A A A

Atburðir

Guðbjörg Drengsdóttir Guðbjörg Drengsdóttir | þriðjudagurinn 22. nóvember 2011

Kökulína

Sæl öll

Þá er það kökulínan okkar, bækurnar verða afhentar á æfingu  í dag þri. þeir sem ætla á fjölnismót klári að selja á fimmtudagskvöld.
Foreldrar eru beðnir að baka köku fyrir börnin sín og skila í sundhöll ásamt bókum kl 11:45 á sunnudag, dregið verður kl.12  og vinningum keyrt út í framhaldi af því.
Eins og fyrr kostar línan 500 kr.
Gangi okkur vel.
kv. Ragna og Rannveig
Guðbjörg Drengsdóttir Guðbjörg Drengsdóttir | mánudagurinn 31. október 2011

Dósasöfnun

Sæl öll
Dósasöfnun verður þriðjudaginn 1. Nóvember kl. 18.
Mæting niður við Flytjanda í dósamóttöku til að velja sér götur.

kv..Gugga Gísla og Erla Jóns.
Guðbjörg Drengsdóttir Guðbjörg Drengsdóttir | laugardagurinn 22. október 2011

ÍM 25.10.-13. nóv.

Heil og sæl.

 

Við viljum minna á að síðasti dagur til að skila skráningum á ÍM25 er 31.okt. kl 18.

Einnig viljum við minna á uppskeruhátíð SSÍ sem verður haldin 13.nóv kl 19.30.

 

Hér að neðan sjáið þið breytingar sem SSÍ hefur samþykkt og mun taka í gildi á ÍM25 nú í ár.

 

Stjórn SSÍ hefur samþykkt þær breytingar að 4x200m skriðsund er ný grein á mótinu og er á dagskrá eftir að 1500m skriðsundi líkur. Stjórn SSÍ hefur einnig samþykkt að 400m skriðsund verður synt í beinum úrslitum, hraðasti riðillinn verður syntur í úrslita hlutanum.

 

Með sundkveðju

Ingibjörg H. Arnardóttir

Skrifstofustjóri | Head of office

 

Sundsamband Ísland | The Icelandic Swimming Accociation

Guðbjörg Drengsdóttir Guðbjörg Drengsdóttir | sunnudagurinn 16. október 2011

foreldrafundur

Sæl öll
Foreldrafundur verður haldinn þriðjudaginn 18. okt kl. 19:30 - 20:00 á sundhallarloftinu.
Hvetjum alla til að mæta.
kv. Stjórn Vestra
Þuríður Katrín Þuríður Katrín | föstudagurinn 14. október 2011

Þrif á sundhallarlofti

Sæl öll

Nýr listi yfir þrif á sundhallalofti hefur nú verið settur á Vestra síðuna. Foreldrar eru beðnir um að kíkja á hann og er hann undir liðnum "starfið" og "þrif á sundhallarlofti"
Þeir foreldrar sem ekki eru á listanum munu verða settir á nýjan lista eftir áramót.
Ef þið getið ómögulega verið á þeim tíma sem þið eruð sett á þá vinsamlegast skiptið innbyrðis.

Áætlað er að hvert foreldri hafi 1 viku í senn

Það þarf að koma 2x í viku og athuga með rusl, wc, þurrka úr gluggum og hvort þurfi að skúra eða moppa.
Gera þarf lokaþrif á föstudegi, laugardegi eða sunnudegi.
Skila af sér skúruðu, þrífa wc og þurrka úr gluggum.

Lyklar eru hjá starfsfólki sundhallar og því þarf að þrífa á opnunartíma laugar.
Tuskur er hægt að nálgast hjá starfsfólki og skal þeim skilað þangað aftur eftir notkun.
Henda skal rusli í tunnur á bakvið sundhöll.

Kv
Þuríður
Guðbjörg Drengsdóttir Guðbjörg Drengsdóttir | sunnudagurinn 9. október 2011

Dósasöfnun

Sæl öll
Dósasöfnun verður þriðjudaginn 11. október kl. 18.
Mæting niður við Flytjanda í dósamóttöku til að velja sér götur.
kv. Guðbjörg og Gyða Björg
Þuríður Katrín Þuríður Katrín | þriðjudagurinn 4. október 2011

Nýjar upplýsingar

Inn á síðuna eru nú komnar nýjar upplýsingar varðandi dagskrá vetrarins og fjáraflanir fram að áramótum.

Þetta er undir liðunun "dagskrá" og "fjáraflanir" hér til vinstri.
Guðbjörg Drengsdóttir Guðbjörg Drengsdóttir | miðvikudagurinn 28. september 2011

KÖKULÍNA

Sæl öll
Fyrsta fjáröflun vetrarins er kökulína.
Krakkarnir fá bækurnar á miðvikudag á æfingu, línan kostar eins og áður 500 kr..
Dregið verður sunnudaginn 1. okt. kl.12.
Skila sundurklipptum línum og kökum á sundhallarloft kl. 11:50  sun. 1. okt.
Við biðjum þá foreldra sem hafa tök á að aðstoða við útkeyrslu á vinningum.
kv.
Gyða Björg s. 8223161
Gunna s. 8621845
Guðbjörg Drengsdóttir Guðbjörg Drengsdóttir | þriðjudagurinn 27. september 2011

Félagsfundur

Sæl öll
Félagsfundur verður haldinn í sundfélaginu Vestra fimmtudaginn 29. sept. kl. 20 í Íþróttahúsinu á Torfnesi.
Farið verður yfir vetrarstarfið.
kv. Stjórnin
Þuríður Katrín Þuríður Katrín | þriðjudagurinn 23. ágúst 2011

Ný stundaskrá

Sæl öll

Nú er komin ný stundaskrá inná vefinn fyrir komandi vetur undir liðnum "starfið" og "stundaskrá".
Kennsla skv. henni hefst á morgun miðvikudaginn 24. ágúst.

Hlökkum til að sjá ykkur öll og minnum á skráningadaginn í dag milli kl 16-18.
Mikilvægt fyrir alla sundmenn að mæta, nýja jafnt sem gamla.
Eldri færslur

Fréttir

Vefir aðildarfélaga HSV

Vefumsjón