Umsókn frá Þrótti Reykjavík
Hér með sækir Blakdeild Þróttar Rvk. í samstarfi við Vestmannaeyjabæ um að fá að halda Öldungamót Blaksambands Íslands árið 2009 í Vestmannaeyjum.
Blakdeild Þróttar Rvk. er ein stærsta blakdeild landsins og er með mjög reynslumikið blakfólk á sínum vegum varðandi mótahald og skipulagningu á hvers konar blakviðburðum. Blakdeild Þróttar Rvk. sá seinast um að halda öldungamót BLÍ árið 2000 í Laugardalshöll sem heppnaðist þá með ágætum.
Þar sem öldungamót BLÍ eru orðin það stórt að það þarf marga velli til svo hægt sé að spila það á 3 dögum að þá virðast fáir staðir á Íslandi geta tekið svona mót að sér, a.m.k. ef mótið á að vera allt á sama stað. En þar sem ég þekki vel til Vestmannaeyja og íþróttamannvirkja þeirra og veit að íþróttahúsin í Vestmannaeyjum geta tekið alls 10 blakvelli og besta við þau er að þessir blakvellir eru allir á sama svæðinu að þá vissi ég að Vestmannaeyjar yrði tilvalinn staður fyrir blakmót af þessari stærðargráðu auk þess sem þetta mót hefur aldrei áður verið haldið þar. Eftir viðræður við Vestmannaeyjabæ var ákveðið að blakdeild Þróttar myndi sækja um öldungamót BLÍ 2009 í samstarfi við þá sem hér með er nú gert.
Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja er um 1 km
frá höfninni og er með 2 samliggjandi íþróttahús. Nýi íþróttasalurinn
er frá 2001er svokallaður tvöfaldur salur þ.e að það er hægt að skipta
salnum í 2 jafnstóra sali þ.e. mótordrifnum tvöföldum tjaldvegg. Þegar
tjaldveggurinn er uppi þá er allur salurinn 48m x 48m eða alls 2.304 m2
m.v að áhorfendapallar séu ekki útdregnir. Þegar tjaldvegurinn er niðri
þá er salurinn sem að við köllum sal 2, 48 m x 22 m og þegar
áhorfendapallarnir eru útdregnir þá er ca
gólfflötur fyrir framan þá
ca 48 m x 15 m eða um 720 m2. Áhorfendapallar (sem eru rafdrifnir )
rúma um 600 manns. lofthæð í salnum er um 12 m. Þetta hús er með 6
blakvelli.
Gamli íþróttasalurinn er helmingi minni
en nýji stóri salurinn. Það er búið að gera þann sal allan upp nema
gólfið það verður skipt um það á þessu ári.
Það er komið nýtt loft og veggir en þar er ekki góðir áhorfendapallar taka ca 200 í sæti. Þetta hús tekur 3 blakvelli.
Síðan er eitt lítið íþróttahús við Félagsheimili ÍBV í um ca. 100 metra fjarlægð frá íþróttamiðstöðinni og í því er 1 löglegur blakvöllur.
Fyrir svona stóran hóp er Herjólfur sennileg besti og örugglega ódýrast kosturinn tæplega kr. 3.000.- á mann fram og til baka. Einnig er beint flug frá Reykjavík daglega og frá bakkaflugvelli eftir þörfum.
Hægt er að koma öllu fólkinu fyrir á gistihúsum bæjarins: þórshamri/Hamri/Hótel Mömmu og Hótel Eyjum. Öll þjónusta og gisting er að hámarki í 1 km. fjarlægð frá íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum og Vestmannaeyjar er því tilvalinn staður fyrir íþróttaviðburð eins og þennan þar sem allir keppendur eru á sama stað og eiga auðvelt með að blanda geði við aðra keppendur.
Í Eyjum er sundlaug, skemmtstaðir og þegar svona stór hópur er á ferðinni er vel hægt að "rigga" upp skemmtilegu Eyjakvöldi fyrir fólkið t.d. er mjög góð og stór samkomuhöll í Vestmannaeyjum.
Nánari upplýsingar um Vestmannaeyjar er á vefsíðunni
www.visitwestmanisland.com þar eru myndir og ýmsa gagnlegar upplýsingar.
Með kveðju,
Jón Ólafur Valdimarsson
Formaður blakdeildar Þróttar Rvk.
Umsókn frá Aftureldingu
Ungmennafélagið Afturelding
S.566-7089 Fax 566-8389 Netfang umfa@simnet.is pósthólf 174
Mosfellsbær í 7. apríl 2008
Fyrir hönd Blakdeildar Aftureldingar sæki ég um að halda Íslandsmót Öldunga árið 2009.
Mótið mun verða haldið helgina 1.maí þar sem 1.maí er föstudagur og spilað fimmtudag,föstudag og laugardag og lokahóf á laugardagskvöldi.
Árið 2002 hélt blakdeild Aftureldingar öldungamót í fyrsta skiptið og upp frá því var farið af stað með krakkablak sem hefur verið til mikillar fyrirmyndar hjá deildinni síðan en betur má ef duga skal og höfum við áhuga á að fjölga iðkendum í deildinni okkar og reyna að ná þeim inn í blakið.
Blakdeild Aftureldingar hefur verið fyrirmyndarfélag ÍSÍ síðan 2005.
Mosöld 2002 þóttist heppnast með miklum ágætum enda höfum við eina bestu aðstöðu til blakiðkunnar á landinu en við getum spilað á 9 völlum samtímis undir sama þaki og auk þess er góð útisundlaug á staðnum í sama húsi sem nýbúið er að gera upp og setja þar nýjan nuddpott. Og þar sem er komið annað íþróttahús í bæjarfélagið er auðvelt að bæta 10 vellinum við ef þurfa þykir í íþróttamiðstöðinni við Lækjarhlíð en þar er einnig ný sundlaug - Lágafellslaug.
Ungmennafélagið Afturelding var stofnað 11.apríl 1909 og er næsta ár því stórt ár í sögu félagsins .
Afturelding verður 100 ára og er elsta ungmennafélag landsins.
Að auki þá verður Blakdeild Aftureldingar 10 ára þann 1. apríl þannig að það er tvöföld ástæða til að fagna árinu 2009 hjá okkur.
Á þessum forsendum fer Blakdeild Aftureldingar fram á að fá að halda upp á 10 ára afmæli deildarinnar og 100 ára afmæli Aftueldingar með því að halda Öldungamót BLÍ árið 2009.
Þess má geta að í tilefni af afmæli félagsins mun verða byggð viðbót við íþróttahúsið – andyri sem mun verða með félagsaðstöðu fyrir deildir og mun búningsklefum í húsinu einnig fjölga þannig að aðstaðan mun bara batna.
Áætlað er að vígja þá viðbyggingu á 100 ára afmælisdegi Aftureldingar.
Í Mosfellsbæ – nánar tiltekið á sveitarkránni Ásláki er verið að byggja mótel sem verður komið í gagnið næsta vor.
Við erum einnig með skólann við hlið íþróttahússins og munum við að sjálfsögðu reyna að gera eins og síðast – en það vakti mikla lukku meðal keppenda – bjóða upp á morgunmat í skólanum alla morgnana sem spilað verður.
Von okkar í báðum stjórnum blakdeildar Aftureldingar, meistaraflokksráði og stjórn yngri deildar að keppendur á Öldungamóti BLÍ vilji halda upp á þessi merku tímamót í okkar félagi með því að leyfa okkur að halda Öldungamótið árið 2009.
Með blakkveðjum og hlökkum til að mæta á Ísafjörð með 4 kvennalið og eitt karlalið.
Guðrún Kristín Einarsdóttir
Formaður Blakdeildar Aftureldingar
Umsókn frá Huginn á Seyðisfirði og Hetti á Egilsstöðum
Hér með sæki ég um fyrir hönd Hugins á Seyðisfirði og Hattar á Egilsstöðum um að fá að halda Öldungamót Blaksambands Íslands 2009.
Mótið færi fram á Seyðisfirði og Egilsstöðum.
Á Seyðisfirði eru 3 vellir í glæsilegur íþróttahúsi frá 2000(stærð á húsi 45mX30m)
Frábær líkamsræktaraðstaða er í húsinu, áhorfendasvæði fyrir 500 manns.
Upphitunarsalur 24mx14 með lofthæð 6m.
Á Egilsstöðum er tvö íþróttahús. Annað er með 3. völlum( 44m X 35m ) og er það frá 2001. Áhorfendastæði eru fyrir 600 manns, líkamsrækt og upphitunaraðstaða flott og hitt er með 1. velli ( 26X16m.) það hús er fínt blakhús en áhorfendasvæðið er lítið og á svölum fyrir enda húss.
Svipað hús er reyndar líka á Brúarási en ekki er gert ráð fyrir að þurfa að nota það hús en akstur í það frá Egilsstöðum er þó ekki nema 15 mín, þannig mætti grípa í að spila í því einn leikdaginn ef á þarf að halda.
Lokahóf yrði á Seyðisfirði en íþróttahúsið og félagsheimilið er sambyggt og með samtals 2.200m2 rými í sölum og því frábær aðstaða til að halda stór hóf.
Rútuferðir verða fríar á milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða í tengslum við lokahófið.
Og svo það sé alveg á hreinu hér kunna menn að skemmta sér og öðrum.
Flug í Egilsstaði eru alla daga 3-6 sinnum á dag og til Seyðisfjarðar er 20 mín akstur frá Eg. Rútur munu verða í förum á milli keppnisstaða. Gistirými er nægt á þessum tíma árs og í öllum gæðaflokkum.
Bæði Höttur og Huginn eru með krakkablak.
Þessi félög hafa ekki áður staðið fyrir öldungamóti en sóttu um að fá að halda mótið 2008. Á báðum stöðum er hins vegar mikið af reynslumiklu fólki í hvers kyns mótahaldi.
Með blakkveðju.
Ólafur Hr. Sigurðsson, bæjarstjóri Seyðisfirði.