Lokahófið
Lokahófið verður haldið í íþróttahúsinu Torfnesi á Ísafirði
Húsið opnar kl.19:30
Við tökum á móti ykkur með fordrykk og borðhald hefst síðan kl.20:30
Veitingahúsið Við Pollinn býður upp á 3ja rétta máltíð sem
samanstendur af:
Forréttur : Sjávarréttasinfonía ( hljómar vel )
Aðalréttur : Gljáður lambahryggsvöðvi m/rótargrænmeti, “Rösti“kartöflu og lambasoðkjarna
Eftirréttur : Himnesk súkkulaðisæla
Trúbadorinn Benni Sig mun stjórna fjöldasöng og spilað verður undir á ýmis hljóðfæri.
Veislustjóri verður Hera Björk.
Vestfirska hljómsveitin Þorfinnur mun sjá til þess að dansgólfið verði notað J og það verður ekki slegið slöku við í þeim efnum. Einnig mun Hera Björk taka nokkur lög með sveitinni.