14. apríl 2010 - Ásdís Birna Pálsdóttir
3.deildin, tveir sigrar og eitt tap
Kvennalið Skells keppti í síðustu umferð 3. deildar Íslandsmótsins um síðustu helgi. Liðið spilaði þrjá leiki og vann tvo af þeim en tapaði einum. Þrátt fyrir það lenti Skellur í þriðja sæti af fjórum í riðlinum þar sem þrjú efstu liðin voru öll með fjögur stig en Skellur með lakasta hrinuhlutfallið. Leikirnir voru spennandi og skemmtilegir eins og venjulega í þessu móti. Skellur lenti í heildina í 9. sæti 3. deildar sem er nálægt miðri deild.