Orðsending frá KA
Fyrir hönd Blakdeildar KA sæki ég um að halda Íslandsmót öldunga eftir 2 ár - árið 2010. KA hefur tvisvar áður haldið öldungamót BLÍ – árið 2001 og árið 2005. Sá hópur sem bar hitan og þungan af þesssum mótum er enn í fullu fjöri og má því segja að hér sé valin maður í hverju rúmi. Við KA menn höfum lengst af einungis verið með karlalið í öldungablakinu en árið 2006 gengu Freyjurnar á Akureyri til liðs við KA og hafa spilað undir nafninu KA-Freyjur síðan. KA hefur því sent 4 og stundum 5 lið til móts síðustu 3 árin og því er ljóst að við höfum vaskan hóp til þess að halda frábært mót 2010.
Akureyri hentar vel til mótahalds af þessu tagi enda bærinn frægur fyrir íþróttamót sín. Í bænum eru 3 stór íþróttahús með samtals 9 völlum. Góðar áhorfendastúkur eru í öllum húsunum og aðstaðan í þeim er öll hin besta. Nægt gistirými er í bænum á þessum tíma árs og fjöldi frábærra veitinga- og skemmtistaða. Lokahófið yrði haldið í Íþróttahöllinni eins og endra nær - sem getur tekið um 1000 manns í sæti.
Blakdeild KA er ein öflugasta blakdeild landsins. Reyndar verður deildin 30 ára á þessu ári en hún var stofnuð árið1978. Samfeld saga deildarinnar hefst þó ekki fyrr en 1981 en síðan þá hefur félagið verið, nær samfellt, með lið í fyrstu deildum karla og kvenna. KA hefur jafnan sinnt barna- og unglingastarfi af metnaði og hefur félagið verið í farabroddi í því uppbygginarstarfi m.a. með innleiðingu á krakkablaki á Íslandi frá árinu 2003. Ávöxt þessa mátti m.a. sá á yngriflokkamótinu í Mosfellsbæ nú í apríl þar sem félagið vann 3 Íslandsmeistaratitila.
Ég veit að margir minnast góðra öldungamóta frá Akureyri og vonumst við KA menn til þess að fá að bjóða ykkur blaköldunga velkomna á 35. öldungamót BLÍ vorið 2010.