Handboltaveisla
föstudagur: Ísland-Slóvenía kl. 17:10-18:30. Hörður-Grótta2 í 3.flokki karla hefst síðan kl. 18:30 og við hvetjum að sjálfsögðu alla til að drífa sig í Torfnes beint eftir landsleikinn
laugardagur: Hörður-Grótta2 í 2.flokki karla kl. 11:00
sunnudagur: Hörður-Haukar í bikarkeppni 3.flokks karla kl. 14:00
Við hvetjum vitanlega alla til að kíkja á þessa flottu handboltaleiki í Torfnesi um helgina. Um síðustu helgi fór 3.flokkur í keppnisferð suður þar sem þeir áttu tvo mjög fína leiki gegn Þrótti og KR en fyrri leikurinn tapaðist 40-36 (21-20 í hálfleik) og sá síðari 34-24 (18-11 í hálfleik). Drengirnir hafa sýnt miklar framfarir í vetur og vonast því til að eiga góða keppnishelgi með góðum stuðningi áhorfenda. Leikmannapistill frá 3.flokksferðinni kemur á síðuna innan skamms. 2.flokkurinn er spenntur fyrir sínum fyrsta sigri og vonandi kemur hann á laugardag.
Heimasíðan er öll að taka kipp en nú eru komnar nýjar myndir úr starfinu í haus síðunnar sem og komin ný myndaalbúm undir liðnum "Myndir" hér vinstra megin á síðunni. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur þetta og fylgjast svo vel með á komandi misserum.
Áfram Hörður!