A A A

Atburðir

Fossavatnsgangan

Fossavatnsgangan fer fram á Ísafirði sömu helgi og öldungamótið verður. Alltaf hefur verið mjög mikil stemmning í kringum þá skíðagöngu og koma fjölmargir keppendur frá öllum landshornum og heimshornum.
Um helgina höfðu 170 manns skráð sig í gönguna, en reynslan sýnir að keppendur verða mun fleiri þar sem margir skrá sig seint. Meðal þess sem boðið er upp á er 7 km létt skemmtiganga sem hentar öllum, líka þeim sem eru óvanir. Við viljum hvetja keppendur á öldungamótinu til þess að kíkja á Fossavatnsgönguna ef þeir hafa tækifæri til. Þeir sem eiga örlitla orku afgangs og eru ekki að
keppa í blaki milli 10:30 og 12:00 á laugardeginum ættu að skella sér í a.m.k. skemmtigönguna, en við vitum af þó nokkrum blökurum sem ætla sér lengri vegalengd en það. Öðrum er hægt að benda á að koma í markið á Seljalandsdal, en það er mjög gaman að fylgjast með þeim bestu koma í mark úr 20 og 50 km milli kl. 12 og 13:30. Eftir það fara menn að sjálfsögðu beint á síðustu leikina í 1. deildunum og lokaleik mótsins.

Á heimasíðu Fossavatnsgöngunnar segir: "Fossavatnsgangan er elsta skíðamót sem enn er við lýði á Íslandi og hefur jafnframt verið fjölmennasta skíðagöngumót landsins undanfarin ár. Komin er hefð á að gangan fari fram fyrsta laugardag í maí og markar hún jafnan lok skíðavertíðarinnar hér á landi. Fossavatnsgöngunni er ætlað að vera vettvangur fyrir alla unnendur skíðaíþróttarinnar og hollrar útiveru, hvort sem það eru þrautþjálfaðir keppnismenn, útivistarfólk, trimmarar, byrjendur eða börn. Allir geta valið
sér vegalengd við hæfi, og hversu breitt sem bilið verður á milli manna í brautinni, þá sameinast allir að göngu lokinni í hinu víðfræga Fossavatnskaffi, þar sem viðurkenningar eru veittar og borðin svigna undan kaffikrásunum."

Nánari upplýsingar og skráningareyðublöð er að finna á heimasíðu göngunnar: www.fossavatn.com

Fréttir

Vefumsjón