A A A

Atburðir

Orðsending frá yfirdómara mótsins

Leikmenn og þjálfarar öldungaliða á 33. Öldungamóti BLÍ á Ísafirði 1.- 3. maí

Viðmið dómara og leikreglur almennt

Sem yfirdómari á öldungamóti BLÍ, vil ég fyrir hönd allra dómaranna í mótinu telja fram nokkur atriði sem hafa ber í huga í mótinu. Sjálfur hef ég dæmt í síðustu fjórum öldungamótum með ágætum árangri og margir þeirra dómara sem eru nú í mótinu hafa einnig nokkra reynslu í öldungamótunum.

Alls verða 12 dómarar að störfum og tel ég það nokkuð gott og bera þess merki að um metnað sé að ræða, bæði hjá mótshöldurum og hjá þeim sem gefa sig í að koma vestur á firði að dæma blakleiki. Af þessum 12 dómurum er ég eini dómarinn sem er fullgildur landsdómari í blaki. Þrír af þeim sem koma til með að dæma eru á barmi þess að fá landsdómararéttindi en þeir hafa dæmt hvað mest í 2. deildinni undanfarin ár og sumir tekið einstaka leiki í 1. deild kvenna. Átta dómarar hafa þó nokkra reynslu af dómgæslu í öldungamótum og öðrum hraðmótum, flestir með héraðsdómararéttindi.

Viðmið í dómgæslu:

Í efri deildunum, þ.e. 1. og 2. deild þessa öldungamóts er dómgæslan tvímælalaust eins og í Íslandsmótinu í meistaraflokkunum í blaki enda getan ekki síðri. Þar munu reyndustu dómararnir vera við störf og ekkert gefið eftir. Í neðri deildunum verður þessi svipaða lína haldin þar sem létt er tekið á tvíslögum, en dæmt á þau allra grófustu. Á mok og snertingu við net er ætíð dæmt og strangt verður tekið á línum, þ.e. stigið yfir miðlínu eða endalínu í uppgjöf í öllum deildum sem og afturlínu.

Starf dómara felst í því að dæma leik. Dómari skal ávallt vita hver er fyrirliði liðanna á vellinum og samskipti fara í gegnum hann. Þjálfari má biðja um leikhlé með handabendingum. Þjálfari má einnig biðja um skiptingu en aðeins má biðja um 6 skiptingar í hverri hrinu og sami leikmaður má ekki fara tvisvar inná í sömu hrinunni. Leikmanni sem skipt er útaf er eini leikmaðurinn sem má koma aftur inn í hrinuna fyrir þann sem skipt var inn á.

Verði leikmenn eða þjálfarar uppvísir að óíþróttamannlegri hegðun verður fyrirliði kallaður á teppi dómara og hann áminntur. Sé slíkt hegðun endurtekin í leiknum ber dómara að sýna gult spjald á viðkomandi leikmann eða þjálfara og mótherjar fá þ.a.l. eitt stig í sarpinn. Sé þessi hegðun endurtekin enn frekar eru næstu viðurlög rautt spjald, sem þýðir að leikmaðurinn má ekki taka frekari þátt í hrinunni og svo eftir það rautt og gult í sömu hendi (útilokun frá leiknum). Afar sjaldgæft er að þessi tvö síðustu viðurlög séu notuð en þó hefur nokkuð verið um það í efstu deildum Íslandsmótsins undanfarin ár.

**Völlurinn á Suðureyri er þannig að stutt er í vegg báðum megin og því verður leyfilegt að stíga að gulri línu sem er inni á vellinum í uppgjöf..


Punktar úr almennum leikreglum í blaki

Netsnerting: Snerti leikmaður netið í sókn, hávörn, í tilraun til að ná til boltans skal dómari dæma net á það það lið og helst sýna hvaða leikmaður snerti netið. Sé boltinn víðs fjarri þegar leikmaður snertir netið verður dómari að meta hvort netsnertingin hafi haft áhrif á leikinn og dæma samkvæmt því.

Fyrsti bolti yfir net: Þegar fyrsti bolti kemur yfir net má slagið vera “óhreint”. Þetta þýðir að það má gera tvíslag í fyrsta bolta yfir net svo lengi sem það sé sama hreyfing. T.d. má ekki taka boltan með vinstri og svo aftur hægri niðri í móttöku. Það má heldur ekki moka boltanum í fyrsta bolta, þ.e. dómari verður að meta hvort um sé að ræða mok eða óhreint slag.

Línur: Standi leikmaður útaf velli við uppgjöf er það ólögleg uppstilling og dæmt á það. Stígi leikmaður á línu við uppgjöf er dæmt á það. Stígi sóknarmaður í afturlínunni á þriggja metra línuna er dæmt á það. Ef allur fóturinn fer yfir miðlínuna er það yfirstig og dæmt á það.

Frelsingi: Þessi leikmaður kemur inn fyrir mann í afturlínunni. Skiptingin verður að vera þegar boltinn er úr leik og má frelsinginn aðeins skipta við einn mann á milli “rallyja”. Frelsinginn má gera allt fyrir aftan sóknarlínu svo lengi sem hann hoppar ekki þannig að úr verði sóknarslag fyrir ofan netbrún. Ef frelsingi spilar með fingurslagi fyrir innan þriggja metra línuna má sóknarmaðurinn ekki slá boltann fyrir ofan netbrún.

Skiptingar: Leikmaður sem kemur inn á völl tekur stöðu þess sem hann kemur inn fyrir. Ef leikmaðurinn sem fór útaf er skipt inn á aftur verður skiptingin að vera við þann sem kom inn fyrir hann, annars er skiptingin ólögleg.

Leikhlé: Tvö 30 sekúndna leikhlé eru í hverri hrinu. Þjálfari og fyrirliði mega biðja um leikhlé.

Fyrirliði: Hlutverk fyrirliða er að hafa samskipti við dómara ef einhver eru. Fyrirliðinn er sá eini á vellinum sem má tala beint við dómara, þjálfari má biðja um leikhlé með handabendingum. Að öðru leyti á þjálfarinn að einbeita sér á að stýra sínu liði og ekki skipta sér af dómgæslunni.

Varamannabekkir: Skulu vera þeim megin sem ritaraborðið er á móti dómaranum. Þjálfarar verða að vera við varamannabekki sína á svæðinu frá sóknarlínu að endalínu.

Það er von mín að þessi praktísku atriði leiksins verði virt í þessu móti en ég sá ástæðu til þess að skrifa þessa orðsendingu vegna atviks sem kom upp á mótinu í fyrra þar sem einn þjálfarinn virtist hafa stjórnað dómgæslunni pínulítið sjálfur. Þó svo að skemmtun sé í fyrirrúmi hjá sumum liðum og jafnvel öllum er blakið leikur sem hefur reglur sem vert er að fara eftir. Dómarar geta verið misjafnir eins og þeir eru margir en engu að síður ber leikmönnum að virða ákvörðun dómara og fara eftir henni.

Ég vona að þið, kæru blaköldungar, séuð í stakk búin á öldungamótinu til þess að spila gott blak og vera íþróttinni til sóma í einu og öllu. Góða skemmtun og sjáumst fyrir vestan.

Virðingarfyllst,

Sævar Már Guðmundsson (sign)

Yfirdómari 33. öldungamóts BLÍ

Vefumsjón