A A A
« Maí »
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Atburđir

25. nóvember 2011 - Ingvar Örn Ákason

5.flokkur yngri

Harđarpúkarnir sáttir í mótslok
Harđarpúkarnir sáttir í mótslok
« 1 af 2 »
Já 5.flokkur yngri fór í sína fyrstu keppnisferð þennan veturinn um síðustu helgi, 18.-20. nóvember. Mótið var haldið af ÍR-ingum í Breiðholti Reykjavíkur. Við Harðverjar sendum eitt massíft 14 manna lið (heilt lið af skiptimönnum á bekknum) og þeir stóðu sig bara nokkuð vel drengirnir. Þeir spiluðu einungis þrjá leiki á mótinu en oftast eru leikirnir alveg 4-5 talsins. En vel var haldið utan um mótið og skipulag af Breiðhyltingum. Harðarpúkarnir töpuðu tveimur leikjum, gegn HKR og Selfossi en unnu ÍR-inga í lokaleik riðilsins. Drengirnir fögnuðu sigrinum vel og innilega og mikil liðsheild hafði skapast, sem er jú mjög jákvætt.

Eftir keppni dagsins var haldið í Salaskóla þar sem þeir gistu og höfðu fullan aðgang að flottri félagsmiðstöðvaraðstoðu þar á bæ, þökk sé Óla, pabba Hlyns. Þar fór vel um drengina fram til sunnudags en þeir vöknuðu þó snemma til að taka góða æfingu í KR-heimilinu en KR-ingar voru svo elskulegir að lána okkur íþróttahús sitt í 90 mínútur til að fá auka spiltíma. Þeir gátu því miður ekki spilað sjálfir við okkur og önnur lið voru einnig önnum kafin en Harðarpúkarnir létu það þó ekki á sig fá og við tókum tvo æfingaleiki innbyrðis enda með tvö full lið með í för að þessu sinni af flottum drengjum.

Drengirnir fóru svo sælir og sáttir heim á leið með flugi á sunnudeginum eftir fína helgi í Reykjavík. Eftir áramót er planið að taka tvö Íslandsmót af þeim þremur sem standa til boða og ætlunin er að sjálfsögðu eins og áður að gera betur þá heldur en síðast og það er ekki nokkur spurning að með góðri ástundun og dugnaði gerist það.

Pistlahöfundur (þjálfari flokksins) þakkar fararstjórum fyrir flotta ferð og drengjunum fyrir þann kraft og metnað sem þeir lögðu í þetta og fyrir liðsheildina sem þeir sköpuðu. Flottir Harðverjar þarna á ferðinni eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.


Enn fleiri myndir frá mótinu má sjá á þessari slóð: https://picasaweb.google.com/103465191030564066767/SantaMariaMot19Nov3Hluti

Áfram Hörður! 

Skrifađu athugasemd:


Fréttir

Vefir ađildarfélaga HSV

Vefumsjón