Fyrirtækjamót Ívars í Boccia
Helsta fjáröflun Ívars
Sunnudaginn 16 október kl. 13:30, ætlar Íþróttafélagið Ívar að halda hið árlega opna Bocciamót í Íþróttahúsinu á Torfnesi í tíunda sinn, og vill bjóða öllum sem hafa áhuga að senda lið og taka þátt.
Keppnin er liðakeppni, tveir í liði. Það geta verið t.d. vinnufélagar, vinir eða fjölskyldumeðlimir.
Veittur er farandbikar fyrir fyrsta sæti ásamt gjafabréfi frá „Valla Bakara“ ávísun á tertu fyrir 40 manns. Síðan verða veitt ýmis aukaverðlaun svo sem fyrir bestu liðsheild, bestu hittni, besta stuðningsliðið.
Þátttökugjald er kr. 7.000,- á lið, en fyrirtækjum er frjálst að greiða hærri upphæð sem styrk við félagið. Tekið er við skráningum í síma: 897-7370 Arnþór og 863-1618 Harpa eða í netföngunum: arnjon@simnet.is og gek@snerpa.is . Tekið er við skráningum til kl. 13 fimmtudaginn 13. okt.
Þátttökugjaldið er notað til þess að styrkja íþróttafólk Ívars til þátttöku á Íslandsmótum í Boccia og sundi.
Þeir sem vilja kynnast Boccia betur fyrir mótið, eða æfa liðið eru velkomnir á Bocciaæfingar í næstu viku í Íþróttahúsinu á Torfnesi á miðvikudaginn og föstudaginn kl.17.
|
Ath!! Ath!! Ath!! Kaffihlaðborð eftir undaúrslitin Verð kr. 1.200 fullorðnir og 600 kr. Börn 7-12 ára |
Við hvetjum ykkur til að vera með og hafa gaman af eins og undanfarin ár.