Tillögur
Tillaga til öldungaþings BLÍ
Nú er komin eins árs reynsla á breytingar sem gerðar voru á öldungaþingi BLÍ 2006
varðandi takmörkun á þátttöku í öldungamóti BLÍ. Í ljósi þessarar reynslu viljum við KA
menn leggja fyrir öldungaþing 2 mismunandi tillögur að breytingum á 2. gr. reglugerðar
um öldungamót BLÍ.
Reglugerðin (tekið af heimasíðu BLÍ) sem er í gildi er eftirfarandi:
2. gr.
Þátttaka í öldungamóti BLÍ er heimil öllum félögum og hópum sem uppfylla eftirfarandi
skilyrði:
a) Vera á keppnisárinu 30 ára eða eldri í öldungadeildum, 40 ára eða eldri í
öðlingadeildum og 50 ára eða eldri í ljúflingadeildum. Heimilt er að færa aldurstakmark
í ljúflingadeildum niður í 45 ár fyrir 2 leikmenn í liði.
b) Hver leikmaður leiki aðeins í einni deild.
c) Félagaskipti þarf ekki að tilkynna.
http://www.bli.is/page/log_og_reglur
Tillaga 1
Við lið a bætist eftifarandi:
Aðeins 1 leikmaður á aldrinum 30-34 ára, sem spilað hefur á tímabilinu í 1. deild
Íslandsmóts BLÍ, má spila með hverju liði.
Tillaga 2
Við lið a bætist eftifarandi:
Aðeins 2 leikmenn 30-34 ára, sem spilað hafa á tímabilinu í 1. deild Íslandsmóts
BLÍ, mega spila með hverju liði
.Við KA menn teljum rétt að heimila leikmönnum á aldrinum 30-34 ára, sem spila á
Íslandsmóti BLÍ, að spila á Íslandsmóti öldunga þar sem það hefur sýnt sig að þessir
leikmenn eru mikilvægir við að halda úti liðum í 1. deildum Íslandsmóts BLÍ. Með þessu
teljum við að öldungahreyfingin leggi til mjög mikilvægan stuðning við keppni í 1.
deildunum í blaki sem er flaggskip íþróttarinnar í landinu.
Sem dæmi um veika stöðu blakíþróttarinnar má nefna að einungis 3 lið tilkynntu þátttöku
í 1. deild kvenna í haust en lið Fylks bættist við á síðustu stundu og má segja að þátttaka
þeirra hafi bjargað því að Íslandsmót kvenna stóð undir nafni í vetur. Einungis 5 lið eru í
1. deild karla og væri vissulega æskilegt að þau væru fleiri.
Við teljum hinsvegar rétt að setja inn áðurnefndar takmarkanir til þess að ekki komi inn
heilu 1. deildarliðin á öldungamótið, enda er mótið ætlað fyrir öldungaleikmenn og ætti
fyrst og fremst að miðast að þörfum þeirra. Með þessari breytingu væri líklegt að
umræddir leikmenn dreifðust á fleiri öldungalið og stuðluðu þannig að jafnari og
skemmilegri keppni en ella.
Ef fram fer sem horfir þá á ungum leikmönnum í blaki eftir að fjölga verulega á næstu
árum í kjölfar eflingar yngriflokkastarfs víða um land. Þá er sjálfsagt að taka reglugerðina
um það hverjir eiga keppnisrétt á öldungamótinu í blaki til endurskoðunar enn á ný.
KA menn
Tillaga nr.3 frá Þrótti Reykjavík
Tillaga til breytinga á reglugerð um Öldungamót BLÍ
Grein 2 eins og hún er:
2. gr.
Þátttaka í öldungamóti BLÍ er heimil öllum félögum og hópum sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
a)
Vera á keppnisárinu 30 ára eða eldri í öldungadeildum, 40 ára eða eldri
í öðlingadeildum og 50 ára eða eldri í ljúflingadeildum. Heimilt er að
færa aldurstakmark í ljúflingadeildum niður í 45 ár fyrir 2 leikmenn í
liði.
b) Hver leikmaður leiki aðeins í einni deild.
c) Félagaskipti þarf ekki að tilkynna.
Grein 2 eins og hún verður eftir breytingar: rauðlitað.
2. gr.
Þátttaka í öldungamóti BLÍ er heimil öllum félögum og hópum sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
a)
Vera á keppnisárinu 30 ára eða eldri í öldungadeildum, 40 ára eða eldri
í öðlingadeildum og 50 ára eða eldri í ljúflingadeildum. Heimilt er að
færa aldurstakmark í ljúflingadeildum niður í 45 ár fyrir 2 leikmenn í
liði.
b) Hafa ekki leikið í 1. deild Íslandsmótssins á keppnistímabilinu nema viðkomandi sé 35 ára eða eldri á keppnisárinu
c) Hver leikmaður leiki aðeins í einni deild.
d)Félagaskipti þarf ekki að tilkynna.
Fyrir hönd Þróttar Reykjavík.
Harald H. Ísaksen
Tillaga nr. 4 frá KA
Tillaga til öldungaþings BLÍ v/ 10. gr.
Þar sem öldungaþing fer oftast fram á meðan leikir standa yfir í öldungamótinu eru jafnan
einhver lið sem ekki komast á öldungaþingið. Til að þessi lið geti komið skoðun sinni á
framfæri á öldungaþingi leggjum við KA menn til að gr. 10 verði breytt.
Einnig hefur oft komið fyrir á öldungaþingum að menn hafa sagst hafa umboð til að
greiða atkvæði fyrir annað lið innan sama félags sem ekki er mættur fulltrúi fyrir. Ekki er
skýrt kveðið á í reglugerðinni hvernig eigi að taka á þessum málum. Túlka má
reglugerðina svo að einungis leikmenn viðkomandi liðs geti farið með atkvæði þess en
ekki liðsmenn í öðru liði sem þó eru í sama félagi.
Við viljum gjarnan taka umræðu um þetta mál á þinginu og setjum hér fram ákveðna
tillögu sem hægt er að ræða og gera breytingartillögur við á öldungaþinginu kjósi
þinheimur svo. Við teljum að með þessum breytingum verði auðveldara að gera
breytingar á reglugerð um öldungamót BLÍ en oft hefur reynst erfitt að breyta
reglugerðum þar sem mæting á þingið hefur verið undir 40%
Tillaga að viðbót við 10. gr.
Lið getur framselt atkvæði sín til öldungaþings til einstaklings í öðru liði eða einstaklings
öðru félagi. Framsalið skal verða skriflegt og undirritað af að lágmarki 4 leikmönnum
viðkomandi liðs. Á framsali kemur fram: dagsetning framsals, frá hvaða liði framsalið er,
til hvað einstaklings framselt er til og í hvaða liði sá aðili er. Hver einstaklingur getur
einungis greitt atkvæði fyrir eitt félag en getur þó farið með atkvæði fyrir öll lið innan
sama félags.
Þriðji kafli – Öldungaþing
10. gr.
(með breytingu)
Öldungaþing skal haldið í tengslum við Öldungamótið. Öldunganefndin skal sjá um
framkvæmd þess. Miða skal við kvöld fyrsta keppnisdags, ef unnt er. Rétt til setu á
öldungaþingi hafa allir þátttakendur í öldungamótinu ár hvert. Hvert þátttökulið hefur 3
atkvæði.
[viðbót] Lið getur framselt atkvæði sín til öldungaþings til einstaklings í öðru
liði eða einstaklings öðru félagi. Framsalið skal verða skriflegt og undirritað af að
lágmarki 4 leikmönnum viðkomandi liðs. Á framsali kemur fram: dagsetning framsals,
frá hvaða liði framsalið er, til hvað einstaklings framselt er til og í hvaða liði sá aðili er.
Hver einstaklingur getur einungis greitt atkvæði fyrir eitt félag en getur þó farið með
atkvæði fyrir öll lið innan sama félags.
Hlutverk öldungaþings er að móta reglur Öldungamóta í samræmi við markmið og
tilgang þeirra og dagskrá þingsins.
a) Að gera tillögur og samþykkja breytingar á fyrirkomulagi öldungamóta.
b) Að velja öldung næsta Öldungamóts. Öldungur er oddviti öldunganefndar.
c) Að fjalla um önnur mál sem þingfulltrúar óska að ræða.
Tillögur um reglugerðarbreytingar sem taka á fyrir á þinginu þurfa að hafa borist í hendur
öldunganefndar 30 dögum fyrir þing, svo hægt sé að senda öllum keppnisliðum afrit af
þeim tímanlega fyrir þingið. Til breytinga á reglugerð þessari þarf minnst 2/3 atkvæða og
mætt skal fyrir a.m.k. 40% þeirra liða sem atkvæði eiga á þinginu. Atkvæðagreiðslur um
reglugerðarbreytingu á öldungaþingi skulu fara fram með nafnakalli.