Héraðssamband Vestfirðinga
Héraðssamband Vestfirðinga varð til við sameiningu Íþróttabandalags Ísafjarðar og Héraðssambands Vestur-Ísfirðinga árið 2000.
Fyrsti formaður sambandsins var Kristinn Jón Jónsson.
Aðildarfélög sambandsins eru 23 talsins og eru félagsmenn á þriðja þúsund.
Fyrsti starfsmaður sambandsins var Karl Jónsson en hann hóf störf árið 2002 en árið 2003 gerði HSV þjónustusamning við Ísafjarðarbæ er tryggði fjármagn til reksturs skrifstofu er var til húsa í Mánagötu (snerpuhúsinu) fyrsta árið. Árið 2003 var mikið um að vera hjá ungu sambandi þar sem unglingalandsmót UMFÍ var haldið um verslunarmannahelgina það árið. Skrifstofa sambandsins flutti sig um set á þeim tíma í Hrannargötu 2 þar sem hún var í um 2 ár. Skrifstofan var því næst flutt í frístundamiðstöðina í "gamla apótekinu". Framkvæmdarstjórar á eftir Karli Jónssyni voru Gunnar Þórðarson og Torfi Jóhannsson. Núverandi skrifstofa sambandsins er í frístundamiðstöðinni á Austurvegi, efri hæð sundlaugar Ísafjarðar og er framkvæmdarstjóri Kristján Þór Kristjánsson.
Formenn sambandsins hafa verið 4 frá stofnun:
Kristinn Jón Jónsson 2000 - 2003
Guðjón Þorsteinsson 2003 -2004
Ingi Þór Ágústsson 2004 - 2006
Jón Páll Hreinsson 2006 -