Orðsending frá Siglufirði
Þar sem ekki er ráð nema í tíma sé tekið höfum við blakarar á Siglufirði afráðið að upplýsa ykkur um þá ætlan okkar að sækja um að halda öldungamót BLÍ vorið 2010.
Öldungamót var síðast haldið á Siglufirði árið 1998. Þá sóttu mótið um 80 lið og gekk allt upp á endanum þó við hefðum þá aðeins úr þremur blakvöllum að moða. Nú er öldin önnur. Siglufjörður og Ólafsfjörður hafa verið sameinuð í eitt sveitarfélag, Fjallabyggð. Héðinsfjarðargöng verða síðan opnuð í desember 2009 þannig að ferðatími milli bæjarkjarnanna verður ekki nema 15 mínútur. Vorið 2010 getum við því boðið upp á, í sama sveitarfélaginu, tvö 3ja valla hús með allri nauðsynlegri aðstöðu. Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur þegar verið gert aðvart formlega svo gera megi nauðsynlegar ráðstafanir varðandi uppbyggingu og endurnýjun íþróttaaðstöðu. Skemmst er frá því að segja að bæjarstjórnin tók vel í erindið og hefur heitið stuðningi við mótið. Ekki ætti að verða skortur á gistirými í Fjallabyggð, þar sem ýmsar hugmyndir eru í burðliðnum til uppbyggingar í þeim geira, til viðbótar því sem fyrir er.
Því má bæta við að öldungablak hefur verið stundað á Siglufirði síðan um 1970 og sömuleiðis hefur þátttaka Siglfirðinga í öldungamótum BLÍ verið óslitin frá upphafi þeirra móta. Þeir sem til þekkja vita svo að ekkert þykir okkur Siglfirðingum skemmtilegra en að taka á móti góðum gestum og gera okkur glaðan dag.
Sjáumst kát og hress á Ísafirði 1. maí
Blakklúbbarnir Hyrnan og Súlan Siglufirði