A A A

Atburðir

Þuríður Katrín Þuríður Katrín | miðvikudagurinn 18. janúar 2012

Dagskrá og Fjáraflanir

Sæl öll
Nú er loks komin dagskrá fyrir vorönnina inn á síðuna okkar. Bæði er komin mótadagskrá og fjáraflanir.
Við viljum minna á að til þess að við getum haldið þessari dagskrá þurfum við samvinnu við foreldra og nauðsynlegt er að fá fararstjóra á mótin. Afar bagalegt er að þurfa að fella niður ferð vegna fararstjóraleysis.
Njótið vel!
Kv
Þuríður
Guðbjörg Drengsdóttir Guðbjörg Drengsdóttir | mánudagurinn 16. janúar 2012

Skólastyrkir



Ungmennafélag Íslands hefur verið í  góðu samstarfi við nokkra lýðháskóla í Danmörku í áraraðir.  UMFÍ hefur m.a. styrkt fjölmörg íslensk ungmenni til dvalar í þessum skólum og gerir enn.   Einn af þeim skólum sem UMFÍ er í samstarfi við er lýðháskólinn í Viborg.  Skólinn hefur nú ákveðið að bjóða nokkrum ungmennum skólastyrk á vorönn sem er frá 19. febrúar – 26. júní 2012 eða í samtals 18 vikur.   Heildarkostnaður vegna námsins ásamt fullu fæði og gistingu er 36.910.- dkr. eða um kr. 800.000,- íslenskar krónur.   Styrkurinn nemur hinsvegar kr. 20.910.- dkr. sem er um 460.000.- íslenskar krónur.    Hlutur nemenda í þessar 18 vikur er því 16.000.- dkr. eða einungis um 350.000.- íslenskar krónur.

Upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans giv.dk og síðan gefur Ómar Bragi Stefánsson hjá Ungmennafélagi Íslands frekari upplýsingar til áhugasamra.  Netfang Ómars er omar@umfi.is
Guðbjörg Drengsdóttir Guðbjörg Drengsdóttir | fimmtudagurinn 12. janúar 2012

Foreldrafundur


Sæl öll
Foreldrafundur í kvöld fim 12. jan. kl. 19 á sundhallarloftinu.
kv.
Stjórnin
Guðbjörg Drengsdóttir Guðbjörg Drengsdóttir | mánudagurinn 2. janúar 2012

ÆFINGAR 2012

sæl öll
Gleðilegt nýtt ár.
Sundæfingar byrja á sama tíma og áður miðvikudaginn 4. jan. Morgunæfingar byrja  fös. 6. jan.
kv. þjálfarar
Guðbjörg Drengsdóttir Guðbjörg Drengsdóttir | fimmtudagurinn 29. desember 2011

JÓLAKVEÐJA

SUNDFÉLAGIÐ VESTRI ÓSKAR IÐKENDUM, ÞJÁLFURUM OG FJÖLSKYLDUM ÞEIRRA GLEÐILEGRA JÓLA OG FRIÐAR Á NÝJU ÁRI.
ÞÖKKUM SAMSTARFIÐ Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA.

KVEÐJA
STJÓRN VESTRA
Guðbjörg Drengsdóttir Guðbjörg Drengsdóttir | fimmtudagurinn 29. desember 2011

NÝTT GREIÐSLUFYRIRKOMULAG

Sæl öll
 Vestri hefur tekið í notkun nýtt skráningar og greiðslukerfi (nori)
 sem er í gegnum HSV, Nokkrur íþróttafélög innan HSV eru komin af stað
 með þetta skráningarkerfi.

 Frá næstu áramótum skrá iðkendur sig inn í gegnum HSV síðuna og greiða æfingagjöldin þar. Ekki verða sendir út greiðsluseðlar eins og áður.
Allir sem hafa æft með gull,silfur og bronshóp þurfa að skrá sig.

 kv. Stjórn Vestra
Guðbjörg Drengsdóttir Guðbjörg Drengsdóttir | mánudagurinn 26. desember 2011

Dósasöfnun

Sæl öll,
dósasöfnun verður þriðjudaginn 27. desember kl. 18.
Mæting niður við Íshúsfélagið (á móti kirkjugarðinum)til að velja sér götur.
kv. Kolbrún og Kristín
Þuríður Katrín Þuríður Katrín | fimmtudagurinn 8. desember 2011

Elena Dís á NMU

Elena Dís hefur verið valin af SSÍ til að taka þátt í norðurlandameistarmóti unglinga sem fram fer helgina 9-11 desember. Elena mun æfa með úrtakshópnum á fimmtudag og föstudag fyrir mót. Hópurinn mun svo dvelja saman á meðan á móti stendur og verður Elena eflaust reynslunni ríkari eftir helgina. Við hjá Vestra erum afar stolt af Elenu og fylgjumst við spennt með gengi hennar um helgina. Gangi þér vel Elena Dís :o)
Guðbjörg Drengsdóttir Guðbjörg Drengsdóttir | miðvikudagurinn 23. nóvember 2011

FJÖLNISMÓt

Sæl Öll

Þá eru línur farnar að skýrast varðandi Fjölnismótið.

Farið verður með flugvél, mæting á flugvöllinn kl. 10:50 á föstudag, og brottför úr Reykjavík kl. 15:15 á sunnudag, lent á Ísafirði kl.15:55.

Sótt hefur verið um leyfi fyrir hópinn á fös. í báðum skólum, GÍ og MÍ.

Krakkarnir þurfa að hafa með sér svefnpoka/sæng og lak, það verður gist  á farfuglaheimilinu í Laugardal sem er við hliðina á Laugardalslauginni.
3-4 handklæði
Sundföt, sundgleraugu, sundhettu og vatnsbrúsa á bakkann.
Bakkaföt, stuttbuxur, bol og innskó (þetta er innilaug og getur orðið ansi heitt á bakkanum)
Auka föt.
Tannbursta og aðrar nauðsynlegar hreinlætisvörur
Ekki gleyma Hsv-gallanum í flugið og góða skapinu.
Öll rafmagnastæki eins og i-pod, farsíma og tölvur  hafa krakkarnir með sér á eigin ábyrgð.

Ekki er ætlast til þess að krakkarnir hafi með sér vasapening og minnum við á að allar ferðir á vegum Vestra er gos- og nammilausar.
Hins vegar reynum við að ljúka góðri ferð á því að fá okkur ís einhversstaðar  og er það í boði Vestra.

Fararstjórar í ferðinni verða:
Jón Arnar Gestsson  s. 8997171 ( pabbi Laufeyjar Huldu)
Haraldur s. 8403327  ( pabbi Hafdísar)
Rúnar Helgi Haraldsson s. 8227415 ( pabbi Emmu )
Þjálfarar í ferðinni eru Martin og Gunna

Kostnaður ferðarinnar greiðist inn á

reikningsnúmer:
0556-26-282
kennitala:
430392-2399

og senda kvittun á mimir@internet.is

Ef einhverjar spurningar vakna hjá foreldrum um ferðina þá er alltaf hægt að hafa samband og fá upplýsingar hjá Guðbjörgu í síma   8457246  


Ég vil einnig benda á síðu mótsins http://fjolnir.is/sund/atburdir/2011-2012/unglingamot/, þar er hægt að skoða allt um mótið.
Góða ferð og skemmtun.
Kv. Stjórn Vestra
Guðbjörg Drengsdóttir Guðbjörg Drengsdóttir | þriðjudagurinn 22. nóvember 2011

Kökulína

Sæl öll

Þá er það kökulínan okkar, bækurnar verða afhentar á æfingu  í dag þri. þeir sem ætla á fjölnismót klári að selja á fimmtudagskvöld.
Foreldrar eru beðnir að baka köku fyrir börnin sín og skila í sundhöll ásamt bókum kl 11:45 á sunnudag, dregið verður kl.12  og vinningum keyrt út í framhaldi af því.
Eins og fyrr kostar línan 500 kr.
Gangi okkur vel.
kv. Ragna og Rannveig
Fyrri síða
1
234567293031Næsta síða
Síða 1 af 31
Eldri færslur

Fréttir

Vefir aðildarfélaga HSV

Vefumsjón