Stefna Blakfélagsins Skells í vímuvörnum
1. Forvarnargildi íþrótta
Íþróttahreyfingin gegnir mikilvægu hlutverki í vímuvörnum. Rannsóknir á börnum og
ungmennum sýna að þau ungmenni sem eru virk í íþróttastarfi, reiðir betur af í námi og leiðast síður út í neyslu vímuefna..Með skipulögðum æfingum, keppni og annarri skipulagðri afþreyingu gegnir Blakfélagið Skellur því mikilvægu forvarnarhlutverki hjá börnum og ungmennum sem eru iðkendur á vegum félagsins. Með því að reyna að ná til sem flestra barna og ungmenna og gæta þess að allir séu velkomnir á æfingar á vegum félagsins eykst þetta forvarnargildi. Blakfélagið Skellur tekur skýra afstöðu gegn neyslu vímuefna og tóbaks í tengslum við íþróttir barna og ungmenna.
2. Neysla tóbaks og vímuefna
Öll neysla tóbaks og vímuefna er bönnuð á æfingum og í keppni á vegum félagins hjá öllum aldurshópum, hvort sem um er að ræða þjálfara, iðkendur eða fararstjóra. Fullorðnir félagar skulu vera yngri félögum góð fyrirmynd í tengslum við allt starf og atburði á vegum félagsins þar sem yngri og eldri iðkendur eru saman.
3. Viðbrögð félagsins við neyslu iðkenda
Félagið mun bregðast sérstaklega við allri neyslu tóbaks og vímuefna iðkenda undir 18 ára aldri og verða foreldrar eða forráðamenn undantekningarlaust upplýstir um slíka neyslu. Ef iðkendur undir 18 ára verða uppvísir að neyslu vímuefna í ferðum á vegum félagsins verða þeir umsvifalaust sendir heim á kostnað foreldra.
Þegar um sjálfráða einstaklinga er að ræða (eldri en 18 ára) mun félagið bregðast við neyslu þeirra á vímuefnum og tóbaki þar sem reglur félagsins eru brotnar (sbr. lið 2).
Viðurlög Blakfélagsins Skells við broti á þessum reglum verða í formi tilmæla og ábendinga. Við ítrekuð brot getur komið til tímabundins banns frá æfingum og/eða keppni. Viðbrögð félagins munu samt ávallt mótast af vilja til að aðstoða iðkandann við að laga sig að reglum og að hann haldi áfram að starfa innan félagsins.
4. Hlutverk þjálfara
Þjálfarar skulu vinna eftir forvarnarstefnu félagsins, þar með talið að bregðast við vímuefnaneyslu iðkanda á viðeigandi hátt. Félagið mun sjá þjálfurum fyrir fræðslu um áhrif vímuefnaneyslu á árangur í íþróttum sem þjálfarar síðan miðla áfram til iðkenda þegar það á við.
Þjálfarar skulu framfylgja stefnu félagsins varðandi samstarf við foreldra, HSV og aðra aðila sem sinna málefnum barna og unglinga í Ísafjarðarbæ.
5. Samstarf við foreldra
Blakfélagið Skellur mun upplýsa foreldra um stefnu félagsins í vímuvörnum. Félagið mun standa að góðu samstarfi við foreldra iðkenda og halda á lofti kostum þess að stunda heilbrigt líferni og borða hollan mat.
Félagið mun starfa náið með fagfólki í vímuvörnum og hafa samráð við foreldra, þurfi að taka á neysluvandamáli iðkenda undir sjálfræðisaldri.
6. Samstarf við aðra aðila sem sinna málefnum barna og unglinga
Blakfélagið Skellur mun hafa náið samstarf við fagaðila sem sinna börnum og unglingum, fá frá þeim fræðsluefni og hafa samráð um einstaklinga í áhættuhópi.
Ísafirði, 29.desember 2010
Stefnuyfirlýsing ÍSÍ um forvarnir og fíkniefni
Neysla áfengis, tóbaks eða fíkniefna á aldrei samleið með iðkun íþrótta og vill íþróttahreyfingin á Íslandi efla forvarnarhlutverk sitt á eftirfarandi hátt:
Setja fram markvissa stefnu
· Hvetja íþrótta- og ungmennafélög til þess að festa í lög sín ákvæði þar sem tekin er einörð afstaða gegn neyslu á áfengi og fíkniefnum
· Móta sameiginlegar starfsreglur um hvernig tekið skuli á fíkniefnavanda ungs fólks á vettvangi íþróttahreyfingarinnar og hvernig unnið skuli að forvörnum og gera öll íþróttamannvirki algerlega reyklaus
Stuðla að aukinni og almennari þátttöku ungs fólks í íþróttastarfi
· Hvetja íþrótta- og ungmennafélög til þess að vinna marvisst að því að fjölga iðkendum íþrótta meðal barna og unglinga, meðal annars með því að auka fjölbreytni í iðkuninni og tryggja þannig að öll börn og unglingar fái tækifæri til þess að stunda íþróttir í samræmi við eigin þarfir, getu og áhuga.
· Nýta mannvirki og aðstöðu íþróttahreyfingarinnar til þess að festa íþróttastarf í sessi sem raunhæfan valkost til skemmtunar fyrir unglinga, til dæmis með því að bjóða upp á iðkun óhefðbundinna greina.
· Halda opin hús í íþróttamannvirkjum eða efna til annars konar íþróttastarfs fyrir þessa aldurshópa þar sem meiri áhersla er lögð á að koma til móts við þarfir þeirra fyrir afþreyingu og skemmtun en keppni og afrek.
Auka þekkingu á skaðsemi fíkniefna og forvörnum innan hreyfingarinnar
· Gefa út fræðsluefni um fíkniefni og forvarnir fyrir þjálfara og iðkendur og gera fræðslu um þessi málefni að föstum þætti í fræðslustarfi íþróttahreyfingarinnar og í íþróttanámi í framhaldsskólum
· Fela þjálfurum að fræða þá iðkendur sem þeir þjálfa um áhrif áfengis, tóbaks og fíkniefna á heilbrigði þeirra og árangur í íþróttum
· Hvetja sambandsaðila íþróttahreyfingarinnar til þess að fjalla um fíkniefni og forvarnir í málsgögnum sínum og ritum.