| föstudagurinn 3. desember 2010
Emilía og Kristín fulltrúar Ívars á Special Olympics í Aţenu.
Íþróttasamband fatlaðra hefur valið fulltrúa sína sem taka þátt í Special Olympic sem haldið verður í Aþenu í Grikklandi á næsta ári. Íþróttafélagið Ívar á 2 fulltrúa í þeim hópi. Þeir eru Emilía Arnþórsdóttir og Kristín Þorsteinsdóttir. Emilía keppir í Boccia en Kristín í Sundi.
Leikarnir sjálfir verða haldnir 25. júni - 4. júlí á næsta ári en keppendur taka þátt í vinarbæjardagskrá sem verður það haldið dagana 20. - 24. júní. Sú dagskrá verður þannig að það er borg eða bær í nágrenni Aþenu sem tekur á móti íslensku keppendunum. Þetta er kjörið tækifæri til að venjast aðstæðum, því á þessum árstíma er bæði mjög heitt og rakt og einnig til þess að kynnast nýju fólki.
Tíminn fram að leikunum verður svo nýttur til að æfa vel og undirbúa sig undir fyrir þetta mikla ævintýri.