A A A

Atburđir

7. nóvember 2010 - Ásdís Birna Pálsdóttir

Myndir frá 3.deildar mótinu komnar inn á myndasíđuna

Myndir frá mótinu um síðustu helgi hafa verið settar inn á myndasíðuna. Myndir þessar voru teknar af Þorgerði Karlsdóttur og Halldóri Sveinbjörnssyni, og viljum við sérstaklega þakka honum fyrir að kíkja á mótið og taka þessar fínu myndir og eins fyrir afnotin af myndunum.

3. nóvember 2010 - Ásdís Birna Pálsdóttir

Sex liđ frá Skelli á leiđ á Íslandsmót yngri flokka

Skellur fer með sex lið á Íslandsmót yngri flokka á Akureyri um næstu helgi.

Farið verður með rútu á föstudaginn og hafa allar upplýsingar um ferðina og liðin verið settar inn á krakkablaksíðuna undir tilkynningar: http://hsv.is/skellur/krakkablak/tilkynningar/

 

Hægt verður að fylgjast með mótinu á heimasíðu krakkablaksins www.krakkablak.bli.is

 

31. október 2010 - Ásdís Birna Pálsdóttir

Frábćr árangur hjá Skelli

Nú er Íslandsmótinu í 3.deild kvenna lokið. Óhætt er að segja að árangur Skells hafi farið fram úr björtustu vonum því þær unnu alla leikina sína í mótinu án þess að tapa hrinu. Þetta er hreint út sagt frábær árangur. Liðið verður því áfram í 3.deildinni ásamt sex öðrum liðum en sjö lið féllu niður í 4.deild eftir þetta mót.
Nú er bara að halda áfram að æfa vel því nú verða enn sterkari lið í næsta 3.deildarmóti sem fer fram á Álftanesi 18.-20. febrúar n.k.

30. október 2010 - Ásdís Birna Pálsdóttir

ţrír sigrar á fyrri degi

Nú er lokið fyrri leikdegi í Íslandsmótinu í 3.deild kvenna og hefur allt gengið vel. Öll lið að einu undanskyldu mættu til leiks. Skellur spilaði tvo leiki á móti UMFG og Álftanesi B og unnu þá báða. Liðið átti síðan að spila við Fylki C en það lið til mætti ekki til leiks og fékk Skellur því dæmdan sigur í þeim leik 2-0.
Skellur spilar svo sinn fyrsta leik af þremur á morgun kl.9.
Skellur þakkar góðan stuðning í dag og óskar eftir enn meiri stuðningi á morgun.
27. október 2010 - Ásdís Birna Pálsdóttir

Hvađ segir ţjálfarinn um liđiđ og mótiđ framundan !!!

Jamie ađ keppa í grindahlaupi fyrir Háskólann í Rochester
Jamie ađ keppa í grindahlaupi fyrir Háskólann í Rochester

Jamie, nú styttist í fyrsta 3.deildarmót vetrarins hjá kvennaliðinu, er hópurinn svipaður nú og í fyrra ?


Þetta tímabil höfum við í Skelli á að skipa mörgum öflugum leikmönnum.  Það hafa bæst við tveir leikmenn sem koma erlendis frá og eru hér í Meistaranámi við Háskólasetur Vestfjarða.  Fjölbreytni liðsins er orðin meiri og nú höfum við auka uppspilara.  Þetta gefur meiri möguleika og virkar sem hvatning fyrir leikmenn því það er meiri samkeppni um stöður í liðinu.


Liðið einbeitti sér að grunnatriðunum fyrsta mánuðinn. Ég trúi því að án réttrar undirstöðu sé hætta á að leikmenn verði kærulausir og seinir. Nú þegar við höfum góðan skilning á grunninum þá höfum við undanfarið unnið að því að fínpússa og fullkomna önnur atriði leiksins. Ég hef einnig lagt áherslu á þrekið. Við spilum jú í fáum mótum á hverju ári, en spilum sex til átta leiki á aðeins tveimur dögum þannig að form leikmanna skiptir miklu máli fyrir velgengni liðsins.

...
Meira
27. október 2010 - Ásdís Birna Pálsdóttir

Ferđ yngri flokka á Íslandsmót á Akureyri

Nú fer að líða að Íslandsmótinu á Akureyri. Ákveðið hefur verið að fara með rútu, en það reyndist ódýrasti og eini raunhæfi kosturinn. 


Helstu upplýsingar um ferðina hafa verið settar inn á krakkablaksíðuna undir tilkynningar: http://hsv.is/skellur/krakkablak/tilkynningar/

24. október 2010 - Ásdís Birna Pálsdóttir

Blakveisla á Ísafirđi um nćstu helgi

Sannkölluð blakveisla verður í Íþróttahúsinu á Torfnesi um næstu helgi en þá verður keppt í fyrstu umferð 3.deildar kvenna á Íslandsmótinu í blaki og munu um eitt hundrað konur ásamt þjálfurum mæta á svæðið. 
Fjórtán lið taka þátt í 3.deildinni í vetur og er deildinni jafnframt skipt í tvo riðla. Hvert lið spilar sex leiki og hefst keppni kl.9 á laugardagsmorgni og verður spilað til um kl.17,  á sunnudeginum hefst svo keppni kl.8 og verður spilað til kl.14.

Dómgæsla í mótinu er að mestu leyti í höndum félagsmanna sem tóku þátt í dómaranámskeiði síðasta haust.

Áhorfendur eru hvattir til að mæta og hvetja sitt heimalið en aðgangur er ókeypis. Yngri flokkar félagsins munu sjá um veitingasölu báða dagana og mun allur ágóði af henni renna í ferðasjóð þeirra en fyrri umferð Íslandsmót yngri flokka BLÍ fer einmitt fram á Akureyri um þar næstu helgi.

Við munum síðan þegar líður á vikuna heyra í þjálfaranum um liðið og mótið framundan og jafnframt setja inn tímasetningar leikja hjá Skelli.

23. október 2010 - Ásdís Birna Pálsdóttir

Viđtal viđ Kath, nýjan leikmann meistaraflokks kvenna

Kath Dolmage
Kath Dolmage

Hvað ertu gömul og hvaðan ertu ? Hefurðu búið þar alla ævi ? 


Ég er 25 ára og ólst upp í Campell River á Vancouver eyju í  V-Kanada en síðustu ár hef ég búið í Vancouver.


 


Afhverju ákvaðstu að koma til Ísafjarðar ? 


Ég kom til Ísafjarðar því ég vildi fara í nám svipað og námið í Haf og strandsvæðastjórnun og mér fannst að Ísland væri áhugaverður og öðruvísi staður til að stunda slíkt nám.


 

...
Meira
19. október 2010 - Ásdís Birna Pálsdóttir

Viđtal viđ Söru, nýjan leikmann meistaraflokks kvenna

Sara Martin
Sara Martin

Hvað ertu gömul og hvaðan ertu ? Hefurðu búið þar alla ævi ?
Ég er rétt að verða 25 ára og frá Sioux Lookout, Onatario í Kanada. Ég er fædd þar og uppalin  og hef að mestu dvalið þar alla ævi. Ég fór þó annað í háskóla og hef ferðast mikið en ég tel Sioux Lookout enn vera heimili mitt.


 


Afhverju ákvaðstu að koma til Ísafjarðar ?
Ég kom til að stunda mastersnám við Háskólasetur Vestfjarða í Haf- og strandsvæðastjórnun.

...
Meira
15. október 2010 - Ásdís Birna Pálsdóttir

Viđtal viđ ađalţjálfara félagsins

Jamie Landry
Jamie Landry

Okkur hjá félaginu fannst kominn tími til að kynna þjálfarann okkar hana Jamie fyrir ykkur og fréttaritarinn tók á dögunum viðtal við hana, á næstunni munum við einnig birta viðtöl við tvo nýja erlenda leikmenn sem byrjuðu hjá okkur í haust.
En nú er það aðalþjálfarinn hún Jamie Landry

 


Hvað ertu gömul og hvaðan ertu ? Hefurðu búið þar alla ævi ?

Ég er 23 ára og frá Gilford, New Hampshire í Bandaríkjunum. Ég er fædd í Kaliforníu en hef búið mest alla ævi í New Hampshire. Ég fór í háskóla í Rochester í New York og bjó þar í fjögur ár.

...
Meira
Eldri fćrslur

Fréttir

Vefumsjón