Félagið
Blakfélagið Skellur er aðildarfélag að Hérðassambandi Vestfirðinga (HSV) og heldur nú úti krakkablaki á tveimur stöðum í Ísafjarðarbæ, á Ísafirði og Suðureyri. Æfingar í krakkablaki hófust haustið 2007 og voru þá einnig æfingar á vegum félagsins á Þingeyri, en Íþróttafélagið Höfrungur á Þingeyri tók síðan við starfinu þar.
Haustið 2009 sendi félagið síðan í fyrsta skipti lið á Íslandsmót í krakkablaki. Árangur krakkanna var vægast sagt frábær, en eitt af liðunum endaði tímabilið sem Íslandsmeistarar og annað lið endaði í öðru sæti í sínum flokki.
Öldungamót BLÍ 2008 var haldið hér af félaginu dagana 1-3 maí. Verkefnið var gríðarstórt, spilað var á 6 völlum, á þremur völlum í íþróttahúsinu á Torfnesi og í íþróttahúsunum á Flateyri, á Suðureyri og í Bolungarvík. Á mótinu kepptu yfir 90 lið eða rúmlega 600 manns.
Það að félagið fékk það verkefni að halda Öldungamótið 2008, var sannarlega vítamínssprauta fyrir starfsemi félagsins. Slagkrafturinn var notaður til að koma krakkablakinu á koppinn og hefja keppni í 3ju deild. Einnig hefur karlalið verið starfandi síðan þennan sama vetur og keppt með ágætum árangri á öldungamótum og hraðmótum síðan.