A A A
« Febrúar »
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Atburđir

3. febrúar 2012 - Ingvar Örn Ákason

Nóg um ađ vera

Stór hluti af ţessum fríđa og föngulega hópi verđur í eldlínunni um helgina líkt og ţeir voru í eldlínunni á Barcelona-Real Madrid í ágúst síđastliđnum á Nou Camp!
Stór hluti af ţessum fríđa og föngulega hópi verđur í eldlínunni um helgina líkt og ţeir voru í eldlínunni á Barcelona-Real Madrid í ágúst síđastliđnum á Nou Camp!
Þessa helgina halda 2 flokkar suður til Reykjavíkur í keppnisferð. 2.flokkur flýgur suður á laugardegi og spilar tvo leiki um helgina gegn ÍBV. Leikirnir fara fram í Seljaskóla (heimavöllur ÍR en liðin ákváðu að mætast "á miðri leið"). Fyrri leikurinn er á laugardag kl. 15:00 og seinni leikurinn á sunnudag kl. 14:15.

5.flokkur eldra ár heldur snemma á laugardagsmorgun suður í rútu. Lagt verður af stað kl. 7.30 frá Torfnesi, þannig að menn geta sofið vel út fyrir ferðina. Gísli Jón er fararstjóri ferðarinnar og sér um rútukeyrsluna með Ingvar þjálfara sér við hlið. Drengirnir spila tvo leiki á laugardag: kl. 16:00 gegn Fjölni2 og svo kl. 17:20 gegn HK4. Sunnudagurinn hefst kl. 12:00 en þá mæta drengirnir sprækum Völsungum frá Húsavík og svo kl. 14:00 er leikið gegn ÍR2. Allt verða þetta hörkuleikir en spilað er í Kaplakrika (heimavöllur FH í Hafnarfirði).

Við hvetjum auðvitað allt okkar góða fólk sem verður fyrir sunnan til að kíkja á liðin okkar keppa. Bæði 2.flokk og 5.flokk.

Áfram Hörður!
29. janúar 2012 - Ingvar Örn Ákason

Leikmannapistill 3.flokks

Ţórólfur var orđinn lúinn í lok ferđar enda vćntanlega einn af ţeim sem fóru of seint ađ sofa alla dagana :)
Ţórólfur var orđinn lúinn í lok ferđar enda vćntanlega einn af ţeim sem fóru of seint ađ sofa alla dagana :)
« 1 af 4 »
Já hér að neðan má líta á mjög ítarlegan leikmannapistil sem vegna tæknilegra örðugleika kemur fyrst inná síðuna núna en pistillinn barst vefritara fyrir rúmri viku síðan. Hér er pistillinn.


Lagt var af stað frá Torfnesi fimmtudaginn 12. Janúar eitthvað um 9 um morguninn. Farið var með rútu og voru nánast allir sem fóru með rútunni. En Ívar og Halldór voru ekki með og Ingvar Örn fór með flugi suður. Rútuferðin gekk slysalaus fyrir sig og vorum við komnir suður um 3 og leið okkar lá beint á Hótel Hafnarfjörð þar sem allir komu sér vel fyrir. Síðan fóru allir að slaka á.

Síðan lá leið liðsins upp í útvarpshús þar sem Gettu betur fór fram á milli Menntaskólans á Ísafirði og Verkmenntaskólans á Akureyri og hafði Ísafjörður betur. Síðan lá leiðin upp í Fjölbrautarskólann í Breiðholti þar sem Morfís fór fram og hafði Ísafjörður betur í þeirri viðureign. Eftir Morfís fórum við aftur upp á hótel með smá stoppi í Hagkaup. Þegar við komum á hótelið tók svefninn við en fóru menn á misjöfnum tíma að sofa eins og venjan er.

Síðan var vaknað um morguninn til þess að fara í morgunmat, eða flestir vöknuðu og sumum var hótað lífláti ef hann yrði vakinn. Síðan lögðu sig allir eftir morgunmatinn. Þegar allir höfðu vaknað var haldið upp í Kringlu til þess að fá sér að borða og versla smá. Eftir Kringluferðina fórum við upp á hótel til að taka okkur til fyrir leikinn. Síðan lá leiðin í Höllina með smá stoppi í Hagkaup. Síðan þegar komið var í Höllina var einhver landsleikur í gangi og við þurftum að bíða eftir því að hann kláraðist svo að við gætum spilað okkar leik.

Þegar landsleiknum lauk fórum við að hita upp fyrir okkar leik á móti Þrótti. Hann fór ekki eins og við vildum að hann hefði farið en þetta var hörku leikur allan tímann og leiddum við leikinn mestallan fyrri hálfleikinn en síðan töpuðum við forystunni niður og vorum undir með einu marki eftir fyrri hálfleik. Síðan mættum við sterkir til fyrri hálfleiks en það dugði ekki til en leikurinn fór 40-36 Þrótturum í vil. Eftir leikinn fórum við aftur upp á hótelið til þess að hvíla okkur en fóru menn að sofa á misjöfnum tíma en þegar að morgunmaturinn byrjaði voru sumir ekki ennþá farnir að sofa.

Eftir morgunmat fóru flestir að sofa eða lögðu sig. Svo uppúr 3 var leiðinni haldið í Smáralindina, þegar þangað var komið áttaði Jói sig á því að buxurnar sem hann ætlaði að kaupa sér voru ekki til í Smáralindinni þannig að Þórólfur, Jói og Ásgeir brunuðu upp í Kringlu og keyptu þessar buxur með Jóa. Þegar til baka var komið í Smáralindina fóru S.Óli, Þórólfur, Halldór,Alex,Tómas og Stefán í Skemmtigarðinn í Smáralindinni og skemmtu sér konunglega. Þegar klukkan fór að slá 8 fóru flestir í bíó á myndina The Sitter en aðrir fóru að hitta fjölskyldumeðlimi.

Uppúr hálf 11 þegar myndin kláraðist var haldið uppá hótel. Þegar þangað var komið var pöntuð pizza frá Dominos, sem hann Gísli Jón var svo góður að splæsa á okkur. Eftir að við höfðum étið á okkur gat var haldið í rúmið. Morguninn eftir kl 8 var ræs í morgunmat og menn lögðu sig smá eftir hann. Síðan rann stundin upp, um klukkan 9 voru allir ræstir aftur og við kláruðum að pakka niður og svo var farið út í rútu. Þegar allir voru þangað komnir var haldið af stað upp í KR heimili, eftir miklar leitir fundum við það loksins. Við klæddum okkur í föt og fórum svo að hita upp og svo hófst leikurinn. Við byrjuðum af miklum krafti og stóðum vel í þeim og í hálfleik var staðan 18-11. Við héldum áfram að spila vel og að leikslokum var staðan 34-24 fyrir KR.

Eftir leikinn héldu allir sáttir í sturtu þótt við hefðum tapað. Við áttum samt góðan leik og allir stóðir sig vel þótt skemmtilegra hefði verið ef við hefðum unnið. Þegar allir voru búnir í sturtu var farið út í rútu og svo upp í Kringlu að fá sér að borða og beint heim. Við stoppuðum á Hólmavík og fengum okkur smá að éta og vorum svo komnir á Ísafjörð rúmlega 10.


-Þórólfur og Birkir


Heimasíðan þakkar Birki og Þórólfi kærlega fyrir ítarlegan og skemmtilegan leikmannapistil.

Áfram Hörður! 

27. janúar 2012 - Ingvar Örn Ákason

2.flokkur keppir loksins heimaleik á sunnudag

Spurning hvort máttur Loga Geirs skili sér til Finnboga Lárens, Egils Flugger og Stefáns Djé Gjé í leiknum
Spurning hvort máttur Loga Geirs skili sér til Finnboga Lárens, Egils Flugger og Stefáns Djé Gjé í leiknum
2.flokkur Harðar fær loksins heimaleik í deildinni næstkomandi sunnudag, 29.janúar kl. 14:00 gegn Víkingi frá Reykjavík. Síðasta rimma liðanna var mjög jöfn en svo fór að lokum að Víkingar mörðu nauman sigur í Víkinni, 25-23 en staðan var 15-13 í hálfleik. Strákarnir hafa núna gott tækifæri til að sýna það og sanna að þá eigi að taka alvarlega í þessari deild. Við hjá handknattleiksdeildinni heimtum að sjálfsögðu fullan kofa til að styðja strákana en allir yngri flokkar Harðar verða bandbrjálaðir í stúkunni til að hvetja okkar menn til sigurs!

Fjölmennum í Torfnes á sunnudag kl. 14:00 (mæta uppúr 13:30 og gefa þeim smá pepp í upphitun) og segjum saman:

Áfram Hörður! 
20. janúar 2012 - Ingvar Örn Ákason

Handboltaveisla

Axel er byrjađur ađ spila ađ nýju međ 2.flokki eftir smá pásu
Axel er byrjađur ađ spila ađ nýju međ 2.flokki eftir smá pásu
Við hjá handknattleiksdeild Harðar minnum á handboltaveislu helgarinnar:


föstudagur: Ísland-Slóvenía kl. 17:10-18:30. Hörður-Grótta2 í 3.flokki karla hefst síðan kl. 18:30 og við hvetjum að sjálfsögðu alla til að drífa sig í Torfnes beint eftir landsleikinn
laugardagur: Hörður-Grótta2 í 2.flokki karla kl. 11:00
sunnudagur: Hörður-Haukar í bikarkeppni 3.flokks karla kl. 14:00

Við hvetjum vitanlega alla til að kíkja á þessa flottu handboltaleiki í Torfnesi um helgina. Um síðustu helgi fór 3.flokkur í keppnisferð suður þar sem þeir áttu tvo mjög fína leiki gegn Þrótti og KR en fyrri leikurinn tapaðist 40-36 (21-20 í hálfleik) og sá síðari 34-24 (18-11 í hálfleik). Drengirnir hafa sýnt miklar framfarir í vetur og vonast því til að eiga góða keppnishelgi með góðum stuðningi áhorfenda. Leikmannapistill frá 3.flokksferðinni kemur á síðuna innan skamms. 2.flokkurinn er spenntur fyrir sínum fyrsta sigri og vonandi kemur hann á laugardag.

Heimasíðan er öll að taka kipp en nú eru komnar nýjar myndir úr starfinu í haus síðunnar sem og komin ný myndaalbúm undir liðnum "Myndir" hér vinstra megin á síðunni. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur þetta og fylgjast svo vel með á komandi misserum.

Áfram Hörður! 

3. janúar 2012 - Ingvar Örn Ákason

Ćfingar yngri flokka á nýju ári!

Gleðilegt nýtt ár Harðverjar góðir, nær og fjær.

Deildin fór í gott jólafrí frá 17.desember síðastliðnum og æfingar hefjast á nýjan leik skv. æfingatöflu þann 4.janúar 2012. Við vonumst til þess að allir iðkendur mæti sprækir til leiks eftir gott frí og nú er það bara harkan sex á komandi misserum. Allir flokkar eru að fara á amk 2 mót núna á vorönninni og margir leikir framundan hjá elstu flokkunum, 2. og 3.fl.

Fyrsti leikur ársins verður strax á laugardaginn (7.janúar) í Torfnesi þegar 2.flokkur karla tekur á móti ÍR-ingum í 2.deild 2.flokks. Leikurinn hefst kl. 14:00 og það væri gaman að sjá sem flesta á vellinum og styðja drengina til sigurs í þessum flotta opnunarleik ársins 2012!¨

Áfram Hörður! 
3. desember 2011 - Ingvar Örn Ákason

Handboltahátíđ í Torfnesi sunnudaginn 11.desember 2011

Sigurliđ jólamótsins áriđ 2010
Sigurliđ jólamótsins áriđ 2010
« 1 af 3 »
Sunnudaginn 11.desember fer fram jólamót Harðar í handbolta líkt og á síðasta ári. Leikið verður á tveimur völlum samtímis í Torfnesi frá kl. 10:00-13:00. Leikið er með mjúkboltafyrirkomulagi, en bannað er að drippla og leikið er á minni mörk og á minni velli en í hefðbundnum handbolta. Liðin eru blönduð stráka og stelpulið úr öllum yngri flokkum handboltans (3fl, 5fl og 6fl ásamt elstu iðkendum boltaskóla HSV). Í hverju liði verða einn til tveir leikmenn úr hverjum aldurshópi. Leiktími hvers leiks verður 1x5mínútur en leiknir verða margir leikir í tveimur til þremur riðlum.

Allir þátttakendur verða leystir út með jólagjöf og svo fá sigurliðin verðlaun.

Jólamót Harðar er hinsvegar ekki eini atburður dagsins því strax í kjölfar mótsins, eða kl. 14:00 fer fram leikur á milli Harðar og Hauka í 16-liða úrslitum bikarkeppni HSÍ hjá 3.flokki karla. Þetta er stór leikur fyrir drengina því með sigri komast þeir í 8-liða úrslit sem væri virkilega frábær árangur. Haukar leika í 1.deild en okkar drengir í Herði leika í 2.deild. Þetta er síðasti leikur liðsins fyrir jól og við hvetjum því alla sem vettlingi geta valdið að mæta í Torfnes og hvetja okkar lið til sigurs.

Áfram Hörður!

25. nóvember 2011 - Ingvar Örn Ákason

5.flokkur yngri

Harđarpúkarnir sáttir í mótslok
Harđarpúkarnir sáttir í mótslok
« 1 af 2 »
Já 5.flokkur yngri fór í sína fyrstu keppnisferð þennan veturinn um síðustu helgi, 18.-20. nóvember. Mótið var haldið af ÍR-ingum í Breiðholti Reykjavíkur. Við Harðverjar sendum eitt massíft 14 manna lið (heilt lið af skiptimönnum á bekknum) og þeir stóðu sig bara nokkuð vel drengirnir. Þeir spiluðu einungis þrjá leiki á mótinu en oftast eru leikirnir alveg 4-5 talsins. En vel var haldið utan um mótið og skipulag af Breiðhyltingum. Harðarpúkarnir töpuðu tveimur leikjum, gegn HKR og Selfossi en unnu ÍR-inga í lokaleik riðilsins. Drengirnir fögnuðu sigrinum vel og innilega og mikil liðsheild hafði skapast, sem er jú mjög jákvætt.

Eftir keppni dagsins var haldið í Salaskóla þar sem þeir gistu og höfðu fullan aðgang að flottri félagsmiðstöðvaraðstoðu þar á bæ, þökk sé Óla, pabba Hlyns. Þar fór vel um drengina fram til sunnudags en þeir vöknuðu þó snemma til að taka góða æfingu í KR-heimilinu en KR-ingar voru svo elskulegir að lána okkur íþróttahús sitt í 90 mínútur til að fá auka spiltíma. Þeir gátu því miður ekki spilað sjálfir við okkur og önnur lið voru einnig önnum kafin en Harðarpúkarnir létu það þó ekki á sig fá og við tókum tvo æfingaleiki innbyrðis enda með tvö full lið með í för að þessu sinni af flottum drengjum.

Drengirnir fóru svo sælir og sáttir heim á leið með flugi á sunnudeginum eftir fína helgi í Reykjavík. Eftir áramót er planið að taka tvö Íslandsmót af þeim þremur sem standa til boða og ætlunin er að sjálfsögðu eins og áður að gera betur þá heldur en síðast og það er ekki nokkur spurning að með góðri ástundun og dugnaði gerist það.

Pistlahöfundur (þjálfari flokksins) þakkar fararstjórum fyrir flotta ferð og drengjunum fyrir þann kraft og metnað sem þeir lögðu í þetta og fyrir liðsheildina sem þeir sköpuðu. Flottir Harðverjar þarna á ferðinni eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.


Enn fleiri myndir frá mótinu má sjá á þessari slóð: https://picasaweb.google.com/103465191030564066767/SantaMariaMot19Nov3Hluti

Áfram Hörður! 
22. nóvember 2011 - Ingvar Örn Ákason

Leikmannapistill

Hérna sést Ţórólfur Marel (Tótorov) á góđri stundu fyrir tćpu ári síđan! Hann er nćst lengst til hćgri á myndinni.
Hérna sést Ţórólfur Marel (Tótorov) á góđri stundu fyrir tćpu ári síđan! Hann er nćst lengst til hćgri á myndinni.
Hér að neðan má sjá pistil frá leikmönnum 3.flokks eftir erfiðan leik gegn FH-ingum.

Leikur helgarinnar var á móti FH. Það voru flestir mættir í hús um 13:00 og þar var öllu komið í gang, tónlist sett á, varamannabekkir græjaðir og meira stúss. Svo var hitað upp, og um 14:00 mætti Byssi í hús eftir að hafa komið með flugi frá Reykjavík, en hann kom beint á völlinn eftir að hann lenti. Flautað var til leiks um 14:15. Fimleikafélagið hafði yfirhöndina í leiknum mestallan tímann, en við Harðverjar létum það ekkert á okkur fá og gáfumst ekki upp þótt að við værum nokkrum mörkum undir. Staðan í hálfleik var 18-11 fyrir FH-ingum. Síðan mættu bæði lið grimm í seinni hálfleik og gáfu ekkert eftir. En lokastaðan í leiknum var 35-21 fimleikafélaginu í vil. En við Harðverjar vorum samt sáttir með okkar leik, enda vorum við að spila á móti efsta liðinu í deildinni.



-Birkir Örn og Þórólfur Marel

Heimasíðan þakkar leikmönnum 3.flokks fyrir pistlana og gaman að fá þeirra sýn á þetta allt saman. En það er hárrétt hjá þeim að þrátt fyrir nokkuð stórt tap þá voru sumir hlutir að ganga vel hjá okkur en auðvitað þarf allt að slípast betur til og menn eru sífellt að komast í betra stand til að takast á við erfitt verkefni vetrarins. Við eigum nú tvo leiki eftir fyrir jól. Annarsvegar deildarleik gegn Selfossi2 þann 3.desember og svo gegn Haukum í bikarkeppni HSÍ en leikdagur hefur ekki verið ákveðinn fyrir þann leik. Báðir leikirnir fara fram í Torfnesi.

Áfram Hörður!

17. nóvember 2011 - Ingvar Örn Ákason

Úrslit síđustu leikja hjá 2.flokki og meistaraflokki Harđar

2.flokkur spilaði fyrir skömmu tvo leiki gegn Akureyri2 hér á Ísafirði. Ákveðið var, sameiginlega af hálfu beggja liða, að spila báða leikina hér fyrir vestan og spara þar með ferðakostnað. Akureyri2 vann báða leikina sannfærandi. Fyrri leikurinn fór 30-20 (20-8 í hálfleik) og seinni leikurinn fór 33-22 (16-10 í hálfleik). Næstu verkefni 2.flokks eru ekki fyrr en eftir áramót en þeir eiga næst heimaleik á móti ÍR laugardaginn 7.janúar.

 

Meistaraflokkur (þar sem uppistaðan var leikmenn 2.flokks og svo nokkrir reynsluboltar í bland) tók þátt í bikarkeppni HSÍ á dögunum. Við sátum hjá í fyrstu umferð og fórum því beint í 16-liða úrslit. Þar drógumst við gegn Stjörnunni2, eða Heimsliðinu, eins og þeir kalla sig í utandeildinni. Sigur Heimsliðsins var aldrei í hættu og þeir fóru að lokum með 41-27 útisigur í farteskinu heim í Garðabæinn. Næsta verkefni meistaraflokks er því að ári í bikarnum.

 

Af öðrum flokkum má nefna það að 5.flokkur yngri keppir á sínu fyrsta Íslandsmóti í vetur þegar þeir halda suður um helgina og spila á deildarmóti ÍR-inga í Austurbergi. Þeir spila einungis 3 leiki seinni part laugardags en verið er að vinna í því að fá 2-3 æfingaleiki á sunnudagsmorgninum fyrir heimför. 3.flokkur spilar síðan á sunnudag kl. 14:00 sinn erfiðasta leik til þessa á Íslandsmótinu í 2.deildinni þegar þeir mæta langsterkasta liði riðilsins á papír allavega en þá mætir FH1 í heimsókn.

 

Áfram Hörður!

16. nóvember 2011 - Ingvar Örn Ákason

Leikmannapistill frá 3.flokki

Nýjasti liđsmađur 3.flokks Harđar spilađi vel í sínum fyrsta leik í fallega bláa búningnum
Nýjasti liđsmađur 3.flokks Harđar spilađi vel í sínum fyrsta leik í fallega bláa búningnum
3. Flokkur Harðar lagði af stað í sína fyrstu keppnisferð á Íslandsmótinu í handbolta síðastliðinn laugardag klukkan 8:05, komið var til Reykjavíkur rúmlega 2 sama dag.

Glímukapparnir S.Óli, Halldór og Birkir voru staddir á Akureyri og þurftum við að sækja þá út á flugvöll klukkan hálf 4 og síðan var brunað beint til Keflavíkur þar sem fyrsti leikur okkur gegn HKR átti að hefjast hálf 6. Við mættum til Keflavíkur án bolta þar sem Þórólfur (innskot blaðamanns: Tótorov) gleymdi að taka þá með frá Ísafirði, en það reddaðist þegar við fengum 3 bolta lánaða frá liði Keflavíkur. Pixið gleymdist einnig en Friðgerður mamma Ásgeirs fór og keypti fyrir okkur. Tómas gleymdi keppnisbúningnum sínum og keppnisskóm á hótelinu og spilaði í búning frá Ásgeiri og skóm frá Byssa þjálfara. Í byrjun leiks var Byssi strax orðin óánægður með dómarana, sem varð svo seinna meir bara fyndið. Tótorov gerði heiðarlega tilraun til að skora mark í leiknum, 2x, en allt kom fyrir ekki. Leiknum lauk svo 32-21 (15-10 í hálfleik) fyrir Herði auðvitað þar sem Ásgeir var markahæsti leikmaður liðsins, og var þá fyrsti sigur 3. Flokks Harðar kominn í hús. Nýjasti liðsmaður Harðar, Aron Gauti Kristjánsson, gamall reynslubolti úr flottum 95 árgang hjá KR sem Ingvar þjálfaði í fimm ár, kom inní leikinn gegn HKR, spilaði fantavel og skoraði nokkur mörk. Hann kemur með ákveðna ró í spilið og hann er með flott auga fyrir línusendingum og leiknum almennt.

Eftir leikinn var haldið í sturtu í fötunum sem við vorum búnir að ákveða að gera í hvert sinn sem við vinnum leik. Eftir sturtuna var svo haldið út í rútu og beint til Hafnafjarðar þar sem við gistum á Hótel Hafnafirði. Við skelltum okkur svo á Castello í kvöldmat þar sem matarstjóri hópsins, Jóhann Jakob, hafði ákveðið að fara þangað eftir langa umhugsun. Þar fengum við þessar svakalega góðu pizzur og ekki má gleyma brauðstöngunum sem stóðu sérstakalega uppúr. Eftir matinn skelltum við okkur í Smáralindina þar sem langflestir skelltu sér á myndina Tower Heist en hins vegar fóru Þórólfur, Stefán, Salli, Alex og Halldór í skemmtigarðinn.

Báðir hóparnir komu sáttir úr sínu, en vilja strákarnir sem fóru í skemmtigarðinn meina að þeir hafi skemmt sér meira.
Eftir smáralindarförina var haldið uppá Hótel Hafnarfjörð þar sem flestir fóru og komu sér vel fyrir en aðrir kíktu í Hagkaup að kaupa sér eitthvað til að narta í. Svo um nóttina gengu Þórólfur og Halldór á milli herbergja með smákökur og mjólk til að fá að horfa á sjónvarpið, en alltaf voru móttökurnar jafn lélegur og þeir fengu ekki að horfa á sjónvarpið, þannig þeir fóru bara að sofa.

Milli klukkan 7 og 10 var hægt að fara í morgunmat á hótelinu, sem allir handboltastrákarnir nýttu sér. En hins vegar var Þórólfur ekki mjög ánægður með það sem var boðið upp á þar sem hann hafði heyrt að þarna væri í boði egg og bacon, vöfflur og fleira en í þetta skiptið var bara brauð og morgunkorn. Eftir morgunmatinn gerðu Þórólfur, Halldór, Tómas og Birkir sér heiðarlega tilraun til að skella sér í Kringluna til að versla aðeins og pöntuðu sér taxa. En þegar komið var upp í Kringlu var hún auðvitað lokuð þar sem hún opnar ekki fyrr en klukkan 1 á sunnudögum en ekki 11 eins og strákarnir héldu. Þannig að þeir þurftu að taka taxa líka til baka upp á hótel og þetta uppátæki þeirra kostaði þá 1500kr á manninn fyrir smá rúnt með taxa. Þegar þeir voru komnir til baka var rútan komin og leiðinni var haldið upp í Fram-heimilið, þar sem seinni leikur okkur átti að hefjast klukkan hálf 2 gegn Fram.

Leikurinn var æsispennandi allan tímann en því miður lauk honum með eins marks sigri Framara eða 27-26 (15-14 f. Hörð í hálfleik). Markahæsti maður okkar Harðar var enn og aftur Ásgeir Hinrik með 7 mörk. Aðrir markaskorarar voru:

Stebbi Fribb 5
Birkir 5
S.Óli 4
Jói matarstjóri 3
Tommi engir skór 1
Ívar skemmtikraftur 1 

S.Óli fékk gult spjald og Sleggi fékk tveggja mínútna brottvísun. Salli varði vel í markinu.

Eftir leikinn var því miður ekki farið í sturtu í fötunum þar sem við gerum það aðeins í sigurleikjum en þarna mátti litlu muna. En við erum allir sáttir með leikinn enda var þetta gegn feiknarsterku liði Fram sem eru í 3. sæti í riðlinum og því ekki slæmt að standa svona vel í þeim. Svo var leiðinni haldið upp í Kringlu að fá sér að borða og kíkja kannski smá í búðir ef tími gafst til því við höfðum aðeins 45 mínútur því svo var lagt á stað heim. Það er ekki frásögu færandi nema hvað að þjálfarinn sjálfur sem lagði mikið uppúr því að við mættum á réttum tími kom sjálfur korteri of seint.

Þannig það var lagt á stað korter í 5 en ekki hálf 5 eins og áætlað var þökk sé Ingvari. Á heimleiðinni var stoppað bæði á Hólmavík og Búðardal en við vorum mættir á Ísafjörð rúmlega 11. Allir voru verulega þreyttir eftir þessa ferð en aftur á móti líka rosa sáttir með árangurinn og bara mjög sáttir með þessu rosa skemmtilegu ferð.


-Þóróflur Marel og Birkir Örn

Fyrri síđa
1
234567Nćsta síđa
Síđa 1 af 7
Eldri fćrslur

Fréttir

Vefir ađildarfélaga HSV

Vefumsjón