les inn skilaboð þá daga sem æfingar eru.  Stundum er óhagstætt veður og þá getur áætlun breyst með skömmum fyrirvara.

 

Skíðafélagið á skíðagöngubúnað til að lána þeim sem vilja prófa. Ef fólk vill nýta sér það er best að lát Stellu vita af því fyrirfram til að tryggja að allir fái búnað sem eftir því óska. Netfangið hjá Stellu er stella@fvi.is.

Þá verður skíðamarkaður skíðafélagsins settu af stað fljótlega þar sem hægt er að kaupa og selja notaðan búnað fyrir sanngjarnt verð. Við látum vita þegar ákveðið er hvenær markaðurinn fer í gang.

 

Svigskíðaæfingar hefjast svo þegar nægur snjór er komin í Tungudalinn og lyftur opna og ætlum við að reyna eins og kostur er að setja þær æfingar upp þannig að árekstrar við gönguskíðin verði sem minnst þannig að hægt sé að stunda báðar greinar.

 

Ekkert er meira hressandi en fjallaloft vetrarins og eins eru vetraríþróttir frábært fjölskyldusport þar sem allir geta tekið þátt. Tilvalið er fyrir foreldra að fara á skíði meðan börnin stunda æfingarnar J

Kristján Ţór Kristjánsson Kristján Ţór Kristjánsson | ţriđjudagurinn 1. nóvember 2011

Ćfingar í vetrarfríi GÍ

Nú þegar líður að vetrarfríi í Grunnskólanum viljum við minna á að Íþróttaskóli HSV verður í fullu fjöri og æfingar samkvæmt stundaskrá þá daga sem Grunnskólinn er í fríi.

Handboltatímabilið fer vel af stað hjá okkur og þá verðum við með badminton þema í grunnþjálfun næstu daga.

Kristján Ţór Kristjánsson Kristján Ţór Kristjánsson | mánudagurinn 24. október 2011

Frjálsar íţróttir í grunnţjálfun

Það var mikið fjör hjá okkur í grunnþjálfun í síðustu viku. Þema vikunar voru frjálsar íþróttir og fengu krakkarnir að prófa ýmsar greinar þeirra. Við höldum svo áfram þessa viku og bætum við fleiri greinum frjálsíþróttanna.

Kristján Ţór Kristjánsson Kristján Ţór Kristjánsson | mánudagurinn 24. október 2011

Handboltinn ađ taka viđ í boltaskólanum

Nú fer að líða að skiptum á boltagrein í boltaskólanum. Frá og með fimmtudeginum 27. október tekur handboltinn við af körfuboltanum. Ingvar Ákason mun sjá um þjálfun 3.- 4. bekkjar en Kristján Flosason um þjálfun 1.-2. bekkjar.

Körfuboltatímabilið hefur gengið mjög vel og greinilegar framfarir hjá krökkunum.

Fyrri síđa
1
23Nćsta síđa
Síđa 1 af 3
Eldri fćrslur

Vefir ađildarfélaga

Vefumsjón