Hægt er að sjá reglugerð sjóðsins inni á heimasíðu HSV.
Umsóknir skulu berast á netfangið hsv@hsv.is eða á skrifstofu HSV. Skrifstofa HSV er opin mán., þrið. og miðvikudaga fyrir hádegi og fimmtudaga og föstudaga frá 9 til 16.
Umsóknarfrestur er til 24. maí 2013.
Frekari upplýsingar og spurningar varðandi sjóðinn sendist í tölvupósti: hsv@hsv.is eða í síma 698- 4842 hjá framkvæmdastjóra.
NánarVið setninguna töluðu Jóhanna Oddsdóttir formaður Skíðafélags Ísafjarðar, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir varaforseti Bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar og Árni Rúdólf Rúdólfsson varaformaður stjórnar Skíðasambands Íslands setti mótið. Daníel Jakobsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og ólympíufari stjórnaði dagskránni en einnig var boðið upp á tónlistaratriði, en Ísfirðingurinn Sunna Karen Einarsdóttir söng og spilaði á píanó.
Alls eru 61 keppendur skráðir til leiks í bæði alpagreinum og skíðagöngu frá 6 félögum víðsvegar af landinu. Þá munu einnig mæta til leiks nokkrir erlendir keppendur frá Ungverjalandi, Belgíu, Suður-Afríku og Marakkó.
Dagskrá mótsins má finna hér.
HSV óskar öllum keppendum góðs gengis á mótinu.
7. gr.
Stjórn sjóðsins getur veitt styrk ef viðkomandi uppfyllir eitthvert eftirtalinna skilyrða:
Ef hann keppir á eða hefur möguleika á þátttöku á Ólympíu-, Heims-, Evrópu- eða
Norðurlandameistaramótum.
Ef hann er valinn í landslið eða úrtök fyrir landslið. Ef hann er framarlega í íþróttagrein
sinni á landsvísu eða hefur sýnt mjög góðan árangur og er líklegur til að komast í hóp
bestu íþróttamanna landsins í íþróttagrein sinni. Skal þá miðað við styrkleikaflokkun
sérsambanda (sé hún til).
Lið eða hópur geta fengið úthlutað ef þau eru framarlega í íþróttagrein sinni á landsvísu
eða hafa sýnt mjög góðan árangur og eru líkleg til að komast í hóp bestu liða/hópa
Hægt er að sjá reglugerð sjóðsins
inni á heimasíðu HSV.
Umsóknir skulu berast á netfangið hsv@hsv.is eða á skrifstofu HSV. Skrifstofa HSV er opin mán., þrið. og miðvikudaga fyrir hádegi og fimmtudaga og föstudaga frá 9 til 16.
Umsóknarfrestur er til 20. mars 2013
Frekari upplýsingar og spurningar varðandi sjóðinn sendist í tölvupósti: hsv@hsv.is eða í síma 698- 4842 hjá framkvæmdastjóra.
Nánar
ÁNÆGJUVOGIN -STYRKUR ÍÞRÓTTA
Niðurstöður rannsókna og hugleiðingar um skipulagt
íþróttastarf fyrir börn og ungmenni.
Þriðjudaginn 5. febrúar
munu UMFÍ, ÍSÍ og HSV standa í sameiningu fyrir fundi í Stjórnsýsluhúsinu, 4. Hæð,
á Ísafirði og hefst fundurinn klukkan 20:00.
Ánægjuvogin er könnun sem UMFÍ og ÍSÍ stóðu að í sameiningu á stöðu íþróttastarfs, ánægju iðkenda, stöðu áfengis- og tóbaksnotkunar og fleira meðal sambandsaðila í 8.-10. bekk.
Á fundinum mun Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, m.a. ræða um hvort að íþróttahreyfingin standist áskoranir nútímasamfélags eða sé eingöngu að þjálfa til árangurs. Viðar mun styðjast við niðurstöður rannsóknarinnar Ánægjuvogin sem Rannsókn og greining gerði fyrir UMFÍ og ÍSÍ.
HSV hvetur alla þá sem láta sér íþróttastarf barna og unglinga fyrir brjósti brenna að mæta á fundinn og kynna sér niðurstöður þessarar áhugaverðu rannsóknar og taka þátt í opnum umræðum á eftir.
Dagskrá fundarins verður með eftirfarandi hætti:
20:00 – Jón Páll Hreinsson, formaður HSV, setur fundinn.
20:05 – Dr. Viðar Halldórsson kynnir niðurstöður Ánægjuvogarinnar.
21:00 – Umræður og spurningar úr sal.
Þátttaka er ókeypis og öllum heimil.
Nánar