27. janúar 2012 - Ingvar Örn Ákason
Spurning hvort máttur Loga Geirs skili sér til Finnboga Lárens, Egils Flugger og Stefáns Djé Gjé í leiknum
2.flokkur Harðar fær loksins heimaleik í deildinni næstkomandi sunnudag, 29.janúar kl. 14:00 gegn Víkingi frá Reykjavík. Síðasta rimma liðanna var mjög jöfn en svo fór að lokum að Víkingar mörðu nauman sigur í Víkinni, 25-23 en staðan var 15-13 í hálfleik. Strákarnir hafa núna gott tækifæri til að sýna það og sanna að þá eigi að taka alvarlega í þessari deild. Við hjá handknattleiksdeildinni heimtum að sjálfsögðu fullan kofa til að styðja strákana en allir yngri flokkar Harðar verða bandbrjálaðir í stúkunni til að hvetja okkar menn til sigurs!
Fjölmennum í Torfnes á sunnudag kl. 14:00 (mæta uppúr 13:30 og gefa þeim smá pepp í upphitun) og segjum saman:
Áfram Hörður!