A A A

Atburðir

Lög Blakfélagsins Skells

1.grein - Heiti og markmið

Félagið heitir Blakfélagið Skellur og heimili þess er á Ísafirði.

Markmið og tilgangur félagsins er að stuðla að eflingu blakíþróttarinnar í Ísafjarðarbæ.

 Tilgangi sínum hyggst félagið ná með eftirtöldum hætti:

  • Að ráða þjálfara til að halda uppi reglubundnum æfingum í blaki í öllum aldursflokkum.
  • Að hvetja til og taka þátt í keppni í blaki meðal félagsmanna og einnig við önnur félög.
  • Vinna að öðru leyti eftir markmiðum og stefnuskrá UMFÍ og ÍSÍ.

 

2.grein - Merki félagsins

Merki félagsins er svart/hvítt.  Á merkinu er blaknet og blakbolti.  Á merkinu kemur einnig fram nafn félagsins og heimili. Merkið er hannað af Hildi Runólfsdóttur.

 

3.grein - Aðild að heildarsamtökum

Félagið er aðili að Blaksambandi Íslands með aðild sinni að Héraðssambandi Vestfirðinga (HSV).

 

4.grein - Stjórn og skipulag félagsins

 

Um stjórn félagsins gildir eftirfarandi:

  1. Stjórnin félagsins er skipuð fimm manns.  Formanni, ritara, gjaldkera, varaformanni og meðstjórnanda auk tveggja varamanna.
  2. Stjórn skal vera kosin á aðalfundi félagsins og skal vera skipuð fullgildum félagsmönnum.
  3. Stjórnin skiptir með sér verkum á fyrsta fundi og hefur vald til að skipa í allar stöður félagsins.
  4. Stjórn félagsins markar stefnu þess á milli aðalfunda og fer með daglegan rekstur og umsýslu vegna meistaraflokka félagsins. Miklar fjárhagsskuldbindingar skal bera undir félagsfund.

 

Um barna- og unglingaráð gildir eftirfarandi:

  1. Ráðið er skipað formanni, ritara og gjaldkera auk eins varamanns.
  2. Barna- og unglingaráð skal vera kosið á aðalfundi félagsins og vera skipað fullgildum félögum í Blakfélaginu Skelli.
  3. Barna- og unglingaráð skiptir með sér verkum á fyrsta fundi.
  4. Ráðið fer með daglegan rekstur og umsýslu vegna yngri flokka félagsins. Allar fjárhagsskuldbindingar barna- og unglingaráðs eru háðar samþykki stjórnar félagsins.

Fjármál og bókhald stjórnar annars vegar og barna- og unlingaráðs hins vegar, skal vera aðskilið og sundurliðað í ársreikningi félagsins.

Fjárhagsárið skal vera almanaksárið.

 

5.grein - Félagsmenn og kjörgengi

Fullgildir félagsmenn teljast þeir sem greiða æfingagjöld til félagsins. Félagsmenn sem eru 18 ára eða eldri hafa atkvæðisrétt og kjörgengi. Foreldrar og forráðamenn barna yngri en 18 ára hafa kjörgengi og atkvæðisrétt fyrir þeirra hönd.

 

6.grein - Aðalfundir og dagskrá

Aðalfundur félagsins hefur æðsta vald og ákvörðunarrétt í öllum málum þess. Aðalfund félagsins skal halda eigi síðar en 31.mars ár hvert. Á dagskrá aðalfundar skal vera:

  1. Formaður setur fund.
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  3. Skýrsla formanns um liðið starfsár.
  4. Skýrsla gjaldkera um liðið starfsár.
  5. Umræður um skýrslur og afgreiðsla þeirra.
  6. Lesin upp fundargerð síðasta aðalfundar.
  7. Kosningar
    1. Kosning formanns til eins árs í senn.
    2. Kosning tveggja stjórnarmanna til tveggja ára í senn.
    3. Kosning tveggja varamanna í stjórn til eins árs í senn.
    4. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
    5. Kosning barna- og unglingaráðs til eins árs í senn.
  8. Önnur mál.
  9. Fundarslit.

Aðalfundur er lögmætur ef boðað er til hans með minnst 10 daga fyrirvara, með pósti til félagsmanna og auglýsingum a.m.k. á heimasíðu félagsins.

Allar kosningar á aðalfundi skulu fara fram skriflega ef stungið er upp á fleirum en kjósa skal.

 

7. grein - Félagsfundir

Meirihluti stjórnar eða fjórðungur félagsmanna getur hvenær sem er krafist félagsfundar. Félagsfundur hefur sama vald og aðalfundur að undanskyldum laga­breytingum og stjórnarkosningu.

 

8.grein - Lagabreytingar

Lögum félagsins er ekki hægt að breyta nema á aðalfundi félagsins og ræður þá einfaldur meirihluti (+1)

Allar tillögur um breytingar á lögum félagsins skulu berast skriflega til ritara stjórnar, minnst fjórum dögum fyrir aðalfund.

 

9.grein

Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi 15.03.2010  og öðlast þegar gildi, og jafnframt eru felld úr gildi eldri lög félagsins.

 

 

Vefumsjón