13. febrúar 2011 - Sigurður Hreinsson
Nýr formaður Blakfélagsins Skells, Harpa Grímsdóttir
Þriðjudaginn 8 febrúar sl. var aðalfundur Blakfélagsins Skells haldinn í fundarsal Íþróttahússins á Torfnesi á annari hæð.
Dagskrá fundarins var hefðbundin aðalfundarstörf. Breytingar urðu á stjórn félagsins, þar sem Sigurður Hreinsson gaf ekki kost á sér áfram sem formaður, auk þess sem Ásdís Birna Pálsdóttir óskaði eftir að losna úr stjórn. Nýr formaður var kjörinn Harpa Grímsdóttir en Sigurður heldur áfram í stjórn sem meðstjórnandi. Nýir stjórnarmenn komu inn í barna- og unglingaráð.
Á fundinum lagði stjórn félagsins fram stefnu félagsins í vímuvörnum. Forsaga þess máls er að á formannafundi HSV árið 2009 var samþykkt að öll aðildafélög HSV tækju upp stefnu í vímuvörnum og gætu þannig betur sinnt því mikilvæga hlutverki sínu. Forvarnarstefna félagsins verður innan skamms aðgengileg hér á vef félagsins. Stjórn yngriflokkaráðs lagði fram stefnu félagsins á málefnum yngri flokka en hún er undir tenglinum Krakkablak.
Í skýrslum formanns og gjaldkera fyrir síðasta ár kom fram, að fjárhagsstaða félagsins sé allgóð, og að rekstrarniðurstaða ársins hafi verið jákvæð. Skýrsla formanns er í heild sinni hér fyrir neðan.
Jón Páll Hreinsson formaður HSV stýrði aðalfundinum af röggsemi og festu, og eru honum hér færðar bestu þakkir fyrir.
...
Meira