A A A

Atburðir

Leikreglur

Reglugerð um öldungamót BLÍ
Fyrsti kafli - Markmið og tilgangur

1. gr.
Mótið heitir öldungamót BLÍ. Markmið þess er að ná til þeirra iðkenda blakíþróttarinnar sem stefna ekki að þátttöku í deildarkeppni BLÍ. Megin tilgangurinn er að útbreiða blakíþróttina meðal öldunga, stuðla að framförum í tækni og viðhalda getu keppenda.

2. gr.
Þátttaka í öldungamóti BLÍ er heimil öllum félögum og hópum sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:

a) Vera á keppnisárinu 30 ára eða eldri í öldungadeildum, 40 ára eða eldri í öðlingadeildum og 50 ára eða eldri í ljúflingadeildum. Heimilt er að færa aldurstakmark í ljúflingadeildum niður í 45 ár fyrir 2 leikmenn í liði.
b) Hver leikmaður leiki aðeins í einni deild.
c) Félagaskipti þarf ekki að tilkynna.

Annar kafli - Framkvæmd öldungamóta

3. gr.
Öldungur skipar tvo menn með sér í öldunganefnd, sem sér um framkvæmd mótsins hverju sinni og skal hlíta gildandi reglum í hvívetna.

4. gr.
Mótið skal haldið á heimavelli öldunganefndar hverju sinni og tengjast sumardeginum fyrsta eða 1. maí, ef það þykir henta betur.

5. gr.
Keppt skal um farandgrip í öllum deildum. Hverjum farandgrip skal fylgja reglugerð. Auk þess skulu 3 efstu lið hverrar deildar hljóta verðlaun.

6. gr.
Keppt skal í deildum. Í hverri deild eru 7 lið. Leikin er einföld umferð. Ár hvert færast tvö neðstu liðin niður í næstu deild og efstu tvö lið þeirrar deildar færast upp að undanskyldum 1. og 2. deild. Öldungi er heimilt, ef sérstök ástæða er til, að hafa annan hátt á. Öldungi er heimilt með samþykki öldungaráðs að breyta reglum um skor og lengd hrina í þeim tilgangi að koma í veg fyrir mikla seinkun á tímasetningu leikja. Breytingin skal tilkynnt þátttakendum áður en mótið hefst.

7. gr.
Hver leikur er uppá 2 unnar hrinur, leikið skv. "rally point" stigagjöfinni. Leikið er uppí 25 stig nema í oddahrinu upp í 15 stig. Hrina endar í 25 eða 15 stigum þó svo að aðeins eitt stig skilji lið að. Lið fær 1 stig fyrir unna hrinu í stigakeppni mótsins. Séu lið jöfn að stigum ræður hlutfall unninna og tapaðra hrina, sé það jafnt ræður skorhlutfall, það er unnin/töpuð stig. Sé skorhlutfall jafnt skér innbyrðis viðureign úr um röð. Nethæð í karladeildum er 2.35 m en í kvennadeildum 2.18 m. Í mótinu er leyfður svonefndur frelsingi. Að öðru leyti gilda leikreglur BLÍ um blakkeppnina sjálfa.

8. gr.
Þátttökutilkynningar skal senda öldunganefnd eigi síðar en 30 dögum fyrir mót og skal þátttökugjald sem er ákveðið af mótshaldara fylgja tilkynningunni. Á mótsstað skulu þátttökuliðin leggja fram lista með nöfnum og kennitölum keppenda og bera liðin fulla ábyrgð á að skráning sé í samræmi við aldursreglur mótsins. Lið sem verður uppvíst að ólöglegri liðsskipan tapar leiknum 2 - 0 (25-0, 25-0).

9. gr.
Öldungaráð er skipað þremur síðustu öldungum, til vara koma næstu öldungur á undan í röð (fjórði síðasti, fimmti síðasta o.s.frv.). Síðasti öldungur er formaður öldungaráðs. Öldungaráð er öldunganefnd til ráðuneytis. Öllum ágreiningsmálum sem upp kunna að koma varðandi starf öldunganefndar og framkvæmd öldungamóta skal vísað til öldungaráðs og er úrskurður þess endanlegur um öll slík mál. Skriflegum kærum skal skilað innan 30 mínútna eftir að viðkomandi leik lýkur og skal henni fylgja greiðsla kr. 500, sem endurgreiðist ef kæran er tekin til greina.

Þriðji kafli - Öldungaþing

10. gr.
Öldungaþing skal haldið í tengslum við Öldungamótið. Öldunganefndin skal sjá um framkvæmd þess. Miða skal við kvöld fyrsta keppnisdags, ef unnt er. Rétt til setu á öldungaþingi hafa allir þátttakendur í öldungamótinu ár hvert. Hvert þátttökulið hefur 3 atkvæði. Hlutverk öldungaþings er að móta reglur Öldungamóta í samræmi við markmið og tilgang þeirra og dagskrá þingsins.

a) Að gera tillögur og samþykkja breytingar á fyrirkomulagi öldungamóta.
b) Að velja öldung næsta Öldungamóts. Öldungur er oddviti öldunganefndar.
c) Að fjalla um önnur mál sem þingfulltrúar óska að ræða.

Tillögur um reglugerðarbreytingar sem taka á fyrir á þinginu þurfa að hafa borist í hendur öldunganefndar 30 dögum fyrir þing, svo hægt sé að senda öllum keppnisliðum afrit af þeim tímanlega fyrir þingið. Til breytinga á reglugerð þessari þarf minnst 2/3 atkvæða og mætt skal fyrir a.m.k. 40% þeirra liða sem atkvæði eiga á þinginu. Atkvæðagreiðslur um reglugerðarbreytingu á öldungaþingi skulu fara fram með nafnakalli.

11. gr.
Ákvarðanir öldungaþinga skulu lagðar fyrir ársþing BLÍ til staðfestingar.

12. gr.
Þar sem reglur þessar ná ekki til, þá skulu reglur BLÍ gilda.

13. gr.
Reglur þessar öðluðust gildi frá og með 1. maí 1989, með áorðnum breytingum á 2. gr. lið a) 1994, 2. gr. lið b) 1991 og 2006, 6. gr. 1995 og 2006 og 7. og 8.gr 1999 og 2003, 10.gr. 2003

Öldungamót BLÍ

Þátttökugjald á hvert lið til BLÍ vegna Öldungamóts BLÍ skuli vera kr. 5.000,00 árið 2008 og verður endurskoðað á ársþingi BLÍ annað hvert ár. Á móti skal BLÍ skipa 2 landsdómara til að hafa umsjón með dómgæslu og niðurröðun dómara. Framkvæmdaraðili mótsins er ábyrgur fyrir því að úrslit séu send til BLÍ, eigi seinna en viku eftir að móti lýkur. Jafnframt skal BLÍ sjá til þess að skýrslur og úrslit öldungamóta birtist í ársskýrslu BLÍ hverju sinni.

Vefumsjón