Landsmót UMFÍ 50+

Allir sem eru 50 ára og eldri geta tekið þátt í þeim fjölmörgu hefðbundnu og óhefðbundu keppnisgreinum sem verða á mótinu, hvort sem þeir eru í Ungmennafélagi eða ekki. Þátttakendur greiða eitt mótsgjald sem er 4.500 krónur og öðlast þeir við það þátttökurétt í öllum keppnisgreinum mótsins.

Landsmót UMFÍ 50+ er ekki einungis íþróttamót heldur einnig heilsuhátíð og verður boðið upp á fyrirlestra um heilbrigðan lífsstíl og ýmsar heilsufarsmælingar.

Á meðal hefðbundinna greina á landsmótinu á Ísafirði eru skák og sívinsælar greinar á borð við pútt, bridge og boccia. Þeir sem vilja reyna sig í óhefðbundnum greinum geta keppt í pönnukökubakstri, sem er orðinn fastur liður á landsmótunum. En nú bætist líka við æsispennandi og framandi greinar á borð við netabætingu og línubeitningu.

Á meðal annarra greina eru þríþraut, kajak, sund og strandblak, karfa, golf, frjálsar, bogfimi, skotfimi og badminton. Svo má auðvitað ekki gleyma stígvélakastinu! 

Endilega kíktu á dagskrána, þar finnur þú áreiðanlega þína uppáhaldsgrein.

Hér má svo sjá kort af Ísafirði til að staðsetja sig betur.