A A A

Atburðir

13. júní 2012 - Sigurður Hreinsson

Blakfélagið Skellur á Ísafirði óskar eftir þjálfara fyrir starfsárið 2012 - 2013.

Félagið heldur úti æfingum hjá meistaraflokki karla og kvenna og einnig í yngri flokkum, 3. til 5. flokki. Þá er félagið þátttakandi í íþróttaskóla HSV og sér um blakþjálfun barna í 3.-4. bekk í lotum nokkrum sinnum yfir veturinn.

Í boði er að taka við allri þjálfun á vegum félagsins eða hluta af henni.

Félagið sér um að útvega íbúð og getur aðstoðað við að finna vinnu með, en þjálfunin er ekki fullt starf.

Áhugasamir hafi samband við formann félagsins í gegnum netfangið sigurdurjh@internet.is fyrir 15 júlí.

Vefumsjón