Kökubasar á föstudaginn 3. desember í Neista, fyrir framan Samkaup.
Ágætt væri að merkja smákökupokana með tegundarheiti og innihaldslýsingu.
Kökubasarinn á að hefjast kl. 15:00. Anna Kata verður komin en ef einhverjir foreldrar sjá sér fært að mæta í byrjun væri það mjög gott.
Allir krakkar sem eru að fara á Íslandsmótið eiga að mæta og selja.
5. flokkur sem klárar æfingu kl 14:40 á að koma kl. 15:00
4. flokkur sem klárar æfingu kl 15:30 á að koma eftir æfingu.
5. flokkur sem klárar æfingu kl 16:15 á að koma kl. 16:30
Einnig höfum við tækifæri á fjáöflun á laugardaginn, við fáum kr. 10.000 fyrir að útvega smákökur o.fl. fyrir jólamótið í blaki. Við munum senda út sms á föstudaginn, eftir kökubasarinn til að láta vita hvað vantar uppá vegna þess.
kveðja Harpa og Anna Kata
Akureyri á föstudaginn - mæting 12:10!!!!
Ákveðið hefur verið að flýta brottför á föstudaginn sökum þess að öll börnin eru búin í skólanum kl. 12. Mæting er kl. 12:10 við Torfnes og brottför kl. 12:30.
- Veitingasalan um helgina gekk framar vonum og var því hægt að lækka kostnað niður í 9500 kr. á barn. Leggist inn á reikninginn hér að neðan fyrir fimmtudag:
- kt:471204-3230
- 156-05-65049
- Allir hafi með sér hollt og gott nesti fyrir fyrsta daginn, ekki verður leyft að versla í sjoppum á leiðinni. Ekki má koma með sælgæti eða snakk, en kex og kökur eru í lagi. Mikilvægast er að hafa hollan og góðan og nægan mat því krakkarnir eiga erfiðan dag fyrir höndum á laugardaginn.
- Innifalið í verðinu er gisting í skóla, morgun- hádegis og kvöldverðir á meðan á móti stendur og ávextir, drykkir og brauðsneiðar yfir daginn.
- Borðað verður í sjoppu á leiðinni til baka á sunnudeginum og verður það innifalið í verðinu.
· Hlý föt - fyrir rútuna og til að ganga í á milli húsa á Akureyri
· Svefnpoka eða sæng
· Upphitunargalla: Íþróttaföt utan yfir keppnisbúninginn til að vera í milli leikja og í upphitun
· Vatnsbrúsa
· Sundföt og handklæði
· 1000 kr. í umslagi merktu barninu. Best er að hafa tvo 500-kalla. Þetta er eini vasapeningurinn sem má vera með.
Gist verður í Brekkuskóla og þar er líka morgunverðurinn. Mótið er í KA-höllinni, og hádegis- og kvöldverðir í Lundaskóla.
Liðin eru þannig skipuð.
Skellur 1, 4. flokkur:
Eva Karen Sigurðardóttir
Magðalena Jónasdóttir
Svanhildur Sævarsdóttir
Viktoría Auður Viktorsdóttir
Skellur 2, 4. flokkur
Bergrín Guðmundsdóttir
Dóróthea Magnúsdóttir
Elsa Sveinsdóttir
Leikmenn úr Skelli 1 og 2 í 5. flokki munu koma inn í liðið.
Skellur 1, 5. flokkur
Auður Líf Benediktsdóttir
Birkir Eydal
Bjarni Pétur Jónasson
Ívar Tumi Tumason
Skellur 2, 5. flokkur
Ásdís Hrefna Þorleifsdóttir
Dísa Líf Einarsdóttir
Ísak Andri Olsen
Kjartan Óli Kristinsson
Skellur 3, 5. flokkur
Benedikt Hrafn Guðnason
Birta Rós Þrastardóttir
Kolfinna Íris Rúnarsdóttir
Kolfinna Veigarsdóttir
Ólöf Dagmar Guðmundsdóttir
Skellur C, 5. flokkur
Ingibjörg Sif Magnúsdóttir
Katla Vigdís Vernharðsdóttir
Ólína Halla Þrastardóttir
Þórunn Birna Bjarnadóttir
Hægt verður að fylgjast með mótinu á heimasíðu krakkablaksins www.krakkablak.bli.is
Þjálfarar sem fara með í ferðina:
Jamie Landrey: s. 8461546
Þorgerður Karlsdóttir: s. 8999562
Harpa Grímsdóttir (verður ekki í rútunni): s. 8430413
Foreldrar sem fara með í ferðina eru: Aðalheiður Jóhannsdóttir, Jónas Þór Birgisson og Jóna Margrét Valgeirsdóttir.
Ferð yngri flokka á Íslandsmót á Akureyri
Nú fer að líða að Íslandsmótinu á Akureyri. Ákveðið hefur verið að fara með rútu, en það reyndist ódýrasti og eini raunhæfi kosturinn. Hér að neðan eru helstu upplýsingar um ferðina:
- Mæting kl. 12:40 á föstudaginn 5. nóvember við íþróttahúsið Torfnesi. Brottför kl. 13:00
- Kostnaður verður að hámarki 12-13 þús kr á barn, fer m.a. eftir veitingasölunni um helgina. Við látum vita endanlega tölu í næstu viku
- Allir hafi með sér nesti fyrir fyrsta daginn, ekki verður leyft að versla í sjoppum á leiðinni
- Borðað verður í sjoppu á leiðinni til baka á sunnudeginum og verður það innifalið í verðinu
Allir þurfa að hafa með sér:
- Svefnpoka eða sæng
- Dýnu: Vindsæng eða tjalddýnu. Það verður ekki pláss fyrir stórar og þykkar dýnur í rútunni.
- Skó og hnéhlífar
- Upphitunargalla: Íþróttaföt utan yfir keppnisbúninginn til að vera í milli leikja og í upphitun
- Sundföt og handklæði
- 1000 kr. í umslagi merktu barninu. Þetta er eini vasapeningurinn sem má vera með.
Við auglýsum eftir pabba til að koma með sem fararstjóri í ferðina
Þjálfarar og yngriflokkaráð
Íslandsmótið í Kópavogi
Ákveðið hefur verið að fara með flugi á Íslandsmótið. Þar sem ekki var nóg af lausum sætum í seinni vélarnar var pantað með morgunvélinni sem fer kl. 09:05 að morgni föstudagsins 16. apríl. Flogið verður til baka sunnudaginn 18. apríl og er áætluð lending á Ísafirði klukkan 17:40.
Kökubasarinn tókst vel og safnaðist um 75.000 kr. Hvert barn þarf að borga krónur 9000 fyrir ferðina og innifalið í því er:
- flugfar
- bílaleigubíll á föstudegi
- gisting í skóla
- morgun- og hádegisverður á laugardegi og sunnudegi
- kvöldverður á laugardegi
- mótsgjöld
Peningana á að leggja inn á:
Bankareikn. 0156-05-65049
kt.471204-3230
Setjið inn nafn barns og skýringu
Þar sem við förum á föstudagsmorgni þurfum við að finna okkur eitthvað til dundurs á föstudeginum. Við stefnum á að gera eitthvað skemmtilegt með krökkunum, t.d. að fara í skautahöllina og bíó. Af þessum sökum þurfa börnin að koma með vasapening sem geymdur verður hjá þjálfara í umslagi merktu þeim. Ráðlagður vasapeningur er 3500 kr og ef eitthvað verður afgangs fær barnið það með heim.
Allir þurfa að koma með:
- Íþróttaskó, hnéhlífar, brúsa o.þ.h.
- Nesti til að borða í hádeginu á föstudeginum - t.d. samloku og safa
- Svefnpoka eða sæng
- Dýnu
- Vasapening
Fylgist með fréttum og upplýsingum á heimasíðunni
Kveðja,
Þjálfarar:
Harpa, s. 8430413, harpa@vedur.is
Sólveig: s. 8490108
Nýjar upplýsingar varðandi ferð á Íslandsmótið í Neskaupstað:
Kökubasarinn síðastliðinn föstudag á Ísafirði tókst mjög vel. Allir skiluðu inn kökum og allar kökur seldust. Hagnaðurinn var tæpar 70 þús. krónur sem kemur til með að bæta verulega fjárhaginn vegna ferðarinnar. Foreldrum og krökkum eru færðar bestu þakkir fyrir gott starf.
Þeir sem ekki hafa greitt vegna ferðarinnar eru vinsamlegast beðnir um að gera það í síðasta lagi á þriðjudag, 3. nóvember. Upplýsingar eru neðst í bréfi sem foreldrar fengu og er líka hér á heimasíðunni.
Búið er að redda slatta af dýnum í Neskaupstað. Þeir sem eiga þægilegar og meðfærilegar dýnur ættu samt að koma með sínar.
Krökkunum hefur verið raðað í lið eins og hér segir:
Skellur1, 4. flokkur, 4. stig
Daði
Regína
Kládía
Lena
Skellur2, 4. flokkur, 3. stig
Kalli
Dórothea
Svanhildur
Viktoría Kristín
Eva Karen
Skellur1, 5. flokkur, 3. stig
Birkir
Ívar Tumi
Auður
Aron
Bjarni Pétur
Skellur2, 5. flokkur, 3. stig
Bensi
Kjartan
Ólöf
Ísak Andri
Ólína
Ágúst
Liðin gætu breyst ef einhverjir detta út vegna veikinda.
Vegna ferðar á Íslandsmót hjá 4. og 5. flokki:
Kannað hefur verið með möguleika á að fara í Keiluhöllina á meðan beðið er á milli véla í Reykjavík á leiðinni til Neskaupstaðar. Þetta er vel gerlegt en kostar um 1000 kr. á barn fyrir leigubíl og keilu. Þess vegna eru börnin beðin um að vera með kr. 2000 í vasapening í stað 1000 kr. eins og hafði áður verið ákveðið. Það verður miklu skemmtilegra og eftirminnilegra að eyða tímanum svona en að bíða í tvo og hálfan tíma á flugvellinum.
Fararstjórar.
Ferð á Íslandsmót Blí í blaki, Neskaupstað 6.-8. nóvember 2009. 4. og 5. flokkur
Miðvikudaginn 21. október var haldinn foreldrafundur með foreldrum barna sem ætla á Íslandsmótið í Neskaupstað 6.-8. nóvember. Á fundinum fengu foreldrar upplýsingar um ferðina, sem eru hér að neðan. Á fundinum var ákveðið að vasapeningur ætti ekki að vera meiri en 1000 kr. og að börnin ættu að hafa nesti fyrsta daginn. Ákveðið var að halda kökubasar föstudaginn 30. október og að hvert foreldri ætti að skila inn tveimur kökum eða brauðréttum fyrir basarinn. Anna Kata bauðst til að halda utanum þetta og mun hún senda foreldrum skilaboð.
Upplýsingar vegna ferðarinnar:
Kostnaður:
Gjald á hvert barn er kr. 10.000 og miðast það við að ein góð fjáröflun náist fyrir mótið.
Innifalið í kostnaði:
- Flugfar Ísafjörður-Reykjavík-Egilsstaðir-Reykjavík-Ísafjörður.
- Rúta Egilsstaðir-Neskaupstaður-Egilsstaðir.
- Gisting í tvær nætur í grunnskólanum í Neskaupstað.
- Mótsgjöld.
- Morgun- hádegis- og kvöldverður á laugardegi og morgun- og hádegisverður á sunnudegi.
- Kvöldsnarl á föstudegi og ávextir á milli leikja.
Ekki innifalið:
- Ferðir til og frá flugvelli á Ísafirði.
- Matur fyrsta daginn á leiðinni til Neskaupstaðar. Foreldrar eru hvattir til að senda börnin með nesti.
- Kostnaður sem kann að falla til vegna breytinga á ferðaáætlunum, þ.e. ef við yrðum veðurteppt á leiðinni til baka.
Tilhögun ferðar:
- Ferð til Neskaupstaðar: Farið er með flugi klukkan 14:50 frá Ísafirði, föstudaginn 6. nóvember. Mæting klukkan 14:20. Vélin til Egilsstaða fer klukkan 18:00 og áætluð lending á Egilsstöðum er kl. 19:00. Athugað verður hvort hægt verði að komast í keilu á milli flugvéla í Reykjavík. Rúta frá Egilsstöðum til Neskaupstaðar tekur um 1 klst. Áætluð koma á gististað er kl. 21:00 og verður þá boðið upp á smá snarl fyrir svefninn.
- Mótið: Ekki er búið að raða niður mótinu, en spilað verður frá morgni til kvölds á laugardeginum. Matur er framreiddur af mótshaldara. Búið er að fá vilyrði fyrir því að lið Skells verði búin að spila í hádeginu á sunnudeginum þannig að hægt sé að ná flugvél frá Egilsstöðum sem er tímanlega fyrir seinni vél til Ísafjarðar.
- Ferð til Ísafjarðar: Tekin verður rúta um kl. 12:30 frá Neskaupstað og brottför frá Egilsstöðum er kl. 14:10. Áætluð lending í Reykjavík er kl. 15:10 og brottför flugs til Ísafjarðar kl. 16:30. Áætluð lending á Ísafirði er kl. 17:10
Það sem þarf að hafa með:
- Íþróttagalli til að vera í á milli leikja. Best er að hafa rennda treyju og íþróttabuxur sem auðvelt er að komast í og úr án þess að fara úr skóm.
- Íþróttaskór.
- Hnéhlífar (fyrir þá sem þær nota)
- Handklæði
- Sundföt (ef tími skyldi verða til að skella sér í sund)
- Föt til skiptana
- Svefnpoka/sængur og kodda
- Þeir sem eiga handhægar dýnur gætu þurft að taka þær með
- Þau lyf sem foreldrar telja nauðsynleg. Sjúkrataska félagsins verður með í för en ef einhverjir þurfa t.d. bílveikistöflur eða taka lyf að staðaldri er mikilvægt að láta fararstjóra vita af því.
- Hóflegan vasapening sem er nánar ákvarðaður á foreldrafundi.
- Ekki má taka með DVD spilara eða tölvur, nema litlar vasatölvur.
- Börnin geta haft með síma, en þau þurfa að geta passað upp á hann sjálf, eða láta fararstjóra geyma hann.
Fararstjórar:
Harpa Grímsdóttir, s. 843 0413, netfang: harpa@vedur.is
Sólveig Pálsdóttir, s. 849 0108
Þorgerður Karlsdóttir, s. 899 9562
Kristinn Mar Einarsson, s. 898 1050
Á síðunni http://www.krakkablak.bli.is/ er hægt að fylgjast með mótinu
Vinsamlegast leggið kr. 10.000 inn á:
Bankareikn. 0156-05-65049
kt.471204-3230
Setjið inn nafn barns og skýringu.
Vestfjarðamótið
Vestfjarðamótið í krakkablaki verður haldið í Torfnesi laugardaginn 10. október. Krakkarnir eiga að mæta í síðasta lagi klukkan 12:00 ef annað hefur ekki verið tekið fram við þau. Mótið hjá þeim klárast klukkan 15:00. Einnig verður keppt í blaki fullorðinna á mótinu og hefst það klukkan 10 um morguninn. Krakkarnir eru hvattir til að koma og horfa á það áður en þau keppa sjálf. Krakkablakið mun sjá um veitingasölu í húsinu meðan á mótinu stendur og fer ágóðinn í ferðasjóð fyrir íslandsmótin í vetur. Haft verður samband við foreldra varðandi bakstur og sölu. Ekki verða posar á staðnum þannig að þeir sem ætla að nýta sér veitingasöluna þurfa að hafa með sér reiðufé.
Mótsgjaldið er kr. 500 á barn.
Glaðningur verður fyrir alla í mótslok.
Fyrirhuguð mót í krakkablaki
Vestfjarðamótið í blaki
Laugardaginn 10. október verður Vestfjarðamótið í blaki haldið í íþróttahúsinu Torfnesi. Bæði verður keppt í blaki fullorðinna og barna og því verður tækifæri fyrir krakkana að sjá fullorðinsblak og fyrir hina fullorðnu að sjá hvað krakkarnir eru orðin góð í blaki. Reiknað er með að krakkablakið hefjist nálægt hádeginu og standi í u.þ.b. 2-3 klst. Nánari dagskrá verður auglýst síðar hér á heimasíðunni.
Íslandsmót hjá 4. og 5. flokki
Íslandsmótin eru spiluð í tveimur „túrneringum" yfir veturinn. Sú fyrri verður í Neskaupstað helgina 7.-8. nóvember. Við stefnum á að senda a.m.k. 2-3 lið þangað. Á Íslandsmótinu er keppt í 3. stigi krakkablaks og hærra. Flestir af þeim sem hafa æft í eitt ár eða lengur eru komin á það stig og sum þeirra sem eru nýbyrjuð gætu náð því fyrir þennan tíma. Allir sem æfa blak og eru í 4.-8. bekk eru velkomnir með. Ekki er búið að reikna út kostnað fyrir hvern þátttakanda en án ábyrgðar má reikna með að hann verði á bilinu 6-8000 kr. á barn og að matur og gisting verði að mestu innifalið í því. Farið verður með flugi á föstudegi og líklega komið heim á sunnudegi. Við viljum gjarnan fá að vita í síðasta lagi 5. október hverjir stefna á að koma með svo að við getum notað Vestfjarðamótið til að æfa liðin fyrir Íslandsmótið.
Seinna Íslandsmótið verður dagana 16.-18. apríl í Kópavogi.
Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Hörpu í síma 8430413 eða netfangið harpa@vedur.is
Kveðja, Þjálfarar