HSV.is - Fréttir
Á ársþingi HSV sem haldið var þann 28. maí sl. hlutu þeir Sigurður Jón Hreinsson og Gísli Jón Hjaltason silfurmerki HSV.
SIGURÐUR JÓN HREINSSON
Sigurður Jón Hreinsson hefur um árabil verið virkur þátttakandi íþróttastarfi í Ísafjarðarbæ. Hann hefur verið öflugur í störfum sínum fyrir Blakdeild Vestra og þar á undan Blakfélagið Skell. Hann á að baki langa stjórnarsetu í blakinu og hefur verið formaður stóran hluta þess tíma. Sigurður hefur af elju og ósérhlífni sinnt flestum þeim störfum sem starfsemin krefst og sömuleiðis látið að sér kveða á keppnisvellinum. Hann sat um tíma í stjórn Blaksambands Íslands og Héraðssambands Vestfirðinga, þar sem hann gegndi embætti formanns. Sigurður var í undirbúningshópnum sem vann að stofnun íþróttafélagsins Vestra og var kosinn í aðalstjórn félagsins á stofnfundinum 16. janúar 2016. Átti hann þar sæti til ársins 2020 þegar hann tók við formennsku í blakdeildinni að nýju.
Sigurður Jón Hreinsson hefur verið lykilmaður í uppbyggingu Íþróttafélagsins Vestra og unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu félagsins. Að sama skapi er það hverju samfélagi dýrmætt að hafa innan sinna raða einstaklinga sem með sjálfboðastarfi sínu gera íbúum kleift að sækja fjölbreytt og faglegt íþróttastarf í héraði. Sigurður Jón Hreinsson er einn þessara einstaklinga og framlag hans til íþróttamála ómetanlegt og til fyrirmyndar.
GÍSLI JÓN HJALTASON
Gísli Jón Hjaltason hefur verið virkur þátttakandi íþróttastarfi í Ísafjarðarbæ um árabil. Hann var formaður knattspyrnufélagsins BÍ/Bolungarvík síðustu árin áður en félagið gekk inn í Vestra og sat í undirbúningshópnum sem vann að því að sameina íþróttafélög á svæðinu í eitt stórt fjölgreinafélag sem leiddi til stofnunar Íþróttafélagsins Vestra 16. janúar 2016. Á stofnfundinum var Gísli Jón kosinn í aðalstjórn félagsins þar sem hann hefur gegnt stjórnarstörfum fram á þennan dag. Gísli Jón hefur alla tíð látið sér annt um íþróttastarf á svæðinu og lagt sitt af mörkum til að það fái vaxið og dafnað. Fyrir íþróttahreyfinguna er hann mikilvægur liðsmaður og fyrirmynd í vinnusemi og samfélagslegri ábyrgð.
26. ársþing HSV fór fram þann 28. maí sl. í félagsheimilinu á Þingeyri. Sigurður Gunnar Þorsteinsson, formaður HSV, setti þingið. Páll Janus Þórðarson var kosinn þingforseti og voru þátttakendur á þinginu tæplega 30 talsins.
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, og Guðný Stefanía Stefánsdóttir, stjórnarmaður UMFÍ, ávörpuðu þingið og hlaut Skíðafélag Ísfirðinga gæðavottunina Fyrirmyndarfélag ÍSÍ.
Fyrir þinginu lágu tillögur m.a. um lagabreytingar, um reglur um skiptingu styrkja til aðildafélaga innan HSV, um kjör íþróttamanns Ísafjarðarbæjar og um æfinga og keppnisaðstöðu Hendingar. Tillögurnar má finna á heimasíðu HSV undir "Þinggögn".
Breytingartillögu stjórnar á lögum HSV var lítillega breytt og samþykkt, en breytingarnar sneru að allflestum greinum laganna. Tillaga að reglum um skiptingu styrkja til aðildafélaga innan HSV var samþykkt óbreytt.
Samþykkt var að vísa tillögu vegna kjörs Íþróttamanns Ísafjarðarbæjar til stjórnar HSV, sem vinnur hana áfram.
Þá var tillaga samþykkt um að endurvekja samtal við Ísafjarðarbæ um aðstöðumál Hestamannafélagsins Hendingar með það að markmiði að gera félaginu kleift að byggja upp öflugt starf innan félagsins.
Ný stjórn var kosin á þinginu. Guðbjörg Ebba Högnadóttir og Kristinn Ísak Arnarson sitja áfram en þau voru kosin í aðalstjórn til tveggja ára á ársþingi 2025. Úr stjórn gengu Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Magnús Þór Bjarnason, Halla Signý Kristjánsdóttir, Heiðrún Tryggvadóttir og Árni Elíasson.
Sigríður Gísladóttir er nýkjörinn formaður HSV og voru tvö kosin í aðalstjórn til tveggja ára, þau Pálína Ingibjörg Jónmundsdóttir og Þráinn Ágúst Arnaldsson. Svala Sif Sigurgeirsdóttir, Grétar Örn Eiríksson og Hákon Dagur Guðjónsson voru kosin í varastjórn.
Stjórn HSV er þannig skipuð:
Sigríður Gísladóttir – formaður
Guðbjörg Ebba Högnadóttir
Kristinn Ísak Arnarsson
Pálína Ingibjörg Jónmundsdóttir
Þráinn Ágúst Arnaldsson
Varastjórn:
Grétar Örn Eiríksson
Hákon Dagur Guðjónsson
Svala Sif Sigurgeirsdóttir
Í samræmi við 7. gr laga HSV er hér með boðað til 26. Héraðsþings HSV, fimmtudaginn 28. maí nk. Þingið hefst kl. 17:00 og verður haldið í félagsheimilinu á Þingeyri. Tillögur sem óskað er eftir að teknar verði fyrir á Héraðsþingi, skulu hafa borist stjórn HSV fyrir 8. maí 2026.
Síðara fundarboð með upplýsingum um tillögur og mál sem leggja á fyrir héraðsþingið verður sent á aðildarfélög eigi minna en með tveggja vikna fyrirvara, með rafrænum hætti.
Óskað er eftir ábendingum um heiðursviðurkenningu HSV fyrir þingið.
Einnig er óskað eftir fólki til að gefa kost á sér í aðalstjórn HSV. Áhugasamir mega hafa samband með tölvupósti í hsv@hsv.is til að fá frekari upplýsingar.
Dagskrá:
1. Þingsetning
2. Kosning fyrsta og annars þingforseta
3. Kosning fyrsta og annars þingritara
4. Kosning þriggja manna kjörbréfanefndar
5. Skýrsla stjórnar lögð fram
6. Ársreikningar sambandsins lagðir fram, undirritaðir af kjörnum skoðunarmönnum og
stjórn
7. Ávörp gesta
8. Álit kjörbréfanefndar
9. Staðfesting á aðild nýrra félaga
10. Umræður um skýrslu stjórnar
11. Umræður og atkvæðagreiðsla um reikninga
12. Skipað í nefndir til starfa á þinginu
a. Kjörnefnd og aðrar nefndir ef þurfa þykir
13. Fjárhagsáætlun fyrir næsta ár lögð fram
14. Laga- og reglugerðabreytingar lagðar fram
15. Aðrar tillögur lagðar fram
16. Nefndarstörf um framlagðar tillögur og önnur mál sem nefndir ákveða að taka fyrir.
17. Afgreiðsla á áliti nefnda
18. Önnur mál
19. Kosningar
a. Kosning formanns
b. Kosning tveggja stjórnarmanna
c. Kosning þriggja manna í varastjórn
d. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og tveggja til vara
e. Kosning til íþróttaþings skv. lögum ÍSÍ á því ári sem íþróttaþing er haldið
f. Kosning til þings UMFÍ skv. lögum UMFÍ á því ári sem þing þess er haldið
g. Kosning þriggja manna uppstillingarnefndar
20. Þingslit
Vekjum athygli á stefnumótunarfundi ÍSÍ&UMFÍ í Menntaskólanum á Ísafirði á laugardaginn nk:
Áfram heldur vinna við stefnumótun hreyfingarinnar. Nú er fundað með fólki, fulltrúum íþróttahéraða, félögum og öðrum áhugasömum á Vestfjörðum.
Nú er komið að því að taka næsta skref í vinnunni og fá stærri hópa til að koma að þessum fyrsta hluta í vinnunni, taka þátt í að skilgreina hlutverkið og ákveða markmiðin. Til að tryggja aðkomu sem flestra að ferlinu höfum við stillt upp fundum um allt land. Jafnframt verður boðið uppá fundi á Teams fyrir þau sem ekki geta tekið þátt í staðfundum.
Meðfylgjandi er hlekkur til að skrá sig á fund:
https://docs.google.com/.../11XklbUmvAh6DfVjS.../viewform...
Það er mikils virði og gerir alla vinnuna skilvirkari þegar raddir flestra heyrist og ólík sjónarmið eru lögð á borðið. Við vonumst til að sjá sem allra flest á fundinum í Menntaskólanum á Ísafirði.
Nánari upplýsingar:
https://fb.me/e/4g90svwbN
Stjórnarmönnum í HSV og HSB, ásamt stjórnum aðildarfélaga, er boðið til fundar um stefnumótun íþróttahéraða á Vestfjörðum þriðjudaginn 24. mars kl. 19 í Vestrahúsinu.
Markmið fundarins er að efla samstarf, samræma sýn og leggja grunn að öflugri og sjálfbærri þróun íþróttastarfs á Vestfjörðum. Mikilvægt er að það komi amk 1 frá hverju aðildarfélagi, en því fleiri því betra.
Sjá nánar dagskrá á meðfylgjandi mynd.
Starfsskýrsluskil þurfa að innihalda upplýsingar um félagsmenn og iðkendur á síðasta starfsskýrslutímabili, þ.e. fyrir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2025, ásamt innslegnum lykilupplýsingum úr ársreikningum fyrir síðasta starfsár (2025) og upplýsingum um núverandi stjórn og starfsfólk. Einnig þarf að skila ársreikningi undirrituðum af stjórn og skoðunarmönnum á pdf-formi og núgildandi lögum á pdf- formi inn í kerfið.
Skila þarf skýrslum fyrir 15. apríl næstkomandi. Slóð á skilakerfi ÍSÍ & UMFÍ: https://www.abler.io/isi-reports/login
Við skil á starfsskýrslum í skilakerfi ÍSÍ og UMFÍ síðastliðin ár hafa ýmsar fyrirspurnir og athugasemdir komið fram, en á þessari síðu eru talin fram helstu atriði sem talið er rétt að skerpa á til útskýringar:
https://www.umfi.is/utgafa/frettasafn/allar-frettir/ertu-ad-skila-starfsskyrslu/
Dagur Benediktsson frá Skíðafélagi Ísfirðinga hefur hafið keppni á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina d'Ampezzo á Ítalíu.
Eftirfarandi umfjöllun má finna á heimasíðu Skíðafélagsins, www.snjor.is:
Það hefur vart farið fram hjá neinum að Dagur Benediktsson frá Skíðafélagi Ísfirðinga hefur í dag keppni á Ólympíuleikunum. Dagur keppir í 20 km skiptigöngu, þar sem fyrst eru gengnir 10 km með hefðbundinni aðferð og síðan 10 km skautað. Keppnin byrjar klukkan 11:30 og er sýnd á RÚV2.
Hjá Skíðafélagi Ísfirðinga, líkt og meðal Ísfirðinga allra, ríkir mikil gleði og stolt yfir því að eiga fulltrúa á leikunum. Af því tilefni er rétt að segja aðeins frá okkar íþróttamanni og gefa ykkur kost á að kynnast honum aðeins betur.
Dagur Benediktsson fæddist 17. júní árið 1998 á Ísafirði. Hann er sonur Stellu Hjaltadóttur og Benedikts Bjarnasonar og á eina yngri systur, Auði Líf Benediktsdóttur. Hann flutti ungur ásamt fjölskyldu sinni til Danmerkur, en sneri aftur til Ísafjarðar þegar hann var að fara að byrja í grunnskóla, þar sem hann ólst upp í faðmi fjallanna!
Dagur hefur stundað skíðagöngu hjá SFÍ frá barnsaldri og samhliða því æfði hann knattspyrnu allt fram til 17 ára aldurs þegar hann valdi skíðin. Móðir hans, Stella, sem sjálf er þekkt skíðakona, þjálfaði hann og systur hans fyrstu árin ásamt öðrum iðkendum.
Hann útskrifaðist frá Menntaskólanum á Ísafirði árið 2017, einu ári á undan jafnöldrum sínum. Dagur fluttu til Östersund í Svíþjóð, tvítugur að aldri, til þess að einbeita sér alveg að skíðagöngunni og æfa við bestu aðstæður.  Samhliða því að æfa við bestu aðstæður hefur Dagur klárað BS gráður í viðskiptafræði með áherslu á sjávarútvegsfræði svo hann ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur!
Sem íþróttamaður er Dagur þekktur fyrir mikinn viljastyrk, aga og sjálfstæði í æfingum. Þegar hann dvelur á Íslandi, til dæmis yfir sumartímann, æfir hann oftast einn, sem krefst mikillar einbeitingar og þrautseigju. Hann er rólegur og jarðbundinn í framkomu og leggur meiri áherslu á ferlið og stöðuga þróun sína sem íþróttamaður en á frægð eða hrós.
Dagur er í sambúð með Hólmfríði Dóru Friðgeirsdóttur sem er fremsta skíðakona okkar íslendinga í alpagreinum og er aðdáunarvert að fylgjast með samvinnu þeirra beggja í að láta draumana sína rætast.
Samhliða skíðagöngunni hefur Dagur einnig mætt í keppnishlaup og náð þar góðum árangri innanlands. Sumarið 2025 sigraði hann hálfmaraþon Reykjavíkurmaraþons og hljóp þá sinn besta tíma, 1:12:52. Sá árangur vakti verðskuldaða athygli. Hann sagði m.a frá markmiðinu sínu í hlaðvarpsþættinum Langa og hvernig hann hefur verið að æfa undanfarin ár.
Dagur hefur tvisvar sinnum verið valinn íþróttamaður Ísafjarðarbæjar, árið 2022 og 2024.
Dagur er einnig mikil fyrirmynd fyrir yngri iðkendur Skíðafélags Ísfirðinga. Hann gefur sér jafnan tíma til að spjalla við yngri keppendur og miðla reynslu sinni þegar hann er á svæðinu og hefur þannig haft jákvæð áhrif á næstu kynslóð skíðagöngufólks.
Dagur hefur sjálfur sagt frá því að markmið hans hafi verið að komast á Ólympíuleikana í Peking árið 2022, en hann var þá ekki langt frá því að tryggja sér sæti. Að komast ekki á þá leika hafði mikil áhrif á hann og auðvelt hefði verið að gefast upp. Það kom hins vegar ekki til greina. Síðustu fjögur ár hefur hann unnið markvisst að þessu markmiði og nú hefur vinnan skilað sér.
Það er því sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með Degi á Ólympíuleikunum eftir allt það starf og þá fórn sem hann hefur lagt í ferlið.
Það er viðeigandi að láta fylgja með mynd af Degi með þar sem hann er að taka sín fyrstu skref í sportinu.
ÁFRAM DAGUR OG ÁFRAM ÍSLAND!
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Afrekssjóð HSV. Samkvæmt reglugerð Afrekssjóðs HSV er markmið sjóðsins að styrkja unga og efnilega íþróttamenn með því að gera eins árs samning við viðkomandi (8. grein). En einnig er heimilt að úthluta einstaka styrkjum til þeirra íþróttamanna sem ekki falla undir skilyrði til samnings (9. grein).
3. grein
Eingöngu iðkendur aðildarfélaga HSV, sem stunda íþróttir sem viðurkenndar eru af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ), geta sótt um styrk úr sjóðnum.
8. grein
Meginmarkmið sjóðsins er að styrkja unga og efnilega íþróttamenn sem líklegir eru til að verða afreksmenn í framtíðinni. Sjóðurinn skal ná því markmiði með því að gera eins árs samning við viðkomandi.
9. grein
Heimilt er að úthluta úr Afrekssjóðnum einu sinni á ári til þeirra íþróttamanna sem ekki falla undir skilyrði til langtímasamnings.
Reglur afrekssjóðs HSV
Umsóknarferlið er eins hvort sem sótt er um að gera samning eða fá einstaka styrki, umsækjandi velur í ferlinu hvoru hann sækist eftir. Umsækjandi sem óskar eftir samningi en fær ekki mun sjálfkrafa færast yfir í hóp þeirra sem sækja um einstaka styrki.
Umsóknarferlið fer fram í gengum heimasíðu HSV líkt og verið hefur. Slóðin inn á ferlið er hér: SÆKJA UM
Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar 2026.
Veist þú um ósérhlífinn einstakling sem hefur gefið mikið af tíma sínum í sjálfboðavinnu í íþróttastarfi og verið öðrum innblástur og hvatning?
Sendu inn tilnefningu fyrir 5. desember á https://isi.is/fraedsla/ithrottaeldhugi-2025
Verðlaunin "Íþróttaeldhugi ársins" eru í boði Lottó.
HSV sendir bikarmeisturum Vestra innilegar hamingjuóskir með titilinn. Það er einstakt að sjá hvernig íþróttir geta tengt samfélagið saman.