Sólarpönnukökur
Mánudaginn 30. janúar verður hin árlega sólarpönnukökusala. Nú á vegum Íþróttafélagsins Ívars. Pönnukökusalan er til fjáröflunar starfi félagsins en það er skemmtilegur siður hjá fyrirtækjum á Ísafirði að bjóða starfsfólki sínu upp á pönnukökur í tilefni komu sólar.
Íþróttafélagið Ívar heldur uppi
íþróttastarfi fyrir fatlaða á Ísafirði og nágrenni.
Farnar eru ferðir árlega á Íslandsmót bæði í Boccia og sundi.
Pönnukökurnar verða keyrðar út mánudaginn 30. janúar. Verð er eftirfarandi :
Pönnukaka með sykri 100 kr. Pönnukaka með sultu og rjóma 200 kr. Pönnukaka ósamsett þar sem sultan og rjóminn fylgja með í íláti 200 kr.
Pantanir sendist á arnjon@simnet.is Reikningar verða sendir með pönnukökunum. Á pöntun þarf að koma þarf fram:
Fyrirtæki: Vestri ehf. Suðurgata 12, Ísafirði
Afhendingarstaður:Kaffistofa á 1. hæð Vestrahúss
Magn: 15 st. með sykri, 15 st. með sultu og rjóma 15 st. ósamsett.
Afhendingartími:
Pantanir þurfa að berast fyrir kl: 16:00 á fimmtudaginn 26.jan.
Kær kveðja, Stjórn Íþróttafélagsins Ívars